Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2014, Blaðsíða 40
Helgarblað 10.–13. október 201440 Lífsstíll Þ ann 11. október næst- komandi mun íslenska landsliðið í Roller Derby, Ragnarök, keppa sinn fyrsta heimaleik við erlent lið í Fylkishöllinni. Franska liðið Les Morues, eða Þorskarnir, kem- ur og keppir en þetta er jafnframt fyrsti leikur þess utan Frakklands. Alex Steinþórsdóttir og Ásrún Magnús dóttir segja aðeins frá kom- andi keppni sem og liðinu sjálfu, en Roller Derby er tiltölulega nýtil- komið á landið. Frá bílakjallara í íþróttahús „Liðið er nokkurra ára, en við byrj- uðum á því að æfa okkur í bíla- kjallara og svo gókart- höll því við fengum hvergi inni í íþróttahús- um,“ segir Ásrún. „Hjólaskautar eru lítt þekkt fyrirbæri hér á landi og því skiljanlegt að umsjónarmenn húsanna hafi haft áhyggjur af því að skautarnir hreinlega eyðilegðu gólfin. Grótta hins vegar hleypti okkur inn í Hertz-húsið fyrir nokkru og hefur samstarfið verið mjög gott.“ Íþróttin er ekki gömul þó að fyrir bærið Roller Derby hafi verið til í tugi ára. Upphaflega var leikurinn meira í ætt við ameríska glímu þar sem leikhæfileikar liðsmanna voru jafnmikilvægir og að geta haldið jafnvægi á skautun- um. En svo var ákveðið að endurvekja íþróttina og gerð var ströng reglubók sem all- ir verða að fara eftir. „Það er ekki leyfilegt að gefa oln- bogaskot eða fella and- stæðing, til dæmis. Ef þú ætlar að ýta einhverjum í burtu, verður þú að gera það með öllum líkamanum en ef þú dettur verður þú að passa að detta „lítið“ eins og við köllum það. Við þurf- um að taka eins lítið pláss og við getum en á sama tíma að vera fljót að standa upp aftur. Sú regla er líka til staðar því ef þú baðar út höndum er hætta á að ein- hver hjóli yfir fingurna og það er alls ekki gott.“ Þétt samfélag Það myndast yfirleitt mik- ill vinskapur með lið- um og þar sem íþróttin er lítið þekkt þá eru ekki miklir peningar sem fylgja henni. Því er hefð- in sú að ef erlent lið kem- ur í heimsókn að keppa, þá sér heimaliðið um að koma öll- um liðsmönnum fyrir. „Það er spenndublandinn stressfílingur yfir komu Les Morues,“ segir Ás- rún. „Það er mikið sem fylgir því að halda svona keppni og við erum öll í annarri vinnu svo það hefur ekki verið mikill tími aukalega til þess að skipuleggja allt og koma öllum frönsku liðsmönnunum fyrir, en það hafðist.“ Ragnarök hefur ekki keppt mikið, en hefur keppt nokkra leiki þar sem liðsmenn skipta sér upp í lið en í sumar fóru liðið til Finn- lands og keppti tvo leiki. „Við keppt- um tvo leiki þar. Það gekk rosalega vel. Eftir þá leiki fréttist út í Derby- samfélagið að það væri lið á Íslandi. Við höfum þegar fengið margar fyrir spurnir frá liðum sem vilja koma og keppa við okkur. Eiginlega of margar fyrirspurnir, því við höf- um því miður hvorki fjármagn né tíma til að sinna þeim öllum.“ Ekki hægt að fá hjóla- skauta á Íslandi Enn sem komið er eru hjólaskautar ekki seldir hér á landi nema fyrir börn. Liðsmenn Ragnaraka hafa því þurft að kaupa skautana sína að utan. „Á nýliðanámskeiðum höfum við verið að lána og gefa gamla dótið okkar, en yfirleitt þarf að fara út fyrir landsteinana til að kaupa búnað- inn,“ segir Alex. „En það er vel hægt að nota gömlu hjólaskautana eins og margir áttu fyrir tuttugu árum. En það er samt betra að kaupa alvöru hjólaskauta, þar sem þú get- ur skipt út hjólum og öllum búnaði,“ segir hún. „Það er hægt að fá línuskauta úti um allt,“ bætir Ásrún við. „Þannig að það er möguleiki að umboðs- sölumenn haldi að það sé ekki markaður fyrir hjólaskauta líka. En við þurfum bara að sýna þeim að áhuginn er að aukast.“ „Það er mikið að fá út úr Derby- stelpum,“ segir Alex hlæjandi. „Við erum algjörar græjustelpur. Við erum alltaf að skipta um hjól, legur og annað sem fylgir skónum. Svo eru líka til svo margar gerðir af skóm. Mínir eru til dæmis mjög lágir á meðan skór Ásrúnar ná upp á ökklann. Það fer bara eftir því hvað fólk vill.“ Ódýrt á leikinn Það kostar fimm hundruð krónur inn á leikinn og ókeypis fyrir börn tólf ára og yngri. „Leikurinn byrjar klukkan fimm en húsið verður opnað klukkan hálf fimm,“ segir Alex. „Það er hægt að kaupa miða í anddyrinu á Fylkishöllinni en við verðum því miður ekki með posa, þannig að komið með reiðufé. Svo í hléinu verðum við með alls kyns varning til sölu.“ Ef fólk vill styrkja félagið er hægt að hafa samband í gegnum tölvu- póstinn hello@rollerderby.is. „Við tökum öllum styrkjum fagnandi,“ segir Ásrún hlæjandi. „Það er bæði hægt að styrkja okkur og fá okkur í auglýsingar. Annars er hægt að finna okkur á Facebook, Twitter, Tumblr og Instagram sem og heimasíðunni rollerderby.is,“ segir hún að lokum. n „Það er ekki leyfilegt að gefa olnbogaskot“ n Fyrsti landsliðsleikur Ragnaraka á Íslandi um helgina n Strangar reglur Helga Dís Björgúlfsdóttir helgadis@dv.is Ásrún Magnúsdóttir og Alex Steinþórsdóttir Ragnarök, eina Roller Derby-lið Íslands, og því landsliðið, er að halda sinn fyrsta heimaleik nú um helgina. MynD Sigtryggur Ari ragnarök Liðsþyrping á leik liðsins í Finnlandi fyrr á árinu. MynD MArko niEMElä roller Derby Íþróttin getur verið nokkuð gróf, en það eru strangar reglur um það sem má og ekki má. MynD MArko niEMElä „Það er ekki leyfilegt að gefa olnbogaskot eða fella andstæðing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.