Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Page 37
Umræða 37Áramótablað 30. desember 2014
Ég fékk bara áfall Ríkisstjórn Íslands réðst
gegn tjáningarfrelsinu
Ég varð svo reið á föstu-
daginn, að ég bara grét
Helga Björk Viggósdóttir fékk yfir sig þakkant og bárujárn í miðbæ Reykjavíkur. – DV Auður Jónsdóttir sakar íslensk stjórnvöld um valdablindu. – KjarninnRakel Árnadóttir mætti of seint á tónleika vegna klúðurs hjá ferðaþjónustu fatlaðra. – DV
R
ússar brynja sig með
bröndurum. Nú segja þeir
við eldhúsborðin heima
hjá sér, að nýtt ár stefni
á töluna 63. Olíuverð á
heimsmarkaði stefnir á 63 dali
fatið (var 120), gengi rúblunnar
stefnir á 63 rúblur fyrir hvern dal
(var 33), og Pútín verður 63. Þegar
olían kostar 120 dali fatið, segja
þeir, er Rússland górilla; 63 dal-
ir, simpansi. Það segir sína sögu
um muninn á orkubúskap Norð-
manna og Rússa, að 40% verð-
lækkun olíu á heimsmarkaði að
undanförnu hefur haldizt í hendur
við 6% gengisfall norsku krónunn-
ar og 50% gengisfall rúblunnar.
Lífskjör Rússa eru miklu háðari
olíuverði en lífskjör Norðmanna.
Norðmenn kusu að hlífa þjóðarbú-
skap sínum við sveiflum í olíuverði
með því að leggja langmestan
hluta olíutekna sinna í sameigin-
legan lífeyrissjóð, sem þeir geyma
og ávaxta erlendis utan seilingar
stjórnmálamanna. Þessi lífeyris-
sjóður allra landsmanna nemur
nú 170.000 dölum á hvert manns-
barn í Noregi, eða 22 milljónum ís-
lenzkra króna á mann.
Auðlindir í þjóðareigu
Norsk tunga á ekkert orð yfir inn-
lenda olíufursta eða fávalda
(ólígarka), enda eru þeir ekki til.
Norska stórþingið bjó svo um
hnútana, að olían í lögsögu Noregs
var frá byrjun skilgreind í lögum
sem auðlind í þjóðareigu líkt og
vatnsföllin, sem Einar Benedikts-
son skáld hjálpaði Norðmönnum
við að virkja fyrir 100 árum. Þannig
var girt fyrir tilurð norskra orku-
greifa og olíufursta. Rússar leiddu
á hinn bóginn orðið „ólígarki“
inn í orðaforða heimsins með
því að færa þjóðareignir í hend-
ur einkavina valdhafanna. Rússar
höfðu áður fært heiminum mörg
önnur gagnleg og lýsandi orð svo
sem „apparatchik“ (flokkshundur)
og „nomenklatura“ (flokkshund-
ar, safnheiti) og einnig „glasnost“
(gagnsæi) og „perestrojka“ (um-
skipti).
Búhnykkur fyrir
heiminn í heild
Lækkun olíuverðs að undanförnu
virðist eiga sér tvær höfuðskýr-
ingar. Annars vegar hefur dregið
a.m.k. í bili úr eftirspurn eftir olíu
vegna minni umsvifa, t.d. í Kína.
Hins vegar hefur framboð olíu og
skyldra orkugjafa aukizt varanlega
í Bandaríkjunum. Lækkun olíu-
verðs kann því að reynast langvinn
lyftistöng undir heimsbúskapinn.
Hagur olíuinnflutningsríkja af
lægra olíuverði er meiri en skað-
inn, sem olíuútflutningsríki verða
fyrir af völdum lækkunarinnar.
Lækkun olíuverðs gagnast venju-
legu fólki og fyrirtækjum í olíuinn-
flutningslöndum með því að draga
úr orkukostnaði. Lækkunin dreifist
tiltölulega jafnt, einkum ef bensín-
verð lækkar til samræmis við lækk-
un á verði innfluttrar olíu svo sem
vera ber, en virðist þó láta á sér
standa hér heima. Lækkun olíu-
verðs kemur á hinn bóginn yfirleitt
ólíkt niður í olíuútflutningslönd-
um. Hún leggst af mestum þunga
á þá, sem tókst að sölsa undir sig
olíulindirnar, nema þeim takist
einnig að varpa byrðunum yfir á
saklausa vegfarendur, t.d. með
gengisfalli.
