Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200938
ÚTDRÁTTUR
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að kynferðislegt ofbeldi í
bernsku getur haft mjög víðtækar og alvarlegar afleiðingar
fyrir heilsufar og líðan kvenna. Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna heilsufar og líðan íslenskra
kvenna sem hafa orðið fyrir sálrænum áföllum í bernsku
af völdum kynferðislegrar misnotkunar. Þátttakendur
voru sjö íslenskar konur með slíka sögu. Ofbeldið byrjaði
hjá þeim öllum um 4–5 ára aldur svo þær muni eftir en
þær voru á aldrinum 30–65 ára þegar viðtölin áttu sér
stað. Þær urðu fyrir margs konar áföllum og ofbeldi alla
tíð eftir þetta og hjá sumum þeirra var það jafnvel enn
til staðar þegar viðtölin fóru fram. Rannsóknaraðferðin
var Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði sem ætlað er að
auka þekkingu og dýpka skilning á tilteknum mannlegum
fyrirbærum í þeim tilgangi að bæta mannlega þjónustu
eins og heilbrigðisþjónustuna. Tekin voru tvö viðtöl
við hverja konu, samtals 14 viðtöl. Tíminn milli viðtals
eitt og tvö var einn til sex mánuðir. Niðurstöðum var
skipt í sex meginþemu: 1) Upplifun af áfallinu. 2) Slæm
líðan sem barn og unglingur. 3) Líkamleg vandamál á
fullorðinsárum. 4) Geðræn vandamál á fullorðinsárum.
5) Erfiðleikar með tengslamyndun, traust og snertingu
við börn og maka og með kynlíf. 6) Staðan í dag og
horft til framtíðar. Meginniðurstaða rannsóknarinnar
er að ‘tíminn læknar ekki öll sár’. Konurnar lýstu allar
mikilli þrautagöngu sem enn sér ekki fyrir endann á.
Þjáning þeirra er djúp á öllum sviðum mannlegs lífs og
hefur einnig áhrif á líf ástvina þeirra þótt þær hafi allar
leitað sér faglegrar aðstoðar, sumar allt frá barnæsku.
Mikilvægt er fyrir heilbrigðisstarfsfólk að þekkja einkenni
og afleiðingar sálrænna áfalla í bernsku af völdum
kynferðislegs ofbeldis til að geta brugðist við slíkum
einstaklingum með stuðningi og umhyggju. Þróa þarf
skilvirkari meðferðarúrræði til að minnka þjáningu þeirra
sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi.
Lykilorð: Að lifa af kynferðislegt ofbeldi í bernsku;
kynferðisleg misnotkun gagnvart konum;
fyrirbærafræðileg rannsókn; langvinn áfallastreituröskun;
heilbrigði kvenna.
Sigrún Sigurðardóttir, Lýðheilsuvísindasvið Háskóla Íslands
Sigríður Halldórsdóttir, heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri
TÍMINN LÆKNAR EkkI ÖLL SÁR:
Fyrirbærafræðileg rannsókn á langvarandi afleiðingum kynferðislegs ofbeldis
í bernsku fyrir heilsufar og líðan íslenskra kvenna
ENGLISH SUMMARY
Sigurdardottir, S., and Halldorsdottir, S.
The Icelandic Journal of Nursing (2009). 85 (3), 38-49
TIME DOES NOT HEAL ALL WOUNDS: A phenomeno-
logical study on the long-term consequences of childhood
sexual abuse on Icelandic women‘s health and well-being
Research results indicate that childhood sexual abuse can have
enourmous consequences for women‘s health and well-being. The
purpose of this study was to examine the health and well-being of
Icelandic women who have suffered psychological trauma as children
caused by sexual abuse. Seven women with a history of such
violence, were interviewed twice at one to six months intervals. For
all the women the abuse started when they were between 4–5 years
old and they were 30–65 years old at the time of the interviews. All
of them were repeatedly violated against and traumatized ever since
then and some were even still being victimized at the time of the
interviews. The research methodology was the Vancouver School of
doing phenomenology which is used when the research purpose is to
increase knowledge and deepen understanding of human phenomena
with the ultimate aim of improving human services such as healthcare
services. The results were constructed into six main themes:
1) Experiencing the trauma. 2) Lack of well-being as a child and as a
teenager. 3) Adult physical problems. 4) Adult psychological problems.
5) Difficulties with bonding, trusting, touching children and spouses,
and regarding sex life. 6) The situation today and future expectations.
The main finding is that, contrary to the English idiom, time does
indeed not heal all wounds. All the women described great suffering in
all aspects of life and the violence is still seriously affecting them and
their loved ones even though they have all sought professional help,
some even since childhood. It is important for health professionals to
know the symptoms and consequences of such violence to be better
able to respond to them in a supportive and caring way. More effective
therapeutic measures have to be developed to decrease the suffering
of the victims of childhood sexual abuse.
Keywords: Adult Survivors of Child Abuse; Abused Women;
Qualitative Research; Chronic Post-Traumatic Stress Disorder;
Women‘s Health.
Correspondance: Sigrún Sigurðardóttir, olafuros@simnet.is