Tölvumál - 01.11.2008, Síða 18
1 8 | T Ö L V U M Á L
Landsaðgangur
Eitt af markmiðunum með Landsaðgangi er að efla menntun og rannsóknir
hérlendis með því að auka aðgang að erlendu vísindaefni. Tímarit gegna
lykilhlutverki í miðlun nýrrar vísindalegrar þekkingar og hefur svo verið frá
upphafi, en fyrstu vísindatímaritin hófu göngu sína árið 1665: Le journal
des sçavans í Frakklandi og Philosophical transactions í Bretlandi. Undir lok
17. aldar er talið að um 30 tímarit hafi verið gefin út, en um 1830 voru þau
orðin 300 talsins2. Síðan hefur útgáfa vísindatímarita vaxið ár frá ári og má
í því sambandi nefna að í júní 2007 voru um 60.000 rafræn tímarit skráð í
Ulrich tímaritaskrána, þar af um 7.000 eingöngu gefin út á rafrænu formi3.
Áður en verkefnið um Landsaðgang hófst voru um 4.000 tímaritatitlar í
áskrift á íslenskum söfnum4. Í árslok 2007 voru titlar í Landsaðgangi einum
hins vegar um 14.0005. Auk þess greiða flest söfn einnig fyrir séráskriftir
að tímaritum og því er ljóst að heildartalan er talsvert hærri. Rétt er að
fram komi að einungis hluti tímarita í Landsaðgangi eru í áskrift beint
frá útgefendum, önnur eru keypt frá milliliðum á borð við ProQuest og
Ebscohost, sem felur m.a. í sér að nýjustu árgangar einstakra tímarita eru
ekki aðgengilegir.
Skilgreining rafrænna tímarita tekur fyrst og fremst mið af hinum rafræna
dreifingarmáta og þeim möguleikum sem felast í honum. Kostnaður
við dreifningu lækkar, sem hefur gert útgefendum kleift að bjóða
innkaupasamlögum á borð við Landsaðganginn öll útgáfurit sín í einum
pakka yfir ákveðið árabil (e. Big Deal). Pakkarnir spara samlagsaðilum
peninga og vinnu við samningagerð um leið og þeir gera þeim kleift að bjóða
uppá fleiri titla en áður án aukins vinnuframlags starfsmanna á söfnum, s.s.
við innkaup, skráningu, uppröðun og innheimtu hefta. Útgáfutími styttist til
muna og hægt er að gera einstakar greinar aðgengilegar um leið og þær
berast útgefanda í hendur. Er það mikil breyting frá því sem áður var þegar
útgáfan tók jafnan nokkra mánuði og jafnvel ár. Rafræn útgáfa og dreifing
eykur jafnframt aðgengi að tímaritum. Hægt er að skoða einstök hefti og
greinar sem viðkomandi hefur aðgang að hvort sem er í skóla, á vinnustað
eða heima. Hægt er að skoða efnið hvenær sem er, óháð opnunartíma
safna. Auk þess geta margir lesið sömu greinina í einu, þar með dregur
úr vinnu við ljósritun og notendur bókasafna grípa sjaldnar í tómt. Rafræn
tímarit spara dýrt húspláss og gera söfnum kleift að komast af með minna
rými en ella hefði verið mögulegt.
Aukinn aðgangur
Íslendinga að vísindaefni
Hljóðlát bylting
Þróun á sviði upplýsingatækni síðastliðin fimmt án
ár hefur umbylt starfsemi bókasafna og upp lýsinga-
miðstöðva og þeirra sem þar starfa. Um byltingarinnar
sér einkum stað í aukinni hagræðingu ýmissa
verkþátta, betri nýtingu á fjármagni og stórbættu
aðgengi notenda að upplýsingum um safnkost og að
honum. Hérlendis á það einkum við um vísindatímarit
á fjölmörgum fræðasviðum. Það má ekki síst
þakka verkefninu um Landsaðgang að rafrænum
gagnasöfnum og tímaritum. Lands aðgangurinn hófst
þann 23. apríl 1999 þegar opnað var fyrir aðgang
þjóðarinnar að alfræðiritinu Britannica. „Hvar.is er
vefur landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og
tímaritum. Aðgangurinn er opinn og endurgjaldslaus
hjá notendum á Ís landi sem eru tengdir íslenskum
netveitum þar sem hið opinbera, bókasöfn, stofnanir
og fyrirtæki hafa þegar greitt fyrir áskriftirnar”1.
Aðgangur heillar þjóðar að upplýsingum með þessum
hætti er einsdæmi í heiminum. Hvatann að verkefninu
má rekja til málþings sem Félag bókavarða í rann-
sóknarbókasöfnum stóð fyrir árið 1997 undir
yfirskriftinni, „Upplýsingar á Interneti, málþing
um aðgang atvinnulífs og vísindasamfélags að
upplýsingum og upplýsingastefnu ríkisstjórnarinnar
frá 1996, Framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um
upplýsingasamfélagið.“
Guðrún Tryggvadóttir, forstöðumaður Bókasafns
og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík
Sólveig Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri Bókasafns og
upplýsingasviðs Landspítala
Aðgangur heillar þjóðar að
upplýsingum með þessum hætti
er einsdæmi í heiminum
Eftir því sem upplýsingar um
útgefið efni verða aðgengilegri
víkkar sjóndeildarhringur notenda