Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 6
6 Fréttir Áramótablað 30. desember 2014
Hugo Boss söluaðilar:
Reykjavík:
Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100
Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100
Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665
Meba Kringlunni s: 553-1199
Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666
Keflavík:
Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757
Selfoss:
Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433
Akureyri:
Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509
Akranes:
Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir:
Klassík Selási 1 s:471-1886
Úra- o skartgripaversl n
Heide Glæsibæ - s: 581 36 5
Í
slenskir veitingastaðir standast
ekki samkeppni við þá bestu á
Norðurlöndum samkvæmt út
tekt sem White Guide útgáfan birti
fyrir jólin yfir 250 bestu veitinga
staðina í Svíþjóð, Noregi, Danmörku,
Íslandi, Finnlandi og Færeyjum. Ís
lenski veitingastaðurinn sem þykir
bestur er Dill í Reykjavík. Hann hafn
ar í 98. sæti og telst engu að síður vera
í flokki hágæðastaða. Samkvæmt út
tekt White Guide er Noma í Kaup
mannahöfn besti veitingastaðurinn á
Norður löndum.
Ísland nær ekki í úrvalsflokk
White Guide veitir matargestum
leiðbeiningar um gæði veitinga
staða. Á árinu 2014 valdi White
Guide alls 250 bestu veitingastaðina
á Norðurlöndum og flokkaði þá eft
ir gæðum. Á listanum eru 86 sænskir
veitingastaðir, 71 danskur, 43 norskir,
38 finnskir, níu íslenskir, tveir færeysk
ir og einn frá Svalbarða. Aðeins fimm
af níu íslensku veitingastöðunum ná
inn á lista 225 veitingastaða sem rað
að er í sæti. Hinir fjórir hafna meðal
þeirra 25 sem ekki komust á listann en
White Guide mælir engu að síður með
sem gæða veitingastöðum.
Íslensku veitingastaðirnir fimm,
sem ná sæti í ofangreindum flokkum,
eru Dill í 98. sæti, Vox í 113. sæti, Kol í
133. sæti, Fiskmarkaðurinn í 182. sæti
og Fiskfélagið í 221. sæti. Allir hafna
þeir í hágæðaflokki sem er þriðji
flokkur á eftir úrvalsflokki og alþjóð
legum úrvalsflokki.
Færeyingar hafa betur
Athygli vekur að veitingastaðurinn
Koks í Þórshöfn í Færeyjum hafnar
í 32. sæti og þar með í úrvalsflokki.
Það er langt fyrir ofan besta íslenska
veitingastaðinn sem hafnaði í há
gæðaflokki eins og áður segir. Hinn
færeyski staðurinn, Barbara í Þórs
höfn, er í 170. sæti og þar af leiðandi
eru báðir færeysku staðirnir á lista
White Guide ofar en sjö af níu íslensku
veitingastöðunum.
Veitingastaðurinn Huset í Long
yearbyen á Svalbarða hafnaði í 104.
sæti og telst þar með betri en átta af ís
lensku veitingastöðunum níu.
Íslensku veitingastaðirnir fjórir
sem ekki var skipað í sæti eftir
einkunnargjöf, en White Guide mælir
engu að síður með sem gæða veitinga
stöðum (4 flokkur), eru Grillið, Slipp
barinn, Grillmarkaðurinn og Lava
Restaurant í Grindavík. Lava er jafn
framt eini íslenski veitingastaðurinn
utan Reykjavíkur.
Danir með toppeinkunn
Í alþjóðlega úrvalsflokkinum er að
finna 30 bestu veitingastaðina á öll
um Norðurlöndum að mati White
Guide. Athygli vekur að helmingur
þeirra er danskur og stór hluti þeirra
auk þess starfandi í Kaupmanna
höfn. Þetta merkir að liðlega fimmt
ungur dönsku veitingastaðanna var
með toppeinkunn og hafnaði í alþjóð
legum úrvalsflokki. Þótt 11 sænskir
veitingastaðir falli í flokk þeirra þrjá
tíu bestu eru þeir hlutfallslega færri en
þeir dönsku eða 13,5 prósent af alls 86
sænskum stöðum á lista White Guide.
Norræn matargerð í sviðsljósi
Í fréttatilkynningu frá White Guide
fyrir jólin segir meðal annars að áhugi
á norrænni matargerðarlist sé mikill
og alþjóðlegur og þörfin fyrir leiðbein
ingar um gæði veitingahúsa fari þar af
leiðandi vaxandi. Það eigi ekki aðeins
við um veitingastaði í höfðuborgum
Norðurlanda heldur einnig í minni
bæjum á landsbyggðinni. Listi White
Guide sé til þess fallinn að veita vax
andi fjölda ferðamanna og matgæð
inga leiðbeiningar sem stuðlað geti að
upplýstu vali, ekki aðeins milli þekkt
ustu útvals veitingastaðanna heldur
einnig milli síður þekktra veitinga
staða sem oft er erfiðara að finna.
