Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Side 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 5
Tímarit hjúkrunarfræðinga mun fylgjast með þessu en mun einnig sjálft breytast í
takt við að félagið fer að vinna á nýjan hátt. Hvað það þýðir fyrir tímaritið er alveg
óráðið. Möguleikarnir að sækja fram og búa til enn betra blað eru margir. Það er því
spennandi og áhugaverður tími framundan fyrir ritstjóra og fyrir alla sem vilja taka
þátt í að móta blaðið.
Alveg óháð þessum breytingum er það skoðun ritstjóra að tímaritið eigi að birta
miklu fleiri greinar sem fjalla um hvað hjúkrunarfræðingar gera fyrir skjólstæðinga
sína, í daglegu tali klínískar greinar. En ekki er auðvelt að birta það sem er ekki
skrifað. „Hvar eru eiginlega íhlutanirnar?“ spurði erlendur fyrirlesari nýlega á
ráðstefnu um fjölskylduhjúkrun. Ég tek undir það – hvar eru greinarnar um íhlutanir
hjúkrunarfræðinga?
Í þessu tölublaði er hefðbundin blanda af faglegu og félagslegu efni, ásamt
umfjöllun um hjúkrunarfræðinga og skoðanaskipti. Nefna má umfjöllun um rafræna
lyfjaskráningu á Landspítala þar sem hjúkrunarfræðingar segja frá jákvæðum og
neikvæðum hliðum þess kerfis sem nú er verið að innleiða. Fræðigreinarnar eru
tvær og fjalla um mikilvæg efni – afleiðingar kynferðislegs ofbeldis og alvarlega veika
sjúklinga á legudeild. Þá eru fjögur viðtöl við hjúkrunarfræðinga og tengjast tvö
þeirra umfjöllun um heimahjúkrun Heilsugæslunnar í Reykjavík og flutning hennar til
Reykjavíkurborgar. Í félagslega hlutanum er fjallað um aðalfundinn, um fæðingarorlof
og um dóm sem féll hjúkrunarfræðingi í óhag.
Mörgum til ánægju er engin krossgáta en samt er nóg af efni að lesa og íhuga í
sumar. Ritstjórnin óskar öllum félagsmönnum og öðrum lesendum góðs sumars.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Christer Magnusson
Tekið er á móti efni til birtingar í netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Ragnheiður Alfreðsdóttir, formaður
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Hildur Magnúsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Fréttaefni: Christer Magnusson,
Aðalbjörg Finnbogadóttir
Ljósmyndir: Christer Magnusson,
Sigurður Bogi Sævarsson o.fl.
Próförk: Ágústa Þorbergsdóttir
Auglýsingar: Mark – markaðsmál,
Þórdís Una Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4100 eintök
Pökkun: Iðjuþjálfun Landspítala
SUMARIÐ FRAMUNDAN
Nú er aðalfundur að baki og búið að kjósa
nýja stjórn. Ný lög félagsins koma nú að
fullu til framkvæmda og mun það breyta
skipulagi og starfsháttum félagsins talsvert.
Margir félagsmenn eiga eftir að átta sig á
þessum breytingum. Til dæmis á starfsemi
svæðisdeilda eftir að taka stakkaskiptum.
Úrsögn FÍH úr Bandalagi háskólamanna kallar
á endurskipulagningu og aukna þjónustu við
félagsmenn.
Christer Magnusson.
RitstjóraspjallSkjót verkun
eykur lífsgæði
· Morguneinkenni einstaklinga með langvinna
lungnateppu hafa mikil áhrif á lífsgæði þeirra
· Symbicort FORTE verkar fljótt á morgnana,
bætir þol og eykur þannig lífsgæði einstaklinga
með langvinna lungnateppu 1)2)3)
1) Domingo-SalvanyA. et al AJRCCM 2002:166;680-685
2) Miravitlles M Quality of Life Res 2006:15;471-480
3) Halpin D. et al Respir Med 2008, 120;1615-1624