Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 13
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 9
Fundurinn samþykkti 5 ályktanir um
mál er varða heilbrigðis þjónustuna
og kjarasamningagerð.
Ályktanir
Sparnaður og hagræðing í heilbrigðiskerfinu
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga (FÍH), haldinn
12. maí 2009, óskar nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í þeim
erfiðu verkefnum sem fram undan eru. Aðalfundur FÍH vill
ítreka nauðsyn þess að haft sé samráð við heilbrigðisstéttir
varðandi aðgerðir sem snerta skjólstæðinga þeirra sem
og vinnuumhverfi og kjör heilbrigðisstarfsmanna. Aðal-
fundurinn skorar á ríkisstjórnina að gæta þess að sparnaður
og hagræðing í heilbrigðiskerfinu komi ekki niður á öryggi
sjúklinga. Einnig vill félagið minna á mikilvægi þess að
halda áfram úti öflugri heilsuvernd í samfélaginu og koma
þannig í veg fyrir að ástandið nú hafi skaðleg áhrif á
heilsufar þjóðarinnar til langs tíma.
Heimahjúkrun og hjúkrunarheimili
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldinn 12.
maí 2009, hvetur nýja ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs að falla frá áætlunum um
að færa yfirstjórn heimahjúkrunar og hjúkrunarheimila frá
heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis.
Nýjar reglur um vistunarmat aldraðra leiða til þess að eingöngu
þeir aldraðir, sem hafa fjölþætt heilbrigðisvandamál og þurfa
mikla hjúkrunarþjónustu, vistast nú á hjúkrunarheimilum
enda úrræði félagsþjónustunnar þá fullreynd. Þjónusta á
hjúkrunarheimilum er fyrst og fremst heilbrigðisþjónusta og
getur því ekki fallið undir hugmyndafræði félagsmála.
Samningar um sjálfstæðan rekstur
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga, haldinn
12. maí 2009, hvetur stjórnvöld til að ganga til samninga
við hjúkrunarfræðinga sbr. lög um heilbrigðisþjónustu frá
1. september 2007 þar sem kveðið er skýrt á um heimild
ráðherra til að semja um og bjóða út bæði rekstur og
kaup á heilbrigðisþjónustu. Aðalfundurinn bendir á að
styttri legutími á sjúkrahúsum og áhersla á að aldraðir og
langveikir búi sem lengst á eigin heimilum kalli á aukna
sérhæfða hjúkrunarþjónustu utan stofnana. Með slíkum
samningum má bæta gæði í heilbrigðisþjónustu og draga
úr kostnaði.
Um byggingu nýs Landspítala
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga, haldinn
12. maí 2009, lýsir fullum stuðningi við framkomnar tillögur
Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra LSH, um byggingu nýs
Landspítala. Aðalfundurinn leggur ríka áherslu á mikilvægi
þess að sameina starfsemi spítalans á einn stað hið
fyrsta. Slík sameining mun án efa leiða til aukinna gæða
þjónustunnar og meiri hagkvæmni í rekstri.
Um kjarasamninga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga, haldinn 12.
maí 2009, hvetur stjórnvöld til þess að ljúka sem fyrst gerð
kjarasamnings við félagið. Við þær efnahagsaðstæður,
sem þjóðin glímir nú við, er mikilvægara en nokkru sinni
að festa sé í kjaramálum. Slíkt auðveldar stjórnvöldum,
stjórnendum stofnana og launamönnum að gera raunhæfar
áætlanir í rekstri. Það leiðir einnig til stöðugleika í starfsemi
sem er einn grunnþátta góðrar heilbrigðisþjónustu.
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga var í ár haldinn 12. maí sem er
alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga. Dagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim undir
yfirskriftinni „Gæði í þjónustu við almenning. Hjúkrunarfræðingar leiða nýjungar“.
Í tilefni dagsins voru nýjungar í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu, sem hjúkrunarfræðingar
leiða eða vinna að, kynntar með veggspjöldum á aðalfundinum. Fræðslunefnd
félagsins hafði veg og vanda af undirbúningi veggspjaldakynningarinnar í samstarfi
við fagdeildir félagsins. Meðal annars kynnti fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga
þjónustu og nýjungar sem hjúkrunarfræðingar leiða í mæðravernd, ung- og
smábarnavernd, skólaheilsugæslu, hjúkrunarmóttöku og heimahjúkrun, fagdeild
krabbameinshjúkrunarfræðinga kynnti nokkrar nýjungar í hjúkrun krabbameinssjúklinga
og fagdeild gigtarhjúkrunarfræðinga kynnti starfsemi dagdeildar fyrir gigtarsjúka á LSH.
Fleiri fagdeildir voru með kynningar bæði á fagdeildunum sjálfum og starfsemi þeirra.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. maí