Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 8
Áramótablað 30. desember 20148 Fréttir
Gylfaflöt 3 - Sími 567 4468 - www.gummisteypa.is
Mest lesnu fréttir ársins
Viðtal DV við unga barnsmóður Sveins Andra Sveinssonar lögmanns var mest lesna fréttin sem birtist á DV.is í ár. Fréttin fékk tæplega
114 þúsund smelli frá lesendum en Rebekka Rósinberg steig fram í byrjun ágúst og lýsti því yfir að Sveinn Andri væri faðir sonar hennar
sem þá var eins og hálfs árs. Rebekka eignaðist drenginn þegar hún var 17 ára en var sextán ára þegar hún varð ólétt.
DV tók saman topp tíu lista yfir mest lesnu fréttir ársins sem nú er að líða. Þetta vakti athygli lesenda DV.is í ár.
1 „Ég var svo ung“
113.912 lásu
Birtist: 1. ágúst
n Rebekka Rósinberg, 19 ára tveggja barna
móðir úr Hafnarfirði, steig fram í viðtali við
DV og sagði Svein Andra Sveinsson lögmann
vera föður eins og hálfs árs gamals sonar
hennar sem hún eignaðist þegar hún var 17
ára. Rebekka var sextán ára þegar hún varð
ólétt. Hún sagði Svein Andra hafa borgað
meðlag í nokkur skipti en hann hafi tekið
það skýrt fram frá upphafi að hann gæti ekki
og myndi ekki taka þátt í lífi barnsins. 31 árs
aldursmunur er á þeim Sveini og Rebekku.
2 Myndum dreift af manni í Grindavík í ógeðfelldum
athöfnum
107.089 lásu
Birtist: 12. febrúar
n Ljósmyndir af ungum íslenskum manni
í fremur ógeðfelldum kynlífsathöfnum
með sjálfum sér fóru sem eldur í sinu
um netheima og gengu milli unglinga í
Grindavík. Myndirnar fóru víða enda voru
þær auðsóttar á veraldarvefnum þar sem
maðurinn kom fram undir fullu nafni í heilu
myndaalbúmi. Á myndunum sást maðurinn
stinga ýmiss konar aðskotahlutum í aftur-
endann á sér.
3 Íslendingur nauðgaði dóttur sinni í tíu ár
89.123 lásu
Birtist: 1. ágúst
n Hlynur Ólafsson var í upphafi síðastliðins
aprílmánaðar dæmdur í Noregi í ellefu ára
fangelsisvist fyrir að hafa ítrekað nauðgað
dóttur sinni. Samkvæmt norskum fjölmiðl-
um áttu nauðganirnar sér stað yfir tíu ára
tímabil eða frá árinu 2002 til ársins 2012.
Dóttir Hlyns var aðeins tíu ára gömul þegar
ofbeldið hófst. Samkvæmt heimildum DV
hefur Hlynur verið búsettur í Noregi um
árabil og er dóttir hans hálfnorsk.
4 „Er nú kominn til Önnu Jónu sinnar“
88.186 lásu
Birtist: 28. janúar
n Skarphéðinn Andri Kristjánsson lést þann
28. janúar eftir bílslys í Norðurárdal 12. janúar.
Með Skarphéðni í bíl var kærasta hans, hin
sextán ára gamla Anna Jóna Sigurbjörns-
dóttir sem lést í slysinu. Móðir Skarphéðins
minntist hans á Facebook og sagði hann nú
kominn til Önnu Jónu sinnar. Greindi hún síðar
frá því að fimm einstaklingar hefðu öðlast
nýtt líf vegna líffæragjafa sonar hennar.
Harmleikurinn opnaði á umræðu um líffæra-
gjöf í samfélaginu.
5 Harmleikur í Hafnarfirði87.211 las
Birtist: 2. janúar
n DV.is greindi frá því að maður á áttræðis-
aldri hefði fundist látinn við hjúkrunarheim-
ilið Sólvang í Hafnarfirði þann 22. desember
2013. Hann var vistmaður á hjúkrunarheim-
ilinu og féll fram af svölum en ekki kom
fram hvernig það atvikaðist. Lögreglan
rannsakaði málið ekki sem sakamál og
því hefur verið um óhapp að ræða. Prestur
var starfsfólki og vistmönnum til halds og
trausts eftir slysið.
