Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 11
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 7 Landspítalans – sem við kvöddum í liðinni viku – sem hvatningu þegar hún þakkaði fyrir að fá að fara til vinnu á hverjum degi, hafa væntingar og finnast gaman.“ Á fundinum voru tekin fyrir lögboðin mál aðalfundar. Reikningar félagsins voru lagðir fram og samþykktir svo og fjárhagsáætlun næsta árs. Starfsáætlun félagsins var einnig samþykkt. Þar segir meðal annars að félagið skuli hafa skýra stefnu í hjúkrunar- og heilbrigðismálum og láta sig varða og hafa frumkvæði og taka virkan þátt í opinberri umræðu um heilbrigðismál og heilbrigðisþjónustu á grundvelli stefnu félagsins. Í kjara- samningum, hvort heldur miðlægum eða stofnanasamningum, verði ávallt lögð áhersla á að kjör hjúkrunarfræðinga taki mið af menntun, sérhæfni og ábyrgð og að þau séu að minnsta kosti sambærileg við kjör annarra háskólamanna. Félagið haldi áfram að vera virkt í alþjóða- samstarfi og það eignist fulltrúa í stjórn Evrópusamtaka hjúkrunarfræðinga (EFN). Rekstur félagssjóðs verði hóflegur og mæti kröfum félagsmanna um þjónustu Á fyrsta fundi stjórnar 28 maí var Aðalheiður D. Matthíasdóttir kosin varaformaður, Ragnheiður Gunnarsdóttir gjaldkeri og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir ritari. Fyrirkomulagið við kosningu stjórnar er nokkuð flókið. Formaður er kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna til tveggja ára í senn. Elsa B. Friðfinnsdóttir, núverandi formaður, gaf ein kost á sér til embættis formanns og var hún því sjálfkjörin. Sjö fulltrúar eru kosnir á aðalfundum svæðisdeilda og eru það að jafnaði formenn svæðisdeilda sem setjast í stjórn. Fagdeildir geta boðið fram fulltrúa í sjö sæti og eru þeir kosnir á aðalfundi. Í þetta sinn voru einmitt sjö í framboði og þeir því sjálfkjörnir. Að lokum geta félagsmenn boðið sig fram í þrjú sæti. Sex gáfu kost á sér á aðalfundi og var kosið milli þeirra. Þeir þrír, sem fengu flest atkvæði, voru Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Hildur Einarsdóttir og Ragnheiður Gunnarsdóttir. Í stjórninni eru engir varamenn og stendur stóll því tómur ef viðkomandi getur ekki mætt á fundi. Ekki er gert ráð fyrir að fagdeildir og svæðisdeildir sendi annan fulltrúa í sinn stað. Stjórnin vinnur ekki einungis á fundum heldur notast FÍH við sérstakan verkefnavef. Þar fer fram umræða, birt eru skjöl til yfirlestrar, fylgst er með framvindu verkefna og fleira í þeim dúr. Ný stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Í aftari röð frá vinstri: Helga Atladóttir frá svæðisdeild Vesturlands, Stella S. Hrafnkelsdóttir frá fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga, Jóhanna Oddsdóttir frá svæðisdeild Vestfjarða, Jónbjörg Sigurjónsdóttir frá fagdeild öldrunarhjúkrunarfræðinga, Hildur Einarsdóttir, Þórdís Borgþórsdóttir frá fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga, Gunnar Helgason frá fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga, Íris Dröfn Björnsdóttir frá svæðisdeild Suðurnesja, Gunnhildur Gunnarsdóttir í forföllum Guðbjargar Pálsdóttur frá fagdeild bráðahjúkrunarfræðinga, Fjóla Ingimundardóttir frá svæðisdeild Suðurlands og Svanhildur Jónsdóttir frá fagdeild skurðstofuhjúkrunarfræðinga. Í fremri röð frá vinstri: Dóróthea Bergs frá fagdeild taugahjúkrunarfræðinga, Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður félagsins, Aðalheiður D. Matthíasdóttir frá svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins, Ragnheiður Gunnarsdóttir og Kristín Thorberg frá svæðisdeild Norðurlands.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.