Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Side 30
Áramótablað 30. desember 2014
Átök, öfgasamtök, mannrán og slys
30 Fréttir
Íslamska ríkið lét
á sér kræla
3. janúar Víga-
menn súnníta
sem kenna sig
við Íslamskt ríki
náðu völdum í
borgunum Falluja
og Ramadi í Anbar-
héraði í Írak. Samtökin
áttu eftir að koma mikið við sögu í
fréttum árið 2014.
Ariel Sharon lést
11. janúar Ariel
Sharon, fyrrver-
andi forsætis-
ráðherra Ísraels,
gaf upp öndina.
Sharon, sem
gegndi embætti
forsætisráðherra
landsins frá 7. mars 2001 til 14. apríl
2006, hafði legið í dái síðan 4. janúar
2006, eða allt frá því að hann fékk
heilablæðingu. Dánarorsök hans
var sögð vera hjartaáfall. Sharon var
85 ára.
Áköf mótmæli
í Úkraínu
16.–28. janúar Mótmælaaldan í
Úkraínu sem hófst í nóvember 2013
hélt áfram í ársbyrjun. Þingið sam-
þykkti lög sem takmörkuðu mjög
rétt almennings til mótmæla á göt-
um úti og brugðust mótmælendur
hart við. Fimm mótmælendur létu-
st í átökum við lögreglu í kjölfarið.
Þann 28. janúar ákvað Viktor Yanu-
kovich, þáverandi forseti, að aflétta
takmörkunum til mótmæla.
Ólympíuleikarnir
í Sochi settir
7. febrúar Þrátt
fyrir ógnan-
ir um hryðju-
verk, kvartan-
ir um slælegan
undirbúning
og afstöðu rúss-
neskra stjórnvalda
til réttindabaráttu samkynhneigðra
voru Vetrarólympíuleikarnir í Sochi
settir með bravúr. Vladimír Pútín
Rússlandsforseti setti leikana. Leik-
unum var slitið þann 23. febrúar og
gengu þeir áfallalaust fyrir sig að
mestu leyti.
Fyrsti fundurinn
í 65 ár
10. febrúar Grunnt hefur verið á
því góða milli yfirvalda í Kína og
Taívan um langt skeið. Það breyttist
eitthvað allavega þann 10. febrúar
þegar hátt settir embættismenn
frá Kína og Taívan hittust á fundi í
borginni Nanking í Kína. Embættis-
menn þessara ríkja höfðu ekki rætt
málin augliti til auglitis síðan árið
1949. Þó að fundurinn hafi ekki skil-
að neinni niðurstöðu þótti hann til
marks um vilja beggja ríkja til betri
samskipta.
Ofbeldisfull
mótmæli
12. febrúar Íbúar
Venesúela höfðu
fengið sig fullsadda
af slæmum efnahag
og þustu út á götur til
að mótmæla. Þann 12.
febrúar urðu mótmælin ofbeldisfull
þegar hópur mótmælenda kastaði
grjóti í opinberar byggingar og lög-
reglumenn. Þrír mótmælendur létu-
st í átökunum.
Mannréttindi
fótum troðin í
Norður-Kóreu
17. febrúar Sameinuðu þjóðirnar
birtu svarta skýrslu um stöðu mann-
réttinda í Asíuríkinu Norður-Kóreu.
Þar voru yfirvöld í Pyongyang sökuð
um glæpi gegn mannkyni og var þeim
líkt við ógnarstjórn nasista á tímum
síðari heimsstyrjaldarinnar. Fullyrt
var í skýrslunni að í Norður-Kóreu
væru 80 til 120 þúsund pólitísk-
ir fangar og mæltu skýrsluhöfundar
með því að Alþjóðaglæpadómstóllinn
tæki málefni Norður-Kóreu til með-
ferðar. Þá voru Kínverjar sagðir hylma
yfir glæpi granna sinna.
Guzman
gómaður
24. febrúar Glæpa-
kóngurinn Joaquin
Guzman Loera, eða El
Chapo, var handtekinn í bæn-
um Mazatlan í Mexíkó. El Chapo
var efstur á lista FBI yfir eft-
irlýsta glæpamenn en hann
var einn umsvifamesti
eiturlyfja barón Mexíkó og
forystusauður Sinaloa-hr-
ingsins. El Chapo hafði verið
eftirlýstur í 13 ár áður en hann
var loksins gómaður.
Rússar á
Krímskaga
1.–27. mars Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti sendi hersveitir til
Krímskaga þann 1. mars og bar fyr-
ir sig að markmiðið væri að vernda
Skálmöld í Úkraínu Mótmælin gegn yfirvöldum í Kænugarði héldu áfram en til tíðinda dró þann 20. febrúar þegar
óeirðalögreglu og mótmælendum lenti saman. Ástæðan var tilraun mótmælenda til að koma sér aftur fyrir á Sjálfstæðistorginu í
Kænugarði þaðan sem þeir höfðu verið hraktir á brott. Yfir 100 manns féllu í valinn en þessu til viðbótar höfðu 67 fallið til dagana á undan.
Daginn eftir var fallist á vopnahlé og lofaði Viktor Yanukovich forseti að haldnar yrðu kosningar fyrir árslok og völd hans minnkuð.
Stjórnarandstaðan hélt þeirri kröfu til streitu að Yanukovich færi frá völdum. Þann 22. febrúar yfirgaf Yanukovich Úkraínu og var bráða-
birgðastjórn sett á laggirnar í kjölfarið. Yanukovich hélt því fram að hann væri þó enn forseti Úkraínu. Arsen Avakov, innanríkisráðherra til
bráðabirgða, gaf út handtökuskipun á Yanukovich þann 24. febrúar. Þann 27. febrúar hófu íbúar á Krímskaga, sem voru hollir Yanukovich, að
mótmæla framgangi mála í Kænugarði og meðferðinni á Yanukovich sem þeir töldu ósanngjarna. Byssumenn með grímur lögðu undir sig
stjórnarbyggingar í Sinferopol, höfuðstað Krímskaga, þann 28. febrúar.
20.–28. febrúar
erlendur fréttaannáll 2014