Iðjuþjálfinn - 01.11.1994, Blaðsíða 29
Lilja Ingvarsson, iöjuþjálfi
27
HANDLEIÐ SLA NEMA
Mig langar að deila með ykkur þeirri
ánægjulegu reynslu sem ég varð fyrir
í sumar en það var að ég tók að mér
að handleiða íslenskan iðjuþjálfanema
í 12 vikna verknámi. Hún var í fyrra
12 vikna verknámi sínu og fékkst við
meðferð sjúklinga með líkamleg vand-
amál.
Ég hafði ekki mikla reynslu í að hand-
leiða nema en hafði þó ásamt öðrum
iðjuþjálfa handleitt nema í 12 vikna
verknámi 1985 þá nýkomin úr námi
sjálf. Auðvitað var tilhugsunin um
þetta verkefni núna blandin kvíða og
tilhlökkun. Kvíða yfir því að vita nú
ekki nógu mikið til að kenna neman-
um, geta ekki svarað öllum spurning-
um og geta ekki haldið skipulagi og
haldið utan um alla þræði sem fylgja
því að hafa nema. En tilhlökkunin var
að sjálfsögðu yfir því að takast á við
nýtt og spennandi verkefni. Þetta var
svo sannarlega spennandi og ekki síst
skemmtilegt. Það er ótrúlega gefandi
að hjálpa iðjuþjálfanema að taka
fyrstu skrefin í ferlinu í því að kom-
ast að því að fræðilega þekkingin sem
lærð er í skóla nýtist í raunveru-
leikanum og virkar. Það er stórkost-
legt að fylgjast með einstaklingi þrosk-
ast og vaxa sem fagmanneskja, frá því
að vera óöruggur nemi í það að vera
tilbúin að starfa sem fullgildur iðju-
þjálfí.
Að sjálfsögðu er mikil vinna sem
fylgir því að hafa nema og oft álag að
vera alltaf til staðar til að svara spurn-
ingum, spjalla um frammistöðu og
gefa svörun (feedback), en það er líka
ótrúlega gefandi. Mér finnst þetta
mikilvægur þáttur í okkar starfi að
handleiða nema og mikilvægt að
einhvers konar handleiðslunám komist
í gang þannig að þeir sem hafa áhuga
geti aflað sér frekari þekkingar í þess-
um efnum. Við megum ekki gleyma
því að einhvern tíma kemur náms-
braut við Háskóla Islands og þá verð-
um við að handleiða nema og þá er
gott að hafa reynslu.