Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 24
Áramótablað 30. desember 201424 Fréttir
Afhenti
trúnaðargögn
19. nóvember DV
greindi frá því að
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir,
þáverandi lög
reglustjóri á
Suðurnesjum,
hefði áhyggjur af því
að upplýsingar úr rannsóknargögn
um frá lögreglunni á Suðurnesjum
væru komnar í hendur fjölmiðla,
þegar hún ræddi við Gísla Frey Val
dórsson, fyrrverandi aðstoðarmann
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innan
ríkisráðherra, að morgni dags þann
20. nóvember í fyrra. Samt sem
áður afhenti hún aðstoðarmann
inum viðkvæmar upplýsingar úr
sakamálarannsókn yfir Tony Omos
samdægurs. Sigríður segist hafa
starfað eftir lögum þegar hún af
henti gögnin, en aðrir hafa véfengt
að hún hafi breytt rétt þegar hún
sendi aðstoðarmanninum greinina.
Kaupir DV
21. nóvember
Pressan ehf.,
móðurfélag
Vefpressunnar
og vefmiðlanna
Pressunnar, Eyj
unnar og Bleikt,
keypti meirihluta
hlutafjár í útgáfufélaginu DV ehf.
Þann 21. desember samþykkti svo
Samkeppniseftirlitið samruna fé
laganna.
Ég get ekki
verndað hana
22. nóvember DV greindi
frá algengi hefndarkláms og
ræddi ítarlega við konur sem
hafa orðið fyrir því að fyrrverandi
kærastar eða sambýlismenn
sendi af þeim nektar
myndir til óprúttinna að
ila. Þingflokkur Bjartrar
framtíðar lagði í kjölfar
ið fram lagafrumvarp sem
beindi sjónum sínum sér
staklega að hefndarklámi.
Hættur
24. nóvember
Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri
Strætó, hætti störf
um. Ástæðan var sam
skiptaörðuleikar við stjórn Strætó
bs., meðal annars vegna viðskipta
Strætó við fyrirtæki í eigu bróður
Reynis, sem stjórninni var ekki
kunnugt um.
Missti aleiguna
27. nóvember Öldruð kona missti
aleiguna eftir málaferli við Garða
bæ. Konan stefndi vegna fram
kvæmda bæjarins sem ollu mikl
um skemmdum á einbýlishúsi.
Hún vann málið í undirrétti, en í
Hæstarétti tapaði hún og á hana féll
málskostnaður hennar og Garða
bæjar.
Byssunum skilað
27. nóvember
„Lögreglan þarf
að hafa getu til
að takast á við
svona mál þó svo
að vissulega voni
maður að ekkert
slíkt gerist,“ sagði Jón
Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá
Embætti ríkislögreglustjóra, en lög
regla vinnur nú að greinargerð til
ráðherra um aukna þörf hennar fyr
ir vopn og búnað. Nýlega var tekin
ákvörðun um að skila byssum sem
lögreglan hafði fengið frá Noregi.
Gríðarlegt álag
1. desember Gríðarlegt álag var á
björgunarsveitarfólki vegna óveðurs
sem gekk yfir landið og tæplega sex
hundruð manns sinntu útköllum á
einum sólarhring.
Vilja kaupa gögnin
3. desember Fjár
málaráðuneytið
segist vera reiðu
búið að tryggja þær
fjárheimildir sem
nauðsynlegar eru
til að ráðast í öflun á
lista yfir þá Íslendinga
sem geyma fjármuni í skattaskjól
um. Listinn er sagður geyma nöfn
nokkur hundruð Íslendinga og barst
frá erlendum aðila sem vill selja
skattrannsóknarstjóra gögnin.
