Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Side 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Side 19
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 15 Margir hjúkrunarfræðingar þurfa að taka til stungulyf og nálarstungur eru algengar hjá hjúkrunarfræðingum. fyrir sýkingu vegna lifrarbólguveira er heilbrigðisstarfsmönnum boðið upp á bólusetningar. Gefnar eru þrjár sprautur á 6 mánaða tímabili. Þótt sumir virðist ekki mynda mótefni eftir bólusetningu virðist bóluefnið þrátt fyrir það vernda gegn sýkingu því að ekki er vitað til að neinn bólusettur hafi sýkst. Ekki er til bóluefni gegn lifrarbólguveiru C en smit hjá heilbrigðisstarfsfólki vegna hennar er mjög sjaldgæft. Heilbrigðisstarfsmenn smitast einnig afar sjaldan af HIV-veirum í vinnunni. Forvarnir gegn smitsjúkdómum felast ekki hvað síst í hreinlæti, að farið sé með blóðmengaðar sprautunálar og önnur áhöld eins og ævinlega séu möguleikar á smiti, að ítrasta hreinlætis sé gætt í meðferð á hráka og grímur notaðar þegar það á við. Bæklingur um líffræðilega skaðvalda er aðgengilegur á heimasíðu Vinnueftirlitsins. Bólusetningar gegn berklum eru ekki gerðar hjá heilbrigðisstarfsmönnum hérlendis eins og tíðkaðist áður fyrr en mælt er með að starfsmenn fari reglulega í berklapróf. Hjúkrunarfræðingar hérlendis hafa smitast af berklum sem rekja mátti til vinnunnar. Ekki er vitað til þess að þeir hafi fengið bætur vegna þessa en hafa skal í huga að atvinnutengda sjúkdóma og atvinnusjúkdóma ber að tilkynna til Vinnueftirlitsins á þar til gerðum eyðublöðum sem sækja má á vef Vinnueftirlitsins. Á heimasíðu Vinnueftirlitsins er einnig að finna lista yfir atvinnusjúkdóma sem Vinnueftirlitið óskar eftir að séu tilkynntir. Inflúensa er dæmi um smitsjúkdóm sem erfitt er að vita nákvæmlega hvar fólk smitast af en sýnt hefur verið fram á að ungt, hraust fólk, sem vinnur á heilbrigðisstofnun og lætur ekki bólusetja sig gegn inflúensu, er óbeint að setja skjólstæðinga sína í aukna smithættu því að það getur borið smit inn á stofnanirnar. Mikið hefur verið skrifað um nauðsyn árlegrar inflúensubólusetningar og mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk láti bólusetja sig. Smitleiðir inflúensu eru bæði loftborið úðasmit og snertismit því að veiran sest á yfirborð í kringum þá sem eru veikir og getur lifað þar töluverðan tíma. Tíður og vandaður handþvottur/ hreinsun getur fyrirbyggt smit. MÓSA (methicillin ónæmur staphylo- coccus aureus) getur verið vandamál inni á sjúkrahúsum. Hjúkrunar fræðingar geta smitast af MÓSA (og fleiri gerðum af bakteríum sem orðnar eru ill- eða ónæmar fyrir sýklalyfjum) í vinnu sinni og sumir jafnvel sýkst. Nokkur dæmi eru um að hjúkrunarfræðingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn hafi verið settir í svo kallaða upprætingarmeðferð vegna MÓSA til að reyna að losa bakteríuna af viðkomandi einstaklingum. Þetta er fyrst og fremst húðbaktería og handhreinsun með þvotti eða spritti best til að rjúfa smitleiðina. Eins og áður segir er hægt að fá greinargóðar upplýsingar um smit- sjúkdóma og varnir gegn þeim hjá landlæknisembættinu. Lyf og önnur efni Ýmsir lyfjaflokkar og efni, sem notuð eru til sótthreinsunar, geta verið hættuleg ef óvarlega er með þau farið. Hér er til dæmis um að ræða frumuhemjandi lyf (cytostatica), svæfingarlyf, glaðloft, fúkkalyf og sótthreinsiefni. Grunsemdir hafa verið uppi um það að meðhöndlun frumuhemjandi lyfja

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.