Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Side 22
Áramótablað 30. desember 201422 Fréttir Lögreglan rýfur friðhelgi tuga einstaklinga 24. október Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu afhenti fjölmiðl- um, fyrir mistök, persónugreinan- legar upplýsingar um tugi ef ekki hundruð einstaklinga sem tóku þátt í búsáhaldabyltingunni 2008–2009. Almennir lögreglumenn og mót- mælendur eru á meðal þeirra sem nafngreindir eru í skýrslunni. Úr- skurðarnefnd um upplýsingamál hafði kveðið á um að skýrslan yrði aðgengileg með þeim fyrirvara að nöfn fjölda einstaklinga yrðu afmáð. Það gekk ekki eftir og litastilling í rit- vinnsluforriti olli því að yfirstrikuð nöfn sáust. Fjölmargir þeirra sem nafngreindir voru ætla að leita réttar síns vegna málsins. Verkfallsaðgerðir lækna hefjast 27. október Fyrsta lota verkfallsaðgerða lækna hófst með til- heyrandi töfum og þjónustuskerðingu heilsugæslu og heil- brigðisstofnana um land allt. Verkfallsaðgerðir héldu áfram fram að áramótum og sögð- ust læknar og heilbrigðisstarfsfólk vera langþreytt á lélegum launakjör- um og óboðlegum vinnuaðstæðum. Margir læknar sögðu upp störfum og hugðust fara erlendis til starfa. Leynilegasta svæði Íslands 29. október Eitt leynilegasta ör- yggissvæði Íslands er á Keflavíkur- flugvelli. Þar eru geymdar yfir 300 vélbyssur auk annarra vopna sem íslensk yfirvöld komast í ef svo ber við. Aðgangur að svæðinu er heft- ur með gaddavírsgirðingu og eru þeir sem yfir hana fara ákærðir og eiga von á allt að þriggja ára fang- elsisdómi. DV fór á stúfana og sýndi lesendum svæðið. Ótrúlegur hagnaður 29. október Skelj- ungsmálið svokall- aða, viðskipti Glitnis og Íslandsbanka með olíu- félagið Skeljung á árunum 2008 og 2009, fékk á sig nýja mynd á árinu. Í október og nóvember greindu fjöl- miðlar frá því að starfsmennirn- ir þrír hjá Íslandsbanka, Einar Örn Ólafson, Kári Þór Guðjónsson og Halla Sigrún Hjartardótt- ir, sem komu að sölu Skeljungs til nýrra meirihlutaeigenda árið 2008 hefðu sjálf hagnast um ríf- lega 800 milljónir króna hvert á þeim viðskiptum. Þremenningarn- ir fjárfestu í færeyska olíufélaginu P/F Magni sem eigendur Skeljungs, Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir og Guðmundur Þórðarson, keyptu árið 2009. Þau seldu því olíufélag út úr banka, hættu í bankanum og fóru svo í stórfelldar fjárfestingarnar með fólkinu sem þau höfðu selt olíufé- lagið. Halla Sigrún steig til hliðar sem stjórnarformaður Fjármála- eftirlitsins í kjölfar þessara frétta. Í hungurverkfalli 31. október Adam Ibrahim Pasha, gyðingur frá Írak, sem hafði verið í hungurverkfalli á Fit í Reykjanes- bæ lét af verkfallinu og byrjaði að nærast. Með hungurverkfallinu vildi hann mótmæla synjun Útlendingastofn- unar á efnislegri meðferð umsóknar sinnar um hæli á Íslandi. Ákvörðun Útlendingastofnunar var áfrýjað til innanríkisráðuneytis sem hefur þrjá mánuði til afgreiðslu málsins og verður Adam ekki vísað úr landi á tímabilinu. Hann var með dvalar- leyfi í Slóvakíu en varð fyrir ofsókn- um þar og óttaðist um líf sitt. Reknar 4. nóvember Átján konum var sagt upp störfum í Stjórnarráði Íslands. Konurnar störfuðu við ræstingar og eru á sextugs- og sjötugsaldri. Starfshlutfall þeirra var um 60 til 70 prósent. „Ljóst er að um er að ræða tekjulægsta hóp Stjórnarráðsins og allt konur á þeim aldri sem erfitt er að fá sambærileg störf annars staðar á sömu kjörum,“ sagði fulltrúi Efl- ingar, stéttarfélags kvennanna. Lokað á Deildu og PirateBay 5. nóvember Vodafone og Síminn lokuðu aðgangi viðskiptavina sinna að vefsíðum Deildu og PirateBay, þar sem höfundavörðu efni er deilt. Hún lemur son sinn 6.nóvember DV greindi frá því að kona sem dæmd var fyrir að beita son sinn ofbeldi héldi yfir drengnum forræði. Konan var dæmd fyrir að slá son sinn, sem þá var nýorðinn níu ára, með stólfæti í bakið, rassinn, handleggi, hægri mjöðm og í bringuna. Með þessari háttsemi misþyrmdi hún syni sínum bæði andlega og líkamlega þannig að heilsu hans var hætta búin. Bróð- ir drengsins óttaðist um hann og vildi að hann kæmi og byggi hjá honum. Já hf. sektað 7. nóvember Samkeppniseftirlitið lagði fimmtíu milljóna króna sekt á Já hf. fyrir brot á samkeppnislög- um. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Já hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir rekstur og heildsöluaðgang að gagnagrunni yfir símanúmer. Skuldaleið- réttingin kynnt 10. nóvember Forsætisráðherra og fjármála- og efna- hagsráðherra, ásamt verkefnisstjórn um höfuðstólsleið- réttingu, kynntu niður- stöður skuldaleiðréttingar- innar á fundi í Hörpu. Leiðréttingin mun lækka höfuðstól íbúðalána um 150 milljarða króna á næstu 3 árum og við fullnýtingu leiðréttingar lækkar höfuðstóll íbúðalána um allt að 20 prósentum. Gísli játar Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, játar að hafa lekið trúnaðargögnum úr ráðuneytinu – það er að hafa afhent skjal úr innanríkisráðuneytinu til fjölmiðla í nóvember 2013. Í tilkynningu sem Hanna Birna Kristjánsdóttir sendi fjölmiðlum, kom fram að Gísli hefði síðdegis, þann 11. nóvember , játað að hafa sent minnisblað úr ráðuneytinu. Í viðtali við Kastljós sagðist Gísli vera kominn á ákveðna endastöð með lygi sem hófst fyrir ári síðan. Hann hafi fest í lygavef. Þá sagðist hann ekki hafa áttað sig á því að þetta væri lögbrot á sínum tíma. Þann 12. nóvember var Gísli Freyr svo dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi, en við þinghaldið lagði saksóknari fram ný gögn í málinu sem talin voru varpa ljósi á sekt Gísla Freys. Gísli játaði sama dag og saksóknari hugðist leggja gögnin fram, en þinghaldi var frestað vegna þess að Gísla snerist hugur. 11. nóvember

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.