Þau lönd, sem verða fyrir mest-
um búsifjum af völdum lægra olíu-
verðs eins og nú háttar, eru auk
Rússlands m.a. Alsír, Íran, Líbía,
Nígería, Sádi-Arabía og Venesúela.
Þessi lönd eiga það öll sammerkt,
að almenningur, réttur eigandi
olíulindanna skv. lögum og alþjóð-
legum mannréttindasáttmálum,
hefur hingað til ekki nema að litlu
leyti fengið að njóta arðs af eign
sinni. Þetta sést greinilega, ef við
hugsum okkur hækkun olíuverðs.
Í olíuútflutningslöndum fellur
verðhækkun á olíu einkum þeim
í skaut, sem tókst að sölsa undir
sig olíuna (t.d. konungsfjölskyld-
an í Sádi-Arabíu, herforingjar og
stjórnmálamenn í Nígeríu o.s.frv.).
Í olíuinnflutningslöndum kemur
olíuverðshækkun jafnar niður, t.d.
við bensíndæluna.
Olíuinnflutningsríkin eru
margfalt fleiri en hin. Margir gjalda
hækkunar olíuverðs, en fáir njóta
hennar. Líku máli gegnir um and-
hverfuna: Margir njóta lækkunar
olíuverðs, en fáir gjalda hennar.
Lækkun olíuverðs að undan-
förnu getur einnig óvænt komið
sér vel fyrir ýmis lönd, sem hafa
nýlega fundið olíu og fengið of-
birtu í augun og komast nú von-
andi aftur niður á jörðina. Þetta
á t.d. við um Gana, Mósambík,
Tansaníu og Úganda. Þessi lönd
eru e.t.v. líklegri nú en áður til að
velja sér fyrirmyndir frá Noregi
frekar en Nígeríu.
Ísland, Noregur og Rússland
Íslendingar líkjast Rússum, bæði
í útliti og að upplagi. Skyldleikinn
leynir sér ekki. Báðar þjóðir eiga
sér langa og merka menningar-
sögu. Rússland er rétt nefnt stór-
veldi í bókmenntum og listum.
Stjórnmálin gista annað þróunar-
stig í báðum löndum af áþekkum
ástæðum að ýmsu leyti, og mætti
rekja skyldleikann í löngu máli.
Öðruvísi væri nú um að litast
hér heima, hefði auðlindastjórn á
norska vísu verið lögð til grund-
vallar íslenzkum sjávarútvegs- og
orkumálum eins og margir lögðu
til. Alþingi hefur hlunnfarið fólkið
í landinu með því að „selja“ ríkis-
eignir, t.d. gömlu ríkisbankana, á
rússneska vísu, þ.e. afhenda þær
einkavinum á undirverði, og með
því að veita útvegsmönnum og er-
lendum fyrirtækjum ýmist ókeyp-
is eða niðurgreiddan aðgang að
auðlindinni í sjónum og orkunni
uppi á landi líkt og tíðkazt hefur
og tíðkast enn sums staðar í þró-
unarlöndum. Þetta hangir saman.
Ekkert af þessu þætti boðlegt í
Noregi. n
Olíusögur um áramót
Þorvaldur Gylfason
skrifar
Kjallari
Á
æskuheimili mínu var afar
gestkvæmt. Það gerðist, í þá
daga þegar ég var að vaxa hér
úr grasi, að fólk fór í heim-
sókn. Og það sem meira er; í flest-
um tilvikum var um það eitt að ræða
að njóta lífsins og gleðja aðra. Það
gerðist að heim til okkar kom hópur
af fólki sem skyndilega brast í söng
og svo tóku allir undir og hvert lagið
var tekið á fætur öðru.
Það gerðist í þá daga, að einfald-
lega var slökkt á sjónvarpi og útvarpi
og fólk sat í stofunni og ræddi málin.
Ég man meira að segja stundir, þar
sem mamma og pabbi sátu hvort
með sína bókina í stofunni og lásu.
Um áramót er eðlilegt að ég
rifji upp svona æskuminningar;
að ég sjái í hugskoti mínu tírurn-
ar sem lýstu upp æskuheiminn.
