Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 56
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 200952 meðferð alvarlega og bráðveikra sjúklinga. Hugmyndafræðin að baki gjörgæsluteyma er að veita þjónustu sérfræðinga í gjörgæsluhjúkrun og -lækningum utan hefðbundinna veggja gjörgæsludeilda, með áherslu á fræðslu og stuðning við heilbrigðisstarfsfólk. Með því er leitast við að bregðast tímanlega við versnandi ástandi bráðveikra sjúklinga (Odell o.fl., 2002). Gjörgæsluteymi hafa verið skilgreind sem framlenging á hefðbundinni gjörgæsluþjónustu. Breytileiki er í útfærslu gjörgæsluteyma hvað varðar menntun, fjölda meðlima sem og hvaða skilgreiningar eða viðmið teymin styðjast við. Í hefðbundnu gjörgæsluteymi eru gjarnan reyndur gjörgæsluhjúkrunarfræðingur og gjörgæslulæknir og geta allir heilbrigðisstarfsmenn á legudeildum kallað teymið út frá viðmiðunum sem byggjast alla jafnan á: sérstöku ástandi, óeðlilegum lífeðlisfræðilegum gildum og öllum neyðartilfellum (Lee o.fl., 1995). AÐFERÐAFRÆÐI Snið rannsóknarinnar var lýsandi afturvirk aðferðafræði (descriptive retrospective design). Lýsandi rannsóknir eru í sumum tilfellum notaðar sem upphafspunktur fyrir áframhaldandi rannsóknir og einnig til þess að setja fram kenningar eða tilgátur (Polit og Beck, 2004). Með öðrum orðum þá miða lýsandi rannsóknir að því að lýsa dreifingu og tíðni á ýmsan hátt. Afturvirkar rannsóknir (retrospective design) eru rannsóknir þar sem það sem rannsakað skal er til staðar þegar rannsóknin fer fram og er tengt við atburð sem þegar hefur átt sér stað. Í rannsókninni var gagna aflað úr sjúkraskrám eftir flutning sjúklings af legudeild eða bráðamóttöku á gjörgæsludeild. Rannsóknarspurningar voru eftirfarandi: 1. Hver voru lífeðlisfræðileg gildi og stigun bráðveikra sjúklinga fyrir óvænta innlögn á gjörgæsludeild? 2. Hvers eðlis var vöktun sjúklinga fyrir óvænta innlögn á gjörgæsludeild? 3. Hver voru viðbrögð við breytingu á ástandi sjúklinga fyrir óvænta innlögn á gjörgæsludeild? Þýði og þátttakendur Þýðið í rannsókninni voru allir sjúklingar, átján ára og eldri, sem lögðust óvænt inn á gjörgæsludeildir LSH af legudeildum eða bráðamóttöku frá 1. október 2006 til 31. desember 2006. Framkvæmd rannsóknar Sótt var um leyfi til siðanefndar og lækningaforstjóra LSH sem og leyfi stjórnsýslunefndar LSH og tilkynning send til Persónuverndar. Þegar tilskilin leyfi lágu fyrir var sent kynningarbréf til yfirlækna og hjúkrunardeildarstjóra á bráðadeildum LSH. Jafnframt var rannsóknin kynnt ýtarlega fyrir stjórnendum og starfsfólki gjörgæsludeilda LSH. Fyrsti höfundur aflaði allra rannsóknarganga. Rannsakandi hafði samband við vaktstjóra beggja gjörgæsludeilda LSH einu sinni eða oftar á hverjum sólarhring til þess að fá upplýsingar um óvæntar innlagnir. Ef líkur voru á innlögn hafði rannsakandi samband örar við vaktstjóra gjörgæsludeildanna. Mælitæki Unnið var með tvö mælitæki í rannsókninni. Fyrst ber að nefna frumsaminn spurningalista þar sem gögnum var safnað beint úr sjúkraskrá sjúklingsins. Spurningalistinn var forprófaður í septembermánuði 2006. Innihald spurningalistans snýst fyrst og fremst um breytur sem lúta að ástandi, vöktun og viðbrögð fyrir innlögn á gjörgæsludeild. Samhliða spurningalistanum var stuðst við mælitækið stigun bráðveikra sjúklinga (SBS) en mælitækið var þýtt á íslensku af Ölmu Möller, yfirlækni á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. SBS-mælitækið þykir hafa sannað mikilvægi sitt og benda rannsóknir til að það sé áreiðanlegt þegar metið er hve alvarlegt ástand sjúklinga er (Subbe o.fl., 2007; Subbe o.fl., 2001). Rannsóknir á notkun mælitækisins sýna færri óvæntar innlagnir á gjörgæsludeild þar sem mælitækið er notað (Stenhouse o.fl., 2000). Að sama skapi er talið að viðeigandi meðferð sé komið fyrr við þegar stuðst er við SBS-mælitækið (Stenhouse o.fl., 2000). Í rannsókninni var farið kerfisbundið í gegnum sjúkraskrá sjúklingsins og allar skráðar upplýsingar skoðaðar, þ.e. átta klukkustundum fyrir gjörgæsluinnlögn, og voru sjúklingarnir metnir út frá fyrirliggjandi mælingum með SBS-mælitækinu. Gilti einu hvort um skráningu hjúkrunarfræðinga, lækna eða annarra starfsmanna var að ræða. Stigun bráðveikra sjúklinga (Modified Early Warning Score) Stig 3 2 1 0 1 2 3 Öndun (/mín.) < 9 14 15-20 21-29 ≥ 30 Púls (/mín.) < 40 41-50 51-100 101-110 111-129 ≥ 130 Blóðþr. (mmHg) < 70 71-80 81-100 101-199 ≥ 200 Hiti (°C) < 35 35,1-36 36,1-38 38,1-38,5 > 38,5 Þvagútsk. (/klst.) 0 < 20 < 35 Mikið þvag Meðvitund Bregst Bregst Bregst ekki Rugl Eðlileg við ávarpi við sársauka við áreiti Mynd 1. Mælitækið stigun bráðveikra sjúklinga (SBS)

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.