Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Page 26
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200922
– Háskólasjúkrahúsi og Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
En hverjir eiga rétt á heimaþjónustu?
Nefna má dæmisögu af manni sem
handleggsbrotnaði og fékk góða aðstoð
nágranna við að komast í föt á morgnana
og sinna nauðsynlegum heimilisstörfum.
Útilokað var að treysta á stuðning ættmenna
sem búa úti á landi. Það var svo ekki fyrr en
viðkomandi var laus úr fjötrum sem hann
leiddi hugann fyrst að því að ef til vill átt rétt
á einhvers konar stuðningi.
„Fólk í svona stöðu á fortakslaust rétt
á heimaþjónustu, sem er meðal annars
hugsuð sem tímabundinn stuðningur eftir
slys, veikindi eða annað. Líklega hefði
þessi maður getað sótt um félagslega
heimaþjónustu til þjónustumiðstöðvar í
sínu hverfi. Beiðni um heimahjúkrun þarf
alltaf að koma með formlegum hætti
annaðhvort frá sjúkrahúsi, heilsugæslunni
eða öðru heilbrigðisstarfsfólki,“ segir
Þórdís sem bætir við að margir af
skjólstæðingum heimahjúkrunar njóti
aðeins tímabundinnar þjónustu.
Í fyrra hafi til dæmis 13% þeirra sem
þjónusta var veitt til á árinu farið í varan-
lega vistun á hjúkrunarheimilum, 12%
síðastliðið haust. Enda þótt ekki hafi
verið bitið úr nálinni um afleiðingar þess
er þó ljóst að víða þarf að skera niður.
Lengi hefur staðið til að gera átak í
byggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða en
vísast verða þau áform endurskoðuð
vegna kostnaðar. Í þeim samningi, sem
flutningur heimahjúkrunar frá ríki til borgar
byggist á, er raunar lagt upp með að
með efldri heimaþjónustu geti fólk, sem
þarf á hjúkrunaraðstoð að halda, verið
lengur heima en verið hefur. Ný viðmið í
vistunarmati gera raunar ráð fyrir þessu
sama, að inn á hjúkrunarheimili fari aðeins
það fólk sem mestrar aðhlynningar þarf.
„Ef til vill má segja að margt af því fólki,
sem hefur farið inn á hjúkrunarheimili,
hefði getað verið lengur heima með góðri
aðstoð. Hitt ber á að líta, að í sumum
tilvikum er bakland einstaklinganna
veikt, ellegar þeir vilja ekki leggja það á
ættmennin sín að sjá um sig. Sömuleiðis
má segja að fólk, sem á til dæmis erfitt
með gang, getur mjög illa verið í íbúð á
fjórðu hæð í lyftulausri blokk en því eru
flestir vegir færir sé húsnæðið hentugra.
Þetta breytir þó ekki þeirri staðreynd að á
næstu árum er full þörf á átaki í byggingu
hjúkrunarheimila því að á síðustu
misserum hefur verið gerð gangskör í
að fækka eða leggja af fjölbýlisherbergi
enda eru þau alls ekki í samræmi við
kröfur og viðhorf dagsins í dag. Þetta
hefur fækkað þeim hjúkrunarrýmum sem
fyrir eru og því verður að mæta enda
dugar efld heimaþjónusta ekki þörfum
allra. Þá er í mannfjöldaspá Hagstofunnar
er gert ráð fyrir töluverðri fjölgun í elstu
aldurshópum þjóðarinnar á næstu
áratugum og samkvæmt þeirri staðreynd
verða stjórnvöld að starfa,“ segir Þórdís
Magnúsdóttir að síðustu.
lögðust inn á sjúkrahús og komu heim
aftur. Ámóta oft tók hin félagslega
heimaþjónusta við keflinu. Um 7% féllu
frá. Í 31% tilvika náðu einstaklingar meðal
annars með góðum stuðningi starfsfólks
heimahjúkrunar þeirri heilsu að liðveisla
heimahjúkrunar varð betri.
Þekking iðjuþjálfa nýtist vel
Í mörgum tilvikum þarf hins vegar
langvarandi þjónustu, hvort heldur er um
að ræða líkamlega eða andlega þjónustu.
Margir hafa til dæmis notið aðstoðar
heimahjúkrunar í mörg ár og getað verið
á sínu heimili. Í mörgum þessara tilvika
þarf oft að endurmeta þjónustuna og
aðstæður á heimilinu. Þar nýtist kunnátta
og þekking iðjuþjálfa heimahjúkrunar sér
mjög vel, svo sem með tilliti til breytingar
á aðbúnaði á heimilum. Einnig þegar
meta á þörf fyrir hjálpartæki sem nýtast
sem best við aðhlynningu og umönnun
einstaklinga og gera fólki mögulega að
vera sem mest sjálfbjarga.
Við heimhjúkrun er einnig starf rækt
geðteymi þar sem starfa hjúkrunar-
fræðingar, sjúkraliðar og félagsráðgjafi
sem sinna einstaklingum með
geðsjúkdóma og eru átján ára og eldri.
Meginmarkmið með starfsemi teymisins
er styðja einstaklinginn í heimaumhverfi,
vinna að því að efla getu hans og færni
og meta líkamlega og andlega heilsu.
Teymið hefur verið starfrækt síðan
2004 en frá því sagði í grein í Tímariti
hjúkrunarfræðinga í júní 2007.
Heima með góðri aðstoð
Ísland er í sárum eftir bankahrunið
„Ef til vill má segja að
margt af því fólki, sem
hefur farið inn á hjúkr-
unar heimili, hefði getað
verið lengur heima með
góðri aðstoð.“
Vel heppnuð
ráðstefna um
fjölskylduhjúkrun