Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2014, Síða 36
Vikublað 2.–4. desember 201436 Fólk
Vinir eftir skilnað
n Mörg Hollywood-pör halda vinskap eftir sambandsslit n Eyða tíma saman með nýjum mökum
S
amböndin í Hollywood
endast ekki alltaf að eilífu,
ekki frekar en hjá okkur
venjulega fólkinu. Oft finnst
fólki best að slíta
tengslin að öllu leyti eft-
ir að það fer hvort í sína
áttina, en stundum er
það erfitt þegar börn eru
í spilinu. Þá vilja sumir
einfaldlega bara halda vin-
skap við fyrrverandi maka, af
því það var það sem þau gerðu
best, að vera vinir. Hér eru nokk-
ur fyrrverandi Hollywood-pör sem
hafa haldið góðu vinasambandi eft-
ir sambandsslit. n
Orlando Bloom og
Miranda Kerr
Það er ekki langt síðan Orlando lenti í slagsmálum við
Justin Bieber, en sagan segir að sá fyrrnefndi hafi verið
að verja sína fyrrverandi eftir að Justin sagði eitthvað
misjafnt um hana. Þau voru gift í þrjú ár og eignuðustu
einn son sem þau hafa eytt mikilum tíma með saman
eftir skilnaðinn. Þá hafa þau jafnvel sést á götum úti
láta vel að hvort öðru og kyssast létt.
Gwyneth Palthrow og Chris Martin
Frá því að þau skildu hafa þau verið hinar fullkomnu fyrirmyndir fyrir aðra foreldra sem hafa skilið. Þau sýna hvort öðru þá
virðingu að tala aldrei opinberlega um hvort annað. Þau mæta í afmæli og aðrar veislur hjá hvort öðru og gera ýmislegt saman
með börnunum sínum. Þá virðist Gwyneth lítið kippa sér upp við að eyða tíma með núverandi kærstu Chris, Jennifer Lawrence.
Demi Lovato og Joe Jonas
Þessi tvö eru svo góðir vinir að þau birtast reglulega á tónleikum hjá hvort öðru og taka
dúetta saman. Joe gerði þó þau mistök eftir sambandsslitin að hann minntist á Demi í
frekar persónulegri grein sem hann skrifaði fyrir New York Magazine. Demi fyrirgaf honum
þó fljótt og hefur hún sagt opinberlega að hún líti á hann sem hluta af fjölskyldu sinni.
Ashlee Simpson
og Pete Wentz
Þessi skötuhjú voru gróin við hvort annað
meðan þau voru gift og eignuðust einn son
saman. Eftir skilnaðinn 2011 hafa þau verið
miklir vinir og eiga góðar stundir saman
ásamt syninum og nýjum mökum sínum.
Hilary Duff og
Mike Comrie
Þau hafa eytt svo miklum tíma
saman eftir að þau sögðust vera
hætt saman að það er í raun óljóst
hvort þau hættu í alvöru saman.
Þau eyða miklum tíma með syni
sínum og virðast njóta sín vel í
félagsskap hvors annars. Hillary
sagði nýlega að þeim þætti mjög
vænt um hvort annað og að
þau væru mjög slök yfir þessu
öllu. Framtíðin yrði að leiða í ljós
hvernig þetta yrði hjá þeim.
Angelina
Jolie og
Billy Bob
Thornton
Samband þeirra varði ekkert
sérstaklega lengi en var mjög
ástríðufullt. Þau voru til að
mynda þekkt fyrir að stunda
kynlíf í limmósínum á leið
á verðlaunahátíðir. Hún
gekk með blóðdropa
úr honum í nisti um
hálsinn og þau létu
flúra nöfn hvors annars á
sig. Angelina er nú ham-
ingjusamlega gift Brad
Pitt og ala þau upp sex
börn saman. Billy Bob
er hins vegar duglegur
að koma því á framfæri
að þau taki enn þátt í lífi
hvors annars.
Kris og Bruce Jenner
Þau bjuggu saman í rúmt ár eftir að þau höfðu ákveðið að
skilja, áður en þau gengu frá skilnaðinum formlega. Á þeim
tíma töluðu þau bara bara vel um hvort annað opinberlega.
Þau gerðu aldrei kaupmála sín á milli og réðu ekki einu sinni
lögfræðinga til að sjá um skilnaðinn. Þau skiptu einfaldlega öll-
um eignum sjálf sín á milli. Þau eru það góðir vinir að þau eyddu
saman tíma í París fyrir brúðkaup Kim Kardashian, dóttur Kris.
Demi Moore og
Ashton Kutcher
Átta ára hjónaband þeirra endaði ekki vel, en Ashton
hélt framhjá Demi með ungri háskólastúlku. Sagan
segir þó að Demi fullyrði að sambandi þeirra hefði
lokið því þau hafi ítrekað reynt að eignast barn, án
árangurs. Þrátt fyrir allt sem gekk á við sambandsslitin
þá hafa þau náð að halda góðum vinskap og virðast
bera virðingu fyrir hvort öðru. Þegar núverandi kærasta
Ashtons, Mila Kunis, varð ólétt þá var Demi ein af þeim
fyrstu sem hann sagði tilkynnti það. Þau eru í raun svo
góðir vinir að Demi mætti í nafnaveislu dóttur þeirra.
Cameron
Diaz og Justin
Timberlake
Þau hafa sýnt það og sannað að
þau eru ekki aðeins fær um að halda
vinskap eftir sambandsslitin heldur
geta þau líka unnið saman með góðum
árangri. Cameron hefur haldið því fram
opinberlega að hún hafi haldið vinskap
við alla sína fyrrverandi kærasta,
hversu erfitt sem það kann að vera.
Reese Witherspoon
og Ryan Phillippe
Reese og Ryan voru gift í sjö ár en skildu árið
2006 og hafa verið góðir vinir síðan. Þegar Reese
lenti í því ásamt manni sínum, Jim Toth, að vera
handtekin fyrir ósæmilega hegðun og akstur
undir áhrifum áfengis, þá ákváðu þau Ryan að
hann tæki börnin í sína umsjá. En þau hafa svo
séð um þau saman. Þá vílar Ryan það ekki fyrir sér
að hanga með þeim hjónum.