Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Blaðsíða 11
Fréttir 11Vikublað 2.–4. desember 2014 Þ að gefur auga leið að þetta áreiti eykst með aukinni netnotkun. En þetta er það sem við erum farin að sjá – fjölgun mála sem varða rafrænt áreiti,“ segir Kol- brún Benediktsdóttir, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Á undanförnum tveimur árum hafa vefsíður sem geyma svokallað hefndarklám, myndefni, nektar- og kynlífsmyndir og/eða mynd- bönd verið mikið til umræðu bæði hér á landi og erlendis. Víða er unnið að því að setja lög sem ná utan um myndbirtingu af þeim toga en á Íslandi varða þau brot á blygðunarsemi eða ærumeiðing- um. Hér til hliðar má lesa sög- ur kvenna sem urðu fyrir því að myndir af þeim birtust á umdeildri vefsíðu þar sem myndir, sérstak- lega af konum, ganga manna á milli. Í einhverjum tilfellum er óskað eftir myndum af konunum og í öðrum eru þær settar inn. Í flestum tilfellum er það án heimildar kvennanna. Myndirn- ar rata þó ekki aðeins inn á síð- ur sem þessar heldur einnig sam- félagsmiðla og önnur skúmaskot netsins. Líkt og DV greindi frá fyr- ir skemmstu hefur komið fyrir að myndir af barnungum stúlkum fari í dreifingu á síðum sem þess- um. Kolbrún segir mjög strangt tekið á málum sem þeim og að þar komi til kastanna ákvæði lag- anna um brot gegn blygðunarsemi og barnaníð. Yfirleitt er ákvæðum barnaverndarlaga svo beitt sam- hliða. Eru að hefna sín Kolbrún segir að í tilfellum sem þessum, sem varða hefndarklám, reyni mikið á ákvæði almennra hegningarlaga, 233 gr. b. Þau kveða á um að sá sem móðgar eða smán- ar maka eða fyrrverandi maka og verknaðurinn er talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skuli það sæta fangelsi allt að tveimur árum. Ákvæðið tengist breyting- um sem gerðar voru á lögum vegna heimilisofbeldis og er í kafla um ærumeiðingar og friðhelgi einkalífs. „Í einhverjum tilfellum er verið að setja inn á svona síð- ur kynlífsmyndbönd þar sem fyrr- verandi kærastar eru að hefna sín. Þetta ákvæði, 233 gr. b. felur í sér að það séu ákveðin tengsl á milli einstaklinga, en fólkið þarf ekki að hafa verið gift eða í sambúð. Það er nóg að það hafi verið í sambandi. Þessi tengsl, gera brotin alvarlegri. Viðkomandi er að misnota myndir eða myndbrot af fyrrverandi maka sem hann hefur undir höndum vegna þess trausts sem var í sam- bandinu,“ segir Kolbrún. „Undir þetta fellur einnig and- legt ofbeldi á heimili,“ segir Kol- brún og bendir á dóm er sneri að heimilisofbeldi, andlegu og lík- amlegu, sem kona varð fyrir í sambandi. Fyrir nokkrum árum féll einnig dómur sem sneri að manni sem átti undir höndum kynlífsmyndir af fyrrverandi sam- býliskonu sinni. Maðurinn kom myndunum til foreldra konunnar og var í kjölfarið ákærður og sak- felldur á grundvelli þessa ákvæðis. Setti myndir á Facebook „Eftir áramótin flyt ég mál sem snýr að manni sem setti nektarmynd- ir á Facebook eftir sambandsslit. Myndirnar voru ekki lengi inni, en nægilega lengi til þess að aðr- ir náðu að taka skjáskot. Þar verð- ur látið reyna á þetta ákvæði,“ segir Kolbrún en þar mun einnig reyna á ákvæði um brot gegn blygðunar- semi. Höfða sjálf mál Rafrænt áreiti er þó mun