White Guide hefur sérhæft sig í útgáfu
á efni um veitingastaði og hefur starf
að síðan 2004 í Svíþjóð en nú einnig í
Danmörku. White Guide hefur áður
fjallað um eina 800 veitingastaði í
þessum tveimur löndum en hefur nú
fært út kvíarnar með útgáfu á leiðar
vísi um 250 bestu veitingastaðina á
Norðurlöndum. n
Íslensk matargerð
ekki í úrvalsflokki
n Stöndumst bestu norrænu veitingastöðunum ekki snúning
Alþjóðlegi úrvalsflokkurinn
Einkunnagjöf White Guide; heildareinkunn frá 0–100/sérstök
einkunn fyrir mat einvörðungu frá 0–40
1) Noma, Kaupmannahöfn, Danmörku – 96/39
2–4) Geranium, Kaupmannahöfn, Danmörku – 94/39
Fäviken Magasinet, Järpen, Svíþjóð – 94/39
Esperanto, Stokkhólmi, Svíþjóð – 94/39
5) Maaemo, Ósló, Noregi – 93/39
6–7) Mathias Dahlgren – Matsalen, Stokkhólmi, Svíþjóð – 94/38
Oaxen Krog, Stokkhólmi, Svíþjóð – 94/38
8–9) Daniel Berlin Krog í Tranås/Skáni, Svíþjóð – 92/38
Restaurant Frantzén, Stokkhólmi, Svíþjóð – 92/38
10–12) Studio, Kaupmannahöfn, Danmörku – 91/38
Gothia Towers Upper House, Gautaborg, Svíþjóð – 91/38
Gastrologik, Stokkhólmi, Svíþjóð – 91/38
13) Operakällaren, Stokkhólmi, Svíþjóð – 93/37
14) Frederikshøj, Árósum, Danmörku – 91/37
15–16) Kong Hans Kælder, Kaupmannahöfn, Danmörku – 89/37
PM & Vänner, Växjö, Svíþjóð – 89/37
17) Ruths Gourmet Restaurant, Skagen, Danmörku – 86/37
18) Søllerød Kro, Holte, Danmörku – 90/36
19–21) AOC, Kaupmannahöfn, Danmörku – 89/36
Kadeau Copenhagen, Kaupmannahöfn, Danmörku – 89/36
Mielcke & Hurtigkarl, Frederiksberg, Danmörku – 89/36
22) Kadeau Bornholm, Åkirkeby, Danmörku – 88/36
23) Amass, Kaupmannahöfn, Danmörku – 87/36
24–25) Marchal, Kaupmannahöfn, Danmörku – 86/36
Relæ, Kaupmannahöfn, Danmörku – 86/36
26) Falsled Kro, Millinge, Danmörku – 85/36
27) Ylajali, Osló, Noregi – 83/36
28) Hotell Borgholm, Borgholm, Svíþjóð – 82/36
29-30) Olo, Helsinki, Finnlandi – 81/36
Restaurang Vollmers, Malmö, Svíþjóð – 81/36
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Fyrsta sæti Veitingastaðurinn Noma í Kaupmannahöfn er besti norræni veitingastaðurinn samkvæmt úttekt White Guide. Dill í Reykjavík
þykir besti íslenski staðurinn en er þó nærri hundrað sætum neðar. MyND Jose MoraN Moya
MyND Jose MoraN Moya
Börn geta
kafnað á gormi
í snuðhaldara
Lindex hefur innkallað snuð
haldara frá Esska sem uppfyll
ir ekki gæða og öryggisskilyrði.
Samkvæmt Neytenda stofu er
ástæða innköllunarinnar sú að
gormur sem er í snuðhaldaranum
kann, undir ákveðnum kringum
stæðum, að losna og getur fest í
hálsi barna með tilheyrandi köfn
unarhættu.
Í tilkynningu segir að Lindex
biðji viðskiptavini sína, sem keypt
hafa umræddan snuðhaldara, að
skila vörunni inn í næstu verslun
og fá endurgreitt að fullu.
Strætó leggur
fyrr af stað
Þann 4. janúar 2015 mun ný
vetraráætlun Strætó taka gildi á
höfuð borgarsvæðinu. „Töluverðar
úrbætur hafa verið gerðar á leiða
kerfinu og má þá helst nefna að
allur akstur mun hefjast tveimur
tímum fyrr á sunnudögum, eða
um kl 9:30. Tíðni aksturs eykst
og verður á 15 mín fresti í stað 30
mín á annatíma í öllum helstu
hverfum. Sumir vagnar munu
breyta um númer og einhverjar
akstursleiðir munu breytast,“ segir
í tilkynningu frá Strætó.