6 Hérna eru lokaorðin í viðtalinu sem allir eru að
tala um
77.519 lásu
Birtist: 16. febrúar.
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra mætti í viðtal í þættinum Sunnu-
dagsmorgun hjá Gísla Marteini Baldurssyni.
Viðtalið vakti gríðarlega athygli og ekki síst
lokaorð Sigmundar Davíðs. Þegar viðtalinu
var lokið og Gísli Marteinn hafði þakkað
Sigmundi Davíð fyrir komuna gat forsætis-
ráðherrann ekki á sér setið og vændi hann
um að hafa ætlað að sanna, með framgöngu
sinni í viðtalinu, að hann væri ekki talsmaður
ríkisstjórnarinnar.
7 Tinna var jörðuð í dag
75.928 lásu
Birtist: 6. júní
n Tinna Ingólfsdóttir varð bráðkvödd á
heimili foreldra sinna á Akureyri þann 21.
maí. Hún var aðeins 21 árs. Var hún jarð-
sungin þann 6. júní frá Akureyrarkirkju. Vinir
Tinnu minntust hennar sem baráttukonu
með ríka réttlætiskennd. Skrif Tinnu á vef-
inn Freyjur.is höfðu vakið mikla athygli en
þar sagði hún frá því þegar hún varð fyrir því
á unglingsaldri að nektarmyndum af henni
var dreift á netinu. Tinna opnaði enn frekar
á umræðuna um kynferðisbrot af þessu tagi
í fjölmiðlum.
8 Nakti maðurinn: „Þetta var fyrir fullorðið fólk“
72.681 las
Birtist 12. febrúar
n DV birti viðtal við manninn sem birti
ljósmyndir af sér á netinu í ógeðfelldum
athöfnum. Málið vakti gríðarlega athygli en
maðurinn sagðist hafa sett myndirnar inn
í einhverjum fíflagangi fyrir nokkru síðan.
Hann hafi vonast til að einhverjir karlar
og konur úti í heimi myndu sjá myndirnar
en segir að þær hafi aðeins verið ætlaðar
„fullorðnum konum og körlum úti í heimi.“
Hann harmaði að myndirnar hefðu farið í
dreifingu á meðal ungmenna á Suðurnesj-
um og síðar víðar.
9 Unga konan dó vegna eitrunar
71.394 lásu
Birtist: 26. september
n DV greindi frá því að andlát íslenskr-
ar konu sem lést í borginni Algeciras á
Spáni 16. september væri rannsakað af
lögreglunni á Spáni sem eitrun sam-
kvæmt ræðismanni Íslands á Malaga,
Per Dover Petersen. Hann sagði í samtali
við DV að beðið væri eftir niðurstöðum
eiturefnaskimunar en kærasti konunnar,
Kristján Markús Sívarsson, hafði verið yfir-
heyrður af lögreglu. Konan var rétt rúmlega
tvítug og hafði glímt við fíkniefnavanda um
nokkurt skeið.
10 Ung kona svipti sig lífi á Vogi
70.331 las
Birtist: 16. september
n 22 ára kona svipti sig lífi á sjúkrahúsinu
Vogi í september. Konan hafði um nokkurt
skeið glímt við vímuefnavanda og lauk
þeirri baráttu á þennan sorglega hátt. DV
greindi fyrst frá málinu en síðar stigu móðir
og amma konunnar, sem hét Ástríður Rán
Erlendsdóttir, fram í viðtali við Fréttablaðið
og sögðu frá baráttu Ástríðar, glímunni við
kerfið og það úrræðaleysi sem blasir við
fíklum og aðstandendum þeirra hér á landi.
Athygli vakti að konan hafði fallið heima hjá
þjóðþekktum manni á miðjum aldri.
ritstjorn@dv.is