víð- tækara og birtingarmyndir þess afar ólíkar. Fyrir nokkru féll dómur sem sneri að konu sem varð fyrir því að auglýsing með nafni henn- ar og símanúmeri birtist á einkam- al.is. Konan sem varð fyrir áreitinu sagðist hafa upplifað sig varnar- lausa og hjálparvana, enda voru margir sem settu sig í samband við hana. Konan sem setti auglýs- inguna á vefinn var dæmd til að greiða skaðabætur. Í því tilfelli var það brotaþolinn sem stefndi sjálf- ur fyrir ærumeiðingar og brot á friðhelgi. Í sumum tilfellum er það því ekki ákæruvaldið sem fer með málið, heldur verður sá sem telur á sér brotið að stefna sjálfur telji hann brotið á friðhelgi einkalífs síns. Þó eru dæmi þess að í slíkum málum, þar sem auglýsingar eru settar upp í nafni annars manns, höfði ákæruvaldið mál. Almenn hegningarlög gera ráð fyrir því að ærumeiðandi aðdróttanir sem settar eru fram skriflega en nafn- laust eða með tilbúinni undirskrift sæti opinberri ákæru. Kolbrún bendir á að al- mennt þurfi sá sem misgert er við að höfða einkarefsimál vegna ærumeiðinga. Þetta á ekki við ef ærumeiðingar beinast að opin- berum starfsmanni vegna starfs- ins eða eru settar fram skriflega og nafnlaust. Annað áreiti, sem felst ekki í hótunum, ærumeiðingum, opinberum birtingum á mynd- um sem eru kynferðislegar, getur orðið það mikið að til greina kem- ur að beita nálgunarbanni. Ef ekki er farið eftir því er sérstakt ákvæði í hegningarlögunum sem tekur á því broti. n „Eru að hefna sín“ n Rafrænt áreiti eykst með aukinni netnotkun n Fyrrverandi kærastar setja nektarmyndir á netið Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Þetta er hefnigirni af verstu sort“ Þrjár konur sem DV ræddi við hyggjast leita réttar sín vegna hefndarkláms Blaðamaður ræddi við þrjár konur. Þeim var öllum kunnugt um að óskað væri eftir myndum af þeim á netinu eða að myndir af þeim gengju manna á milli. Í öllum tilfell- um hafði myndbirtingin valdið þeim mikilli vanlíðan og óþægindum en þær veittu blaðamanni leyfi til að segja frá upplifun sinni af þessu. Í öllum tilfellum má segja að um hefndarklám sé að ræða, en það er dreifing á nektarmyndum af konum sem ekki hafa gefið leyfi fyrir birtingunni og er jafnvel ekki kunnugt um að myndir hafi verið teknar af þeim á þennan hátt. „Sá sem er að senda þessar myndir er fyrrverandi kæstasti minn. Við hættum saman fyrir ári og ég vissi ekki að hann ætti myndir af mér. Nú er ég byrjuð í öðru sambandi og hann tók því mjög illa. Fyrst heyrði ég af því að hann væri að senda myndirnar til vina sinna þegar kærasta eins þeirra lét mig vita. Ég reyndi að fá hann til að hætta en nú er þetta komið þangað inn. Ég ætla að fara til lögreglunn- ar og kæra þetta. En myndirnar eru núna á netinu og þær fara ekkert þaðan,“ segir hún. Hún sagði málið hafa tekið mjög á sig en að hún treysti sér varla í fyrstu til að tala um þetta við fólkið sem stendur henni nærri. „Ég kenndi sjálfri mér um þetta – en það er að sjálfsögðu ekki mér að kenna að þessar myndir voru teknar. Það er líka ekki mér að kenna að hann sé að senda þær. Þetta er svo mikill trúnaðarbrestur, það er eitt að vera sár og reiður eftir sambandsslit en þetta er hefnigirni af verstu sort,“ segir hún og segist upplifa sig afar varnarlausa. „Ég velti því fyrir mér hvernig það er hægt að gera svona, brjóta trúnað manns á þennan hátt og sitja svo heima og hlæja að því.