Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Page 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Page 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 20096 Formaður félagsins, Elsa B. Friðfinnsdóttir, setti fundinn. Í ávarpi sínu ræddi hún þá erfiðu og sérkennilegu tíma sem nú eru uppi í íslensku þjóðlífi og heilbrigðiskerfi. Benti hún á að þrátt fyrir samdrátt og hagræðingu í heilbrigðiskerfinu ættu hjúkrunarfræðingar nú einstakt sóknarfæri þar sem skortur á hjúkrunarfræðingum hafi sveiflast á tæpu ári frá því að vera 20% í um 3% og víða væri fullmannað af hjúkrunarfræðingum. Slík staða gæfi hjúkrunarfræðingum gríðar- lega möguleika á að efla gæði hjúkrunar og að sýna fram á árangur hjúkrunarmeðferða. Hjúkrunarfræðingar geti einnig tekið að sér aukin verkefni, til dæmis innan heilsugæslunnar í almennri móttöku og heilsuvernd og stóraukið almenna og sérhæfða heimahjúkrun. Sagði hún hjúkrunarfræðinga eiga að efla sjálfstæð störf hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni, taka virkari þátt í eftirliti og meðferð skjólstæðinga með langvinna sjúkdóma, til dæmis með móttökum á hjúkrunarstofum og sækja það fast að hjúkrunarfræðingar fái takmarkað leyfi til lyfjaávísana. Elsa lagði áherslu á að verkefnin, sem fram undan eru, verði ekki leyst nema með samstilltu átaki landsmanna. Þar mætti enginn skorast undan ef íslenskt samfélag og íslensk menning ætti að halda velli. Sagði hún það skyldu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að vinna með stjórnvöldum á hverjum tíma. Hjúkrunarfræðingar byggju yfir þekkingu og reynslu sem gæti skipt sköpum í þeirri forgangsröðun verkefna sem fram undan er og til að varna því að stjórnvöld grípi til einhverra þeirra úrræða sem valda óafturkræfu tjóni á heilbrigðiskerfinu. Lagði hún áherslu á að sú hagræðing, sem krafist verði í heilbrigðiskerfinu, verði ekki tekin út á launum heilbrigðisstarfsmanna Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is AÐALFUNDUR 2009 Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga 12. maí 2009. Þessi aðalfundur var um margt sögulegur. Á fundinum tóku gildi ný lög félagsins sem staðfesta nýtt skipulag Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þar sem meðal annars er horfið frá fulltrúalýðræði yfir í beint lýðræði. Með því að leggja af fulltrúaþing kjörinna fulltrúa svæðisdeilda, sem haldin voru annað hvert ár og taka þess í stað upp árlegan aðalfund þar sem öllum félagsmönnum er heimil þátttaka, er æðsta vald félagsins flutt til félagsmanna. Atkvæðisbærir aðalfundarmenn voru skráðir 112. Það voru því fleiri félagsmenn sem skráðu sig á þennan aðalfund en sóttu fulltrúaþing en þar sátu 80 fulltrúar. Fráfarandi stjórn. Sitjandi frá vinstri: Stefanía Birna Arnardóttir varamaður, Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður, Halla Grétarsdóttir 1. varaformaður. Standandi frá vinstri: Fríða Björg Leifsdóttir ritari, Elín Ýrr Halldórsdóttir 2. varaformaður, Hrund Helgadóttir meðstjórnandi, Hólmfríður Kristjánsdóttir meðstjórnandi og Guðrún Gyða Ölvisdóttir varamaður. Á myndinni vantar Eygló Ingadóttur gjaldkera. heldur eingöngu með skýrri forgangsröðun stjórnvalda, með sameiningu eða lokunum stofnana og með takmörkun meðferða. Skoraði hún á fundarmenn að taka virkan þátt í umræðum og ákvörðunum á eigin vinnustöðum og nærsamfélagi. Að lokum sagði hún „Ég hvet ykkur einnig til að hafa orð Vigdísar Magnúsdóttur, heiðursfélaga í félaginu okkar, fyrr- verandi hjúkrunarforstjóra og forstjóra

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.