Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 14
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200910 Með ráðningu á Landspítala er Hulda komin heim til Íslands. Hún fluttist til Noregs í janúar 1989 og fannst henni mjög gott að búa úti. „Fólk er að spyrja mig hvernig er í Noregi en ég get eiginlega bara sagt hvernig er í Ósló. Noregur er svo langt land og menningin svo ólík þannig að maður þarf að passa sig að alhæfa ekki. Ósló er ekki lengur sveitabær, borgin er orðin stórborg eins og New York og Kaupmannahöfn. Þar fæst allt, bæði gott eins og listir og góð veitingahús og slæmt eins og eiturlyfjanotkun en hún er orðin mjög mikil. Mér leið mjög vel í Ósló og ég kunni vel við veðráttuna og nálægðina við náttúruna.“ Hulda segir að árstíðaskiptin á Óslóarsvæðinu séu mjög skýr og það fari til dæmis ekki milli mála þegar vorið byrjar, þá er mikil litadýrð þegar blómin og trén springa út. Þessi skýru skil er eitt af því sem hún mun sakna hér á Íslandi. Christer Magnusson, christer@hjukrun.is „Allar breytingar þarf að ræða á faglegum forsendum. Stjórnun þarf að byggjast á gagnreyndri þekkingu og ekki á duttlungum stjórnandans,“ segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala. VAKTASKIPTI Á LANDSPÍTALA Hulda Gunnlaugsdóttir er hjúkrunarfræðingur sem hefur verið mikið í fréttum undanfarið og mun eflaust vera áfram. Fyrir hálfu ári var hún ráðin sem forstjóri Landspítala og er það eitt stærsta verkefnið sem heilbrigðisstarfsmaður getur ráðist í. Forvitnilegt er að heyra hvernig gengur og hvert stefnir í hennar huga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.