“ „Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja, nema að það er greinilega ekki hægt að treysta neinum,“ segir önnur sem DV ræddi við. Aðspurð hvort hún ætlaði að leita réttar síns sagðist hún þegar hafa stigið það skref. „Ég hafði samband við lögfræðing sem er að skoða hvernig er eðli- legt að bregðast við.“ Konan, sem er 19 ára, segist ekki vita hver það er sem er að dreifa myndunum. „Ég er alveg „lost“. Ég hélt að þetta væri ákveðinn aðili, en hann segist ekki hafa gert þetta. Hvort einhver sem hann þekkir hefur aðgang að síma eða tölvunni hans, það veit ég ekki. Mér finnst þetta ógeðslegt. Ég er svo ótrúlega sár,“ segir hún. Þriðja konan kona sem DV ræddi við segist hafa upplifað andlegt ofbeldi í sambandi sem hún var í en hefur nú slitið. Nokkru eftir að hún hætti með mannin- um fór mynd af henni í dreifingu. Myndin var raunar ekki af henni, heldur hafði verið breytt með myndvinnsluforriti og mynd af andliti hennar sett á búk annarr- ar konu. „Ég held að það geti enginn útskýrt hvernig það er að lenda í svona. Það var erfitt að hætta í þessu sambandi, en áreitið sem fylgdi eftir sambands- slitin hefur verið óbærilegt,“ segir hún. Hún hyggist leita til lögreglunnar vegna málsins. Endurskoða breytingu á lögum DV greindi frá því á dögunum að Píratar hefðu lagt fram frumvarp til breytinga á almennum hegningarlög- um, nánar tiltekið á lögum er varða ærumeiðingar. Í fyrirhugaðri laga- breytingu myndi 233.gr.b breytast. Hún kveður á um að sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum. Samkvæmt tillögu Pírata myndi fangelsisvistarákvæðið falla út og þess í stað yrði sett inn að viðkomandi sæti sektargreiðslu. DV hafði samband við Helga Hrafn Gunnarsson, þingmann Pírata og fyrsta flutningsmann frumvarpsins. Hann segist ekki hafa gert sér grein fyrir því að þetta tiltekna lagaákvæði væri notað á þennan hátt og sagðist eftir ábendingu blaðamanns ætla að taka málið upp í nefnd milli umræðna, enda sé hefndarklám alvarlegt brot á friðhelgi einkalífsins. Þingflokkurinn leggur til að sjö greinum almennra hegningarlaga verði breytt. Um er að ræða greinar er varða meðal annars það að einstak- lingar smána aðra, til dæmis erlenda þjóðhöfðingja eða móðga fólk, lifandi eða látið, og hafa uppi ærumeiðandi aðdróttanir. Þetta er í annað sinn sem frumvarpið er lagt fram, en það kom einnig fram í fyrra en var ekki rætt og er því lagt fram óbreytt. 21. nóvember 2014 10 Fréttir Helgarblað 21.–24. nóvember 2014 Í slenska lögreglan hefur verið að fá allt að 200 kvartanir á mánuði vegna efnis sem birtist á vefsíð­ um svo sem Facebook eða hótana sem einstaklingar sæta á netinu eða í rafrænum samskiptum. Fólkið á það sameiginlegt að telja á sér brotið eða það ratar á efni sem það telur vera vafasamt og varða ís­ lensk lög. Á undanförnum árum hefur DV fjallað ítarlega og ítrekað um það hvernig margir upplifa sig varnar­ lausa gegn ofbeldi á netinu en bent á að erfitt getur reynst að ná utan um það lagalega séð. Málið er enda flókið þar sem