Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Qupperneq 34
Áramótablað 30. desember 201434 Fréttir
Skotar sögðu nei
18. september
Skotar gengu að
kjörborðinu þann
18. september og
höfnuðu að ganga
úr ríkjasam-
bandi við England,
Wales og Norður-Ír-
land. Kosningarnar fóru þannig að
55 prósent vildu halda áfram sam-
bandinu – og tilheyra þannig Bret-
landi – en 45 prósent vildu sjálfstætt
Skotland.
Morales
endurkjörinn
12. október
Evo Morales, for-
seti Bólivíu, var
endurkjörinn
í embætti með
61 prósenti at-
kvæða. Morales,
sem er á sínu þriðja
kjörtímabili, tileinkaði vini sínum,
Hugo Chavez heitnum, fyrrverandi
forseta Venesúela, sigurinn.
Blackwater-liðar
dæmdir
22. október Fjórir liðsmenn
Blackwater, einkarekinnar banda-
rískrar öryggisþjónustu, voru sak-
felldir fyrir morð og manndráp á
17 óbreyttum írökskum borgurum
árið 2007. Einn, Nicholas Slatten,
var sakfelldur fyrir morð en þrír fyrir
manndráp að yfirlögðu ráði.
Áfram barist
gegn ebólu
6.–12. nóvember Barack
Obama Bandaríkjaforseti
lagði aukinn þunga í bar-
áttuna gegn útbreiðslu ebólu.
Þann 6. nóvember tilkynnti hann
að sex milljörðum Bandaríkjadala
yrði varið í að hefta útbreiðslu sjúk-
dómsins. Þann 12. nóvember var
staðfest að 14.098 hefðu veikst og
þar af 5.160 látist úr sjúkdómnum á
heimsvísu.
Til liðs við
Íslamska ríkið
10. nóvember Ein skæðustu hryðju-
verkasamtök Egyptalands, Ansar
Beit al-Maqdis, tilkynntu að
þau hefðu gengið til liðs
við Íslamska ríkið. Sam-
tökin hafa staðið á bak við
fjölda sprengjutilræða í Eg-
yptalandi á undanförnum
árum.
Myrtu fjölmörg
skólabörn
16. desember
Talíbanar gerðu
árás á skóla
í Peshawar í
Pakistan og
myrtu um 145
manns, þar af
fjölmörg börn.
Talið er að um 500 börn hafi verið
í skólanum, sem rekinn er af hern-
um, þegar vopnaðir vígamenn réð-
ust inn og hófu skothríð. Börnin
voru í prófum. Talsmaður talíbana
sagði að árásin væri svar talíbana
við árásum sem gerðar hafa verið á
þá að undanförnu.
Tilraunageimfar sprakk Tilraunageimfar Virgin Galactic, SpaceShipTwo, liðaðist í sundur yfir Mojave-eyðimörkinni
skömmu eftir flugtak. Í slysinu lést aðstoðarflugmaður farsins, Michael Alsbury, en flugmanninum Peter Siebold tókst að skjóta sér út úr
farinu áður en það brotlenti. Talið er að slysið megi rekja til gallaðs búnaðar sem gerði að verkum að farið hægði á sér of snemma eftir flugtak.
31. október
Þúsundir mótmæltu í Mexíkó Þúsundir þustu út á götur Mexíkóborgar til að mótmæla vegna 43 nema sem hurfu sporlaust þann 26. september. Lík 28 þeirra fundust í fjöldagröf í Iguala í suðurhluta landsins.
Talið er að nemunum hafi lent saman við lögreglu með fyrrgreindum afleiðingum. Tuttugu og tveir lögregluþjónar voru handteknir í kjölfarið en allir voru þeir taldir hafa tengsl við glæpasamtök á svæðinu. Mótmælin í Mexíkó gegn spillingu í
lögreglunni héldu áfram. Þann 27. nóvember hét Enrique Pena Nieto, forseti landsins, að leggja aukinn þunga í baráttuna gegn spillingu.
16. nóvember
Gíslataka á kaffihúsi Vopnaður maður hélt gestum Lindt-kaffihússins í
fjármálahverfi Sydney í Ástralíu í gíslingu í um sautján klukkustundir. Gíslatökumaðurinn,
Man Haron Monis, var skotinn til bana af lögreglu en áður en hann féll varð hann tveimur
gíslum að bana, 34 ára karlmanni og 38 ára konu. Monis fékk pólitískt hæli í Ástralíu árið 1996
eftir að hafa komið frá heimalandi sínu, Íran. Hann var grunaður um morð á eiginkonu sinni í
apríl 2013 en sleppt gegn tryggingu.
15. desember
Lentu á halastjörnu
Sögulegur atburður varð þann 12. nóvember
þegar tókst að lenda könnunarfari á
halastjörnu. Könnunarfarið sem um ræðir,
Philae, var tæp ellefu ár á flugi um
himingeiminn og þurfti bókstaflega allt að
ganga upp til að farið lenti heilu og höldnu á
stjörnunni.
12. nóvember