Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Page 36
Vikublað 2.–4. desember 201436 Fólk Vinir eftir skilnað n Mörg Hollywood-pör halda vinskap eftir sambandsslit n Eyða tíma saman með nýjum mökum S amböndin í Hollywood endast ekki alltaf að eilífu, ekki frekar en hjá okkur venjulega fólkinu. Oft finnst fólki best að slíta tengslin að öllu leyti eft- ir að það fer hvort í sína áttina, en stundum er það erfitt þegar börn eru í spilinu. Þá vilja sumir einfaldlega bara halda vin- skap við fyrrverandi maka, af því það var það sem þau gerðu best, að vera vinir. Hér eru nokk- ur fyrrverandi Hollywood-pör sem hafa haldið góðu vinasambandi eft- ir sambandsslit. n Orlando Bloom og Miranda Kerr Það er ekki langt síðan Orlando lenti í slagsmálum við Justin Bieber, en sagan segir að sá fyrrnefndi hafi verið að verja sína fyrrverandi eftir að Justin sagði eitthvað misjafnt um hana. Þau voru gift í þrjú ár og eignuðustu einn son sem þau hafa eytt mikilum tíma með saman eftir skilnaðinn. Þá hafa þau jafnvel sést á götum úti láta vel að hvort öðru og kyssast létt. Gwyneth Palthrow og Chris Martin Frá því að þau skildu hafa þau verið hinar fullkomnu fyrirmyndir fyrir aðra foreldra sem hafa skilið. Þau sýna hvort öðru þá virðingu að tala aldrei opinberlega um hvort annað. Þau mæta í afmæli og aðrar veislur hjá hvort öðru og gera ýmislegt saman með börnunum sínum. Þá virðist Gwyneth lítið kippa sér upp við að eyða tíma með núverandi kærstu Chris, Jennifer Lawrence. Demi Lovato og Joe Jonas Þessi tvö eru svo góðir vinir að þau birtast reglulega á tónleikum hjá hvort öðru og taka dúetta saman. Joe gerði þó þau mistök eftir sambandsslitin að hann minntist á Demi í frekar persónulegri grein sem hann skrifaði fyrir New York Magazine. Demi fyrirgaf honum þó fljótt og hefur hún sagt opinberlega að hún líti á hann sem hluta af fjölskyldu sinni. Ashlee Simpson og Pete Wentz Þessi skötuhjú voru gróin við hvort annað meðan þau voru gift og eignuðust einn son saman. Eftir skilnaðinn 2011 hafa þau verið miklir vinir og eiga góðar stundir saman ásamt syninum og nýjum mökum sínum. Hilary Duff og Mike Comrie Þau hafa eytt svo miklum tíma saman eftir að þau sögðust vera hætt saman að það er í raun óljóst hvort þau hættu í alvöru saman. Þau eyða miklum tíma með syni sínum og virðast njóta sín vel í félagsskap hvors annars. Hillary sagði nýlega að þeim þætti mjög vænt um hvort annað og að þau væru mjög slök yfir þessu öllu. Framtíðin yrði að leiða í ljós hvernig þetta yrði hjá þeim. Angelina Jolie og Billy Bob Thornton Samband þeirra varði ekkert sérstaklega lengi en var mjög ástríðufullt. Þau voru til að mynda þekkt fyrir að stunda kynlíf í limmósínum á leið á verðlaunahátíðir. Hún gekk með blóðdropa úr honum í nisti um hálsinn og þau létu flúra nöfn hvors annars á sig. Angelina er nú ham- ingjusamlega gift Brad Pitt og ala þau upp sex börn saman. Billy Bob er hins vegar duglegur að koma því á framfæri að þau taki enn þátt í lífi hvors annars. Kris og Bruce Jenner Þau bjuggu saman í rúmt ár eftir að þau höfðu ákveðið að skilja, áður en þau gengu frá skilnaðinum formlega. Á þeim tíma töluðu þau bara bara vel um hvort annað opinberlega. Þau gerðu aldrei kaupmála sín á milli og réðu ekki einu sinni lögfræðinga til að sjá um skilnaðinn. Þau skiptu einfaldlega öll- um eignum sjálf sín á milli. Þau eru það góðir vinir að þau eyddu saman tíma í París fyrir brúðkaup Kim Kardashian, dóttur Kris. Demi Moore og Ashton Kutcher Átta ára hjónaband þeirra endaði ekki vel, en Ashton hélt framhjá Demi með ungri háskólastúlku. Sagan segir þó að Demi fullyrði að sambandi þeirra hefði lokið því þau hafi ítrekað reynt að eignast barn, án árangurs. Þrátt fyrir allt sem gekk á við sambandsslitin þá hafa þau náð að halda góðum vinskap og virðast bera virðingu fyrir hvort öðru. Þegar núverandi kærasta Ashtons, Mila Kunis, varð ólétt þá var Demi ein af þeim fyrstu sem hann sagði tilkynnti það. Þau eru í raun svo góðir vinir að Demi mætti í nafnaveislu dóttur þeirra. Cameron Diaz og Justin Timberlake Þau hafa sýnt það og sannað að þau eru ekki aðeins fær um að halda vinskap eftir sambandsslitin heldur geta þau líka unnið saman með góðum árangri. Cameron hefur haldið því fram opinberlega að hún hafi haldið vinskap við alla sína fyrrverandi kærasta, hversu erfitt sem það kann að vera. Reese Witherspoon og Ryan Phillippe Reese og Ryan voru gift í sjö ár en skildu árið 2006 og hafa verið góðir vinir síðan. Þegar Reese lenti í því ásamt manni sínum, Jim Toth, að vera handtekin fyrir ósæmilega hegðun og akstur undir áhrifum áfengis, þá ákváðu þau Ryan að hann tæki börnin í sína umsjá. En þau hafa svo séð um þau saman. Þá vílar Ryan það ekki fyrir sér að hanga með þeim hjónum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.