Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Síða 50
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200946
Heiða er búin að reyna alla aðstoð sem í boði hefur verið. Hún
segir mjög mikilvægt að fólk opni sig sem fyrst, því lengur sem
maður geymi þetta inni því meiri skaði verði fyrir maka, börn og
mann sjálfan. Hún er sátt við að hafa tekið á þessu:
„Maður þarf að fara alla leið inn í sig ... inn að hjartarótum. Ég
vil spóla bara út á byrjunarreit og byrja upp á nýtt á lífinu. Það
tekur engin annar þetta í burtu. Maður verður að finna þetta
sjálfur. Það setur enginn annar frið í mitt hjarta, hatrið er okkur
sjálfum fyrir verstu.“
UMRÆÐA
Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að Halldór Laxness hafi
hitt naglann á höfuðið þegar hann lætur Sölku Völku segja
á fullorðinsárum eftir að hafa verið nauðgað þegar hún var á
tólfta ári: „ég er ekki búin að ná mér eftir það enn og næ mér
aldrei meðan ég lifi“. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að
kynferðislegt ofbeldi í bernsku getur haft mjög alvarlegar og
langvinnar afleiðingar fyrir líkama og sál. Einkenni komu fram
strax eftir áfallið eða mörgum árum seinna og þróuðust yfir í
áfallastreituröskun með margþættum einkennum og konurnar
urðu berskjaldaðar fyrir endurteknum áföllum síðar á lífsleiðinni.
Niðurstöðum rannsóknarinnar ber saman við niðurstöður
fjölmargra innlendra og erlendra rannsókna (sjá töflu 4).
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar þar sem ekki fundust
sambærilegar innlendar eða erlendar rannsóknarniðurstöður:
• Allar höfðu átt við margþætt líkamleg vandamál að stríða í
æsku sem voru aldrei tengd við sálræn áföll þeirra.
• Allar hafa þjáðst af alls kyns kvillum í móðurlífi og verið fluttar á
sjúkrahús vegna verkjakasta. Leg fjarlægt úr fimm kvennanna,
nokkrar hafa misst fóstur og fengið utanlegsfóstur, þjáðst af
blöðrum á eggjastokkum, samgróningum, tvíburabróður á
eggjastokk, blöðrubólgu, miklum blæðingaverkjum og alls
kyns sýkingum.
• Allar konurnar hafa verið með óútskýranlega verki og
vöðvabólgu um líkamann frá bernsku.
• Allar konurnar fundu fyrir mjög miklu fæðingarþunglyndi.
• Öllum gekk erfiðlega að tengjast börnum sínum og sýna
þeim ástúð. Eiga erfitt með að treysta öðrum fyrir þeim, hafa
einangrað sig og ofverndað þau. Það hefur haft áhrif á líðan
barnanna og eiga mörg börn þeirra við vandamál að stríða.
Engar rannsóknir fundust um slíkar afleiðingar kynferðislegs
ofbeldis í bernsku. Við teljum að rannsóknin sé fengur fyrir
þetta fræðasvið þar sem engin rannsókn, sem við fundum,
veitir svo heildstæða mynd af langvarandi áhrifum kynferðislegs
ofbeldis í æsku.
Þegar fjalla á um þær stórfelldu afleiðingar sem kynferðislegt
ofbeldi í bernsku hefur haft fyrir þessar konur við hvað á
þá að líkja þessum glæp? Afleiðingarnar líkjast helst þeim
sem einkenna þau sem lifað hafa af pyndingar og alvarlega
stríðsglæpi. Þegar lítil stúlka verður fyrir kynferðislegu ofbeldi er
líf hennar lagt í rúst á flestum sviðum. Af þessum niðurstöðum
sjáum við hvernig heilsa þeirra er brotin niður fyrir lífstíð,
einkum á svæðum sem tengjast móðurlífinu. Þeim ber öllum
saman um að varanlegur skaði hefur átt sér stað og að lífið
hefur verið þeim ein samfelld barátta og þjáning, þyrnum stráð
braut frá bernsku og til þessa dags.