Brynjar grét úr
hlátri
5. desember
Brynjar Níels
son, þingmað
ur Sjálfstæðis
flokksins, fékk
bráðsmitandi hlát
urskast í viðtali hjá fréttastofu Ríkis
útvarpsins þegar hann sagði skoðun
sína á skipan Ólafar Nordal sem
innanríkisráðherra. Brynjar var einn
þeirra sem hafði lýst áhuga á emb
ættinu en þegar hann var spurður
hvort hann væri svekktur yfir þessu
vali. „Nei, nei, ég er ekkert svekkt
ur. Ég er alltof gamall til þess og ég
er ekki fýlugjarn maður þótt útlitið
sé eins og það er,“ svaraði Brynjar og
sló þar með fréttamann Sjónvarps
ins algjörlega út af laginu.
Datt úr rútu á ferð
9. desember Sjö ára gamall dreng
ur féll út úr rútu á ferð. Nemandinn
datt út úr rútunni á ferð á gatnamót
um Kársnesbrautar og Urðarbraut
ar. Hann var í belti í rútunni sem
virðist hafa losnað og hann fallið að
hurð sem opnaðist. Við þetta datt
nemandinn út á götu, án þess að
bílstjórinn yrði þess var.
Gamla, góða hefðin
11. desember Á aðventunni snerist
umræðan, sérstaklega á netinu, að
mestu um kirkjuheimsóknir grunn
skólabarna. Líf Magneudóttir sagð
ist telja að heimsókn grunnskóla
barna í Reykjavík í kirkjur þar sem
þau hlýddu á hugvekju, samræmd
ist ekki reglum mannréttindaráðs
Reykjavíkurborgar. Margir blönduðu
sér í umræðuna sem var ansi
hatrömm. Ólafur Stephensen, fram
kvæmdastjóri Félags atvinnurek
enda og fyrrverandi ritstjóri Frétta
blaðsins, hvatti til dæmis foreldra,
sem eru sáttir við kirkjuferðir grunn
skóla í Reykjavík, til þess að láta ekki
gagnrýni minnihlutans yfir sig ganga.
Tony á götunni
12. desember „Ég veit ekki hvað
ég hef gert til þess að eiga þessa
framkomu stjórnvalda skilið,“
sagði Tony Omos í viðtali við DV.
Útlendingastofnun og íslenska rík
ið voru sýknuð af kröfu Tonys um
ógildingu ákvörðunar Útlendinga
stofnunar um að taka hælisumsókn
hans ekki til efnislegrar meðferð
ar. Þetta þýðir að hann fær ekki að
sameinast barnsmóður sinni, Eve
lyn Glory Joseph, og tíu mánaða
syni þeirra.
Jónína í fangelsi
22. desember
Jónína Benedikts
dóttir athafnakona
var dæmd til 30
daga fangelsisvistar
og svipt ökurétti ævi
langt í Héraðsdómi
Reykjavíkur í janúar síð
astliðnum. Jónína var ákærð fyrir að
umferðarlagabrot með því að hafa
undir áhrifum áfengis ekið bifreið í
janúar 2013. Hún neitaði sök og hafn
aði því að hafa verið undir áhrifum
áfengis og kvaðst hafa innbyrt áfengi
eftir að hún stöðvaði bifreiðina.
Söngskólinn í Reykjavík
Í byrjun janúar verða inntökupróf í örfá skólapláss sem losna:
12. janúar byrja 7 vikna söngnámskeið:
SÖNGNÁMSKEIÐ
• Unglingadeild yngri 11-13 ára
• Unglingadeild eldri 14 -15 ára
• Almenn tónlistardeild Grunn-/ Mið-/ Framhaldsnám
• Háskóladeild Einsöngs-/ Söngkennaranám
• fyrir áhugafólk á öllum aldri
• kennt utan venjulegs vinnutíma
• raddbeiting / túlkun / tónfræði
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10–16 alla virka daga• www.songskolinn.is
SÖNGNÁM
Hanna hættir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sagði af sér. Hún sagði að eftir umtalsverða umhugsun hafi hún tilkynnt Bjarna Benediktssyni að hún vildi hætta
sem ráðherra og sæktist ekki lengur eftir því að gegna embætti innanríkisráðherra. Í hennar stað var ráðin Ólöf Nordal, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hanna Birna mun
halda áfram sem þingmaður eftir áramót.
21. nóvember