tækninni fleygir fram hratt og örugglega og lögin halda ekki endilega í við breytingarnar. Svo eru einnig einstaklingar sem virðast sérstaklega lunknir við að finna nýjar leiðir til þess að hrella aðra. Hótanir og jafnvel ofsóknir á netinu eða símleiðis eru því erfiðar viðfangs. Oftar en ekki eru þær nafn­ lausar og sendar í gegnum erlend forrit og því takmarkað hvernig hægt er að bregðast við. Úrræðin eru í sumum tilfellum til staðar, segir Sigrún Jóhannsdóttir héraðsdómslögmaður og vísar til almennra hegningarlaga. Þeir sem hafa til dæmis uppi hótan­ ir eiga samkvæmt lögunum að vera dæmdir samkvæmt refsiramma sem býður upp á tveggja ára fang­ elsi en í mörgum tilfellum eru við því sektargreiðslur og yfirleitt skil­ orðsbundnir dómar. Þessu ákvæði er mjög oft beitt þegar um er að ræða heimilisofbeldi. Sigrún segist velta því fyrir sér hvort íslensk lög nái utan um þessi mál sem tengjast rafrænum samskiptum. Getur ekki verndað hana Á vefsvæði sem vistað er erlendis er íslenskt spjallborð þar sem myndir af íslenskum konum og stúlkum ganga manna á milli. Mikið er gert úr því að fá myndir af konunum fáklæddum eða nöktum. Sumir netverjar leggja inn pantanir af myndum af ákveðn­ um einstaklingum og aðrir nota svæðið til að ná sér niður á konun­ um eða stúlkunum eftir sambands­ slit. Í slíkum tilfellum, það er þegar fyrrverandi elskhugar dreifa efni, er það kallað hefndarklám. Móðir 13 ára stúlku segist hafa fengið veður af því að verið væri að óska eftir myndum af dóttur sinni á vefsvæðinu. „Hún er þrettán ára gömul og þeir eru að biðja um nektar­ myndir af henni. Hún þorir ekki í sund og hún fer ekki í sturtu í leikfimi. Reyndar hef ég verið að leyfa henni að sleppa við bæði fögin í skólanum, þetta reynir svo mikið á hana. En ég get það ekki til lengdar. Skólinn get­ ur ekkert gert og þegar ég fór til lög­ reglunnar var mér sagt að þeir gætu lítið gert; síðan væri vistuð erlend­ is og að myndir af stúlkunni hefðu ekki farið í dreifingu. Ég, sem móð­ ir hennar, gat sem sagt ekki verndað hana nema með því að leyfa henni að sleppa því að fara í sturtu,“ segir hún. DV hefur ítrekað fjallað um síður sem þessa, en hún er ekki nefnd á nafn hér til að auglýsa hana ekki. Úrræðin til staðar – en samt ekki Víða erlendis er unnið að því að banna hefndarklám. Sigrún bendir á að á Íslandi sé það brot á friðhelgi einstaklingsins, að dreifa slíku efni. Sá kafli almennra hegningarlaga er háður því að brotaþoli fari í einka­ mál. Vilji brotaþoli höfða einkamál sjálfur á hendur geranda, eru því úr­ ræði til þess, en ekki allir hafa til þess andlega og fjárhagslega burði. Í ein­ hverjum tilfellum væri hægt að fella það undir 210. gr. hegningarlaga, er varðar dreifingu á klámi. Þá þyrfti þó að fara í skoðun á því hvað klám er og skilgreiningar þess. Það getur reynst erfitt að skilgreina klám enda er engin ein íslensk skilgreining á klámi til staðar og hugtakið hefur tek­ ið miklum breytingum í áranna rás. Einnig mætti skoða hvort hægt væri að kæra fyrir brot á blygðunarsemi. „Það mætti fara fram umræða um það hvort lögin nái hreinlega utan um þetta og hvort það þurfi ekki að bregðast við þessu,“ segir Sigrún. Hún segist ekki