Hvað er það sem getur hjálpað okkur að skilja þetta stórfellda
niðurbrot? Þær lýsa áfallinu í bernsku sem sálarþjófnaði,
sálardauða. Þær lýsa því hvernig þær fara úr eigin líkama.
Sálin hreinlega yfirgefur líkamann. Þær lýsa kvöl barnsins,
hvernig örvæntingin fylgir þeim, hvernig varnargarður þeirra
var brotinn niður og varnarleysi þeirra varð algjört. Það er hægt
að bera þennan glæp gagnvart lítilli varnarlausri stúlku við
stríðsglæpi. Þar er yfirleitt um fullorðna karlmenn að ræða en
hér um varnarlausa telpu og orðatiltækið „að vera yfirliði borin“
fær alveg nýja merkingu. Meira að segja staran, sem sumar
konurnar lýstu, er vel þekkt hjá stríðshrjáðum hermönnum sem
reynt hafa of mikið og séð hafa of mikið. Hún hefur verið kölluð
kílómetra-staran. Hún er hluti af stríðsþreytu (combat fatigue)
eða bardagaþreytu og einkennir hermenn sem taka þátt í
mannskæðum bardaga í fremstu víglínu.
Aftur má grípa til líkinga úr stríði að því leyti að við kynferðislegt
ofbeldi í bernsku er ekki aðeins brotinn niður varnargarður.
Innrásaraðilinn, óvinurinn, brýst inn og hertekur svæðið og alla
ævi er „hin sigraða“ að reyna að fá óvininn, skrímslið, af sínu
svæði (Heche, 2001), reyna að taka til í kjölfar eyðileggingarinnar.
Einkenni sigurherra er oft það að eyðileggja, yfirbuga, kúga og
þvinga. Alveg eins og í stríðshrjáðu landi þar sem viðurstyggð
eyðileggingarinnar blasir við er uppbyggingarstarfið ekki auðvelt
verk. Það tekur langan tíma og er mikið þolinmæðisverk. Málið er
bara að það sem er í boði innan heilbrigðisþjónustunnar er ekki í
takt við þarfir þessara kvenna. Eðli niðurbrotsins er ólíkt öllu öðru.
Í fáum tilvikum innan heilbrigðisþjónustunnar er þjónustuþeginn
jafnþverbrotinn inn að hjartarótum, líkamlega og andlega.
Eitt af því sem getur hjálpað okkur að skilja þetta stórfellda
niðurbrot eru nýjustu rannsóknarniðurstöður úr sál- og
taugaónæmisfræði (psychoneuroimmunology). Þær rannsóknir
hafa sýnt að hver mannvera er ein heild, líkami og sál. Það
sem brýtur niður sálina brýtur niður líkamann og öfugt. Sálin,
taugakerfið og ónæmiskerfið eru öll nátengd og „tala“ stöðugt
saman. Þegar við bregðumst við atburði eða aðstæðum gerum
við það sem ein heild (Sigríður Halldórsdóttir, 2007). Nýjustu
rannsóknir sýna að það er engin raunveruleg aðgreining milli sálar
og líkama vegna þess háþróaða samskiptanets sem er milli heila
og taugakerfis, innkirtla og ónæmiskerfis (Brower, 2006). Ljóst
er að allar konurnar hafa lifað við gífurlega streitu. Vitað er að
streita er mjög ónæmisbælandi (Kemeny og Gruenewald, 1999)
og langvarandi streita getur aukið líkurnar á ýmsum sjúkdómum
(Brosschot, o.fl., 1998). Neikvæðar tilfinningar, eins og allar
konurnar upplifðu, geta verið ógnun við heilsu viðkomandi og
stuðlað að langvarandi sýkingum, seinkaðri sáragræðslu og
langvarandi bólgumyndun (Kiecolt-Glaser, McGuire, Robles
og Glaser, 2002). Það er líka vitað að ef persónum finnst þær
ekki hafa stjórn á því sem veldur streitunni, eins og á við um
allar konurnar í þessari rannsókn, getur það haft neikvæðari
áhrif en streituvakinn í sjálfu sér (Pert, Dreher og Ruff, 1998).