Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 28
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200924
Markmið laganna er að tryggja barni
samvistir við báða foreldra og þeim er
ætlað að gera bæði konum og körlum kleift
að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Starfsmaður, sem hefur töku fæðingar-
orlofs, telst leystur undan vinnuskyldu
meðan á fæðingarorlofi hans stendur.
Fæðingarorlof er skv. lögunum leyfi frá
launuðum störfum sem stofnast við:
• Fæðingu
• Frumættleiðinu barns yngra en átta ára
• Töku barns yngra en átta ára í varanlegt
fóstur
Rétt til fæðingarorlofs eiga allir starfs-
menn sem hafa verið í a.m.k. 25%
starfshlutfalli í hverjum mánuði. Réttur til
greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði skapast
þegar starfsmenn hafa verið samfellt í 6
mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir
fæðingardag barns eða þann tíma þegar
barn kemur inn á heimili við ættleiðingu/
varanlegt fóstur. Við mat á vinnuframlagi
sjálfstætt starfandi skal tekið mið á skilum
á tryggingargjaldi fyrir sama tímabil.
Foreldrar eiga sjálfstæðan rétt til
fæðingarorlofs í allt að þrjá mánuði hvort
um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar
eða töku barns í varanlegt fóstur. Þessi
réttur er ekki framseljanlegur, auk þessa
eiga foreldrar sameiginlegan rétt á
þremur mánuðum til viðbótar sem annað
Cecilie Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is
FÆÐINGARORLOF
Cecilie Björgvinsdóttir, verkefnisstjóri kjara- og réttindamála, fjallar hér um réttindi félagsmanna við fæðingu barns.
foreldrið getur tekið í heild eða foreldar
skipt með sér. Foreldri getur haft rétt til
fæðingarorlofs í allt að 9 mánuði hafi hitt
foreldrið andast á meðgöngu barns og
barnið fæðst lifandi.
Réttur til fæðingarorlofs stofnast við
fæðingu barns, þó er heimilt að hefja töku
fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir
áætlaðan fæðingardag sem er staðfestur
með læknisvottorði. Móðir skal vera í
fæðingarorlofi að minnsta kosti fyrstu
tvær vikurnar eftir fæðingu barns. Við
ættleiðingu eða töku barns í varanlegt
fóstur er miðað við þann tíma er barnið
kemur inn á heimilið enda staðfesti
þar til bærir aðilar ráðstöfunina. Sæki
foreldrar barnið til annarra landa getur
fæðingarorlof hafist við upphaf ferðar
enda hafi viðkomandi yfirvöld/stofnun
staðfest að barn fáist ættleitt. Réttur
til fæðingarorlofs vegna ættleiðingar/
varanlegs fósturs fellur niður 18 mánuðum
eftir að barnið kom inn á heimilið.
Réttur foreldris til fæðingarorlofs er
bundinn því að það fari sjálft með forsjá
barnsins eða hafi sameiginlega forsjá,
forsjárlaust foreldri á rétt til fæðingarorlofs
liggi fyrir samþykki þess foreldris sem fer
með forsjána.
Ef annað foreldrið andast áður en barn
nær 18 mánaða aldri færist sá réttur til
fæðingarorlofs sem hinn látni hefur ekki
þegar nýtt sér yfir til eftirlifandi foreldris.
Um töku fæðingar- og foreldraorlofs gilda lög nr. 95/2000 og er grein þessi
byggð á fyrrgreindum lögum ásamt 13. kafla kjarasamnings Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Eingöngu er fjallað um
fæðingarorlof að þessu sinni þó svo að lögin taki einnig til foreldraorlofs.
Lögin taka til réttinda foreldra á innlendum vinnumarkaði og eiga bæði við
um foreldra sem eru starfsmenn eða sjálfstætt starfandi, lögin fjalla einnig um
réttindi foreldra utan vinnumarkaðar og í námi til fæðingarstyrks.