þekkja dæmi þess að einstaklingar hafi verið dæmdir fyrir dreifingu á hefndarklámi hér á landi. Í þeim tilfellum þar sem um er að ræða ungar stúlkur eða drengi, sem verða fyrir því að vafasömum mynd­ um er dreift af þeim, er ekki um ann­ að að ræða en telja það sem barna­ níðsefni. Dreifing á því er brot á hegningarlögum og getur varðað allt að tveggja ára fangelsi. Vandinn felst sem fyrr í því að síðurnar eru oftar en ekki vistaðar erlendis og erfitt getur reynst að hafa hendur í hári þeirra sem deila þar efni. Lögreglumaður sem DV ræddi við segir mikinn fjölda af kvörtunum berast til lögreglunnar vegna mála sem þessara, það er að myndir gangi á síðunum eða að óskað sé eftir síð­ unum sé lokað vegna efnis sem þar birtist. Maðurinn segir erfitt að fylgja eftir öllum málum, en að í þeim til­ fellum þar sem efni er dreift af börn­ um sé gripið til sérstakra varúðar­ ráðstafana. n „Það mætti fara fram umræða um það hvort lögin nái hrein- lega utan um þetta. Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Notaði Snapchat Í fyrra sagði DV frá ungri konu sem var ofsótt af fyrrverandi sambýlismanni og barnsföður. Sá notaði smáforritið Snapchat til að klekkja á konunni. Hann stofnaði stöðugt nýja reikninga undir nafni konunnar og sendi í gríð og erg nektarmyndir af henni sem hann hafði aðgang að. Bætti hann við notendum Snapchat, fólki sem konan þekkti og einnig ókunnugum. Konan hafði, eðli málsins samkvæmt, ekki veitt heimild fyrir dreifingu myndanna. Hún telur sig vera eiganda þeirra, en maðurinn telur sig vera það líka. Maðurinn sendi konunni líka stöðugt skilaboð , undir dulnefni, á Facebook, í smáskilaboðum og í tölvupósti. Mörg voru skilaboðin rætin og ljót en önnur innihéldu misvel dulbúnar hótanir um ofbeldi og líkamsmeiðingar. Allt var þetta andlegt ofbeldi sem konan hafði þá sætt um árabil án þess að hægt væri að gera annað en að ræða við manninn sem átti að auki til að sitja um heimili hennar. Kona n hefur ekki höfðað einkamál en hefur ítrekað leitað til lögreglunnar. Eftir því sem DV kemst næst hefur ekki verið gefin út ákæra á hendur manninum og ekki var sett nálg- unarbann á hann. Eftir umfjöllun DV hafði maðurinn í hótunum við starfsmenn blaðsins . Hótað nauðgun fyrir ögrandi myndband Systurnar í sveitinni Hljómsveitt, Anna Tara og Katrín Helga Andrésardæt- ur, fengu grófar nafnlausar hótanir á netinu eftir útgáfu lagsins Næs í rassinn. Lagið og myndbandið þótti afar umdeilt. Þeir einstaklingar sem létu efni þess fara fyrir brjóstið á sér hótuðu söngkonunum öllu illu, meðal annars nauðgunum og ofbeldi. Hrædd við myndirnar Hún þorir ekki í sund og hún fer ekki í sturtu í leikfimi, segir móðir 13 ára stúlku. SviðSett Mynd SHutterStock „Ég gat ekki verndað hana“ n Mál sem varða ofsóknir eða ofbeldi á netinu falla oft á milli skips og bryggju Verslanir á Laugavegi 182 og í Smáralind · sími 512 1300 · epli.is iPad Air Verð frá: 89.990.- „Undir þetta fellur einnig andlegt of- beldi á heimili. Saksóknari „Í einhverjum tilfellum er verið að setja inn á svona síður kynlífsmyndbönd þar sem fyrrverandi kærastar eru að hefna sín,“ segir Kolbrún

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.