Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2009, Qupperneq 57
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 3. tbl. 85. árg. 2009 53
Ritrýnd fræðigrein
Mynd 2. Tímasetning allra óvæntra innlagna á gjörgæsludeild og fjöldi sjúklinga.
eða tæplega 35% allra óvæntra innlagna á gjörgæsludeild
LSH. Sjúklingar dvöldu að meðaltali þrjár klukkustundir á
bráðamóttöku, með miðgildið tvo tíma og tuttugu og fimm
mínútur áður en þeir voru lagðir á gjörgæsludeild. Stysti tími
sjúklings á bráðamóttökudeild var tuttugu mínútur en lengsti
tíminn var rúmar tíu klukkustundir.
Tafla 1. Ástæða óvæntra innlagna á gjörgæsludeildir frá legudeildum.
Ástæða innlagnar – vandamál Fjöldi (n) Hlutfall (%)
Öndunarbilun 24 37%
Sýklasótt 13 20%
Hjartabilun 8 12%
Anemía/blæðing 7 11%
Lungnabólga 3 5%
Hjartastopp 3 5%
Lágur blóðþrýstingur 2 3%
Annað 5 7%
Alls: 65 100%
Lífeðlisfræðileg gildi og stigun bráðveikra sjúklinga á
legudeild við óvænta innlögn á gjörgæsludeild
Ekki var hægt að reikna stigun bráðveikra sjúklinga (SBS) hjá
sjúklingum í rannsókninni út frá síðustu skráðu lífeðlisfræðilegum
gildum fyrir innlögn á gjörgæsludeild þar sem skráning var
ófullnægjandi. Meðaltalsfjöldi lífeðlisfræðilegra þátta, sem nota
átti til þess að reikna stigun bráðveikra sjúklinga í rannsókninni,
var rúmlega þrír þættir af sex mögulegum þáttum. Hjá sex
sjúklingum var enginn þáttur SBS-mælitækisins skráður. Þá
voru tveir sjúklingar með fimm þætti skráða og enginn með alla
sex þætti SBS-mælitækisins skráða. Sjá nánar mynd 3.
Þá kom fram að hjá 13 sjúklingum á legudeild (20%) var
síðasta mæling á súrefnismettun (SpO2) fyrir óvænta innlögn
á gjörgæsludeild lægri en 90%. Lægsta skráða súrefnismettun
NIÐURSTÖÐUR
Á rannsóknartímabilinu voru alls 152 óvæntar innlagnir á
gjörgæsludeildir LSH samkvæmt skilgreiningu rannsóknarinnar.
Safnað var gögnum 132 sjúklinga sem féllu undir skilgreiningu
fyrir þátttöku í rannsókninni og er það 87% þátttaka. Ekki
reyndist unnt að ná í sjúkraskrár 20 sjúklinga vegna þess að þeir
útskrifuðust eða létust skömmu eftir komu á gjörgæsludeild.
Skipting óvæntra innlagna milli gjörgæsludeilda Landspítala var
þannig að 76 innlagnir (58%) voru á gjörgæsludeild í Fossvogi
og 56 innlagnir (42%) á gjörgæsludeild við Hringbraut.
Tæplega 60% sjúklinganna voru karlar (n=78) og rúmlega
40% konur (n=54). Meðalaldur sjúklinga var 59 ár (spönn:
18–90 ára). Flestir sjúklinganna voru lagðir á gjörgæsludeild frá
klukkan 16:00 til 24:00 (kvöldvakt) eða alls 59 sjúklingar (44%).
Þar á eftir kemur morgunvakt frá klukkan 8:00 til 16:00, alls 39
sjúklingar, og sjaldnast á næturvakt með alls 34 innlagnir frá
klukkan 24:00 til 8:00.
Þegar horft er á óvæntar innlagnir á gjörgæsludeild frá
legudeildum LSH, þá voru flestar óvæntar innlagnir á
morgunvakt (42%). Þar á eftir kvöldvakt (37%) og að lokum
næturvakt (21%). Sjö sjúklingar lögðust á gjörgæsludeild
LSH innan tveggja sólarhringa frá útskrift af gjörgæsludeild
(endurinnlögn) og eru það 5,3% af heildarfjölda óvæntra
innlagna á gjörgæsludeildir LSH. Innlagnir frá bráðamóttökum
LSH voru flestar á kvöldvakt (49%), þar á eftir næturvakt (31%)
og svo morgunvakt (20%).
Legudeildir og ástæður óvæntra innlagna á gjörgæslu
Tæplega helmingur sjúklinga eða 65 sjúklingar (49%) komu
frá legudeildum LSH. Þar af komu 43 sjúklingar (66%) frá
lyflækningadeildum LSH og 22 sjúklingar frá skurðlækningadeildum
LSH (34%). Þá var algengasta ástæða óvæntra innlagna á
gjörgæsludeild öndunarbilun. Sjá nánar í töflu 1.
67 sjúklingar (51%) komu frá bráðamóttökum LSH. Þar af
komu flestir sjúklingar frá slysa- og bráðadeildinni í Fossvogi
12
10
8
6
4
2
0
8.01-9.00 10.01-11.00 12.01-13.00 14.01-15.00 16.01-17.00 18.01-19.00 20.01-21.00 22.01-23.00 24.01-01.00 2.01-3.00 4.01-5.00 6.01-7.00
9.01-10.00 11.01-12.00 13.01-14.00 15.01-16.00 17.01-18.00 19.01-20.00 21.01-22.00 23.01-24.00 1.01-2.00 3.01-4.00 5.01-6.00 7.01-8.00
Fjöldi sjúklinga
Tími