Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 24
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200920
Þann 30. desember á síðasta ári
undirrituðu Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri og Guðlaugur Þór Þórðarson,
þáverandi heilbrigðisráðherra, samning
um flutning heimahjúkrunar frá ríki yfir
til borgar. Samningurinn er grundvöllur
þriggja ára tilraunarverkefnis sem gildir
út árið 2011 og er markmið hans meðal
annars að gera fleirum en áður kleift að
búa heima þrátt fyrir öldrun, fötlun, veikindi
eða skerta getu til daglegra athafna.
Samkvæmt samningnum sér borgin
um rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík
allan sólarhringinn alla daga ársins. Þar
fyrir utan tekur samningurinn til reksturs
sólarhringsheimahjúkrunar árið um kring
í Seltjarnarnesbæ, reksturs kvöld-,
nætur-, helgar- og helgidagaþjónustu
heimahjúkrunar í Mosfellsbæ að hluta
og rekstur næturþjónustu í Kópa-
vogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Í tilefni
af samningnum var stofnuð ný skipu-
lagseining innan velferðarsviðs Reykja-
víkur borgar, Heimaþjónusta Reykja-
víkur, og hefur Berglind Magnús dóttir
öldrunarsálfræðingur verið ráðinn yfir-
maður einingarinnar.
Runnið liðugt í gegn
„Stjórnsýslulega tilheyrir heimahjúkrunin
borginni. Launin greiðir ríkið nema hvað
allir nýir starfsmenn frá 1. janúar 2009
eru ráðnir skv. launakjörum borgarinnar
og viðkomandi stéttarfélags. Í raun
tel ég að starfsfólkið hér eigi að finna
afskaplega lítið fyrir breytingunni og
allra síst skjólstæðingar okkar. Þeir fá
þjónustuna með sambærilegum hætti
og var og vonandi verður hún enn betri í
fyllingu tímans,“ segir Þórdís.
„Þessi breyting hefur runnið afskaplega
liðugt í gegn. Reyndar er ég enn að læra
á hvernig stjórnkerfi Reykjavíkurborgar
virkar; boðleiðirnar eru aðrar en hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og
stjórnkerfið talsvert öðruvísi. Öllu slíku
þarf maður að venjast,“ segir Þórdís
sem bætir við að reynsla Sveitarfélagsins
Hornafjarðar og Akureyrarbæjar, sem
annast heimahjúkrun, hafi verið höfð til
hliðsjónar í þessu verkefni. Einnig hafi
verið horft til Norðurlandanna en þar er
hefð fyrir því að sveitarfélög hafa alla
nærþjónustu við íbúa á sinni hendi.
Tólf teymi
Hjá Heimaþjónustu Reykjavíkur starfa
á bilinu 150 til 160 starfsmenn og er
Berglind Magnúsdóttir forstöðumaður.
Að auki starfa hjá þjónustumiðstöðvum
borgarinnar um 340 starfsmenn sem sinna
félagslegri heimaþjónustu og veitir Sigrún
Sigurður Bogi Sævarsson, sigbogi@simnet.is
„ÁVINNINGURINN ER MARGÞÆTTUR“
HEIMAHJÚKRUN TIL REYKJAVÍKURBORGAR
„Ávinningur þess að heimahjúkrun sé í umsjón
borgar en ekki ríkis, eins og áður var, er að mínum
dómi margþættur. Samstarfið leiðir til aukinnar
samfellu í þjónustunni fyrir einstaklinga í heimahúsum
sem ætti að skila sér í betri heildarþjónustu.
Félagslega heimaþjónustan er áfram gerð út frá
þjónustumiðstöðvum borgarinnar. Ég sé raunar
fyrir mér að samstarfið verði enn nánara þegar
málefni fatlaða verða komin yfir til sveitarfélaganna í
ársbyrjun 2011, eins og nú er stefnt að,“ segir Þórdís
Magnúsdóttir, forstöðumaður heimahjúkrunar hjá
Heimaþjónustu Reykjavíkur.
„Í raun tel ég að starfsfólkið hér eigi að
finna afskaplega lítið fyrir breytingunni
og allra síst skjólstæðingar okkar,“ segir
Þórdís, forstöðumaður heimahjúkrunar hjá
Heimaþjónustu Reykjavíkur.