Það er nefnilega hægt að staðsetja
eitt og annað í fortíðinni, jafnvel
þótt hún sé ekki til … ekki frekar
en framtíðin. En það man ég, að
fólk ræddi málin þegar vinir komu
í heimsókn. Og lykillinn að vinátt-
unni, var kannski fyrst og fremst
sá, að afstaða var ýmist tekin með
þeim sem sigraði eða þeim sem
tapaði. Vináttan var byggð á sann-
gjarnri afstöðu; heimssýn sem ekki
var á fyrirframástæðu reist, einsog
t.d. aðild að stjórnmálaflokki eða
einhverju slíku. Auðvitað skiptist
fólk í fylkingar þá eins og nú, en
hin fordómafulla afstaða til þeirra
sem tapa og hin einlæga sigur-
vegarahollusta komu eiginlega fyrst
alvarlega til sögunnar, þegar hann
Kennedy féll í hildarleik heimsku-
nnar. Þá var einsog nýrri vídd hefði
verið blásið í vitund íslenskrar al-
þýðu. Og það merkilega er, að þetta
var á fyrstu árum sjónvarpsins. Frá
og með þeirri fórn, hefur hollust-
an sú arna verið vatn á myllu ófrið-
ar, illdeilna, misréttis, kúgunar, for-
dóma og yfirleitt alls sem hefur það
að markmiði að reyna að draga úr
mætti dygða.
Vináttan sem ég sá í augum
fólksins sem kom á mitt æskuheim-
ili, var kaffærð í skylduáskrift að af-
stöðu til alls; að halda með sigur-
vegaranum á kostnað þess sem er
dæmdur til að tapa. Niðurlægingin
varð sýnileg þegar fólk hóf að ein-
angra sig við sjónvarpsgláp og
leyfði óheftri mötun peningaafla og
firringar að gera sér hreiður í hverju
sálartetri.
Í fyrra hafði ég þá heimspeki-
legu afstöðu, að strengja þess heit
að strengja ekki áramótaheit. Sú
áætlun var dæmd til að mistakast.
Um þessi áramót, strengi ég þess
heit að efla vináttu á árinu sem er
að mæta. Sigurvegarar mínir verða
þeir sem styðja vináttu, frið og fög-
ur gildi. n
Kærleikur það aflið er
sem aldrei skal ég týna
og vil því fá að veita þér
vináttuna mína.
Ef við erum sigurvegarar …
Kristján Hreinsson
Skáldið
skrifar
„ Í fyrra hafði ég þá
heimspekilegu af-
stöðu, að strengja þess
heit að strengja ekki ára-
mótaheit.
„Norska stórþingið
bjó svo um hnút-
ana, að olían í lögsögu
Noregs var frá byrjun skil-
greind í lögum sem auð-
lind í þjóðareigu.
1 Hrekkjalómur orðlaus eftir að hann sá hvað úti-
gangsmaður gerði við gjöfina
Myndband sem sýnir vopnin slegin úr
höndum hrekkjalómsins Josh Paler Lin
hefur vakið mikla athygli. Josh Paler Lin
gaf heimilislausum manni 100 dollara
og fylgdist leynilega með honum. Lin
taldi að heimilismaðurinn færi beint í
áfengisbúð og fengi sér í aðra tána en sú
varð ekki rauninni. Útigangsmaðurinn
fór þess í stað og keypti mat og gaf
öðrum með sér.
Lesið: 51.767
2 Sigmundur Davíð sæmd-ur stórkrossi: Enginn
látinn vita Forsætisráðherra
Íslands, Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, var sæmdur æðsta heiðursmerki
sem íslenska ríkið veitir íslenskum eða
erlendum borgara fyrir utan þjóð-
höfðingja; stórkross hinnar íslensku
fálkaorðu. Fjölmiðlar fengu ekki að vita
af athöfninni og þá er ekki vitað hvort
hún hafi farið fram á Bessastöðum líkt
og venja er.
Lesið: 41.783
3 Myndir náðust af bíl kirkjugarðsníðingsins
Myndum af öðrum bílnum sem olli
miklum skemmdum fóru í dreifingu á
samfélagsmiðlum. Þar sást jepplingur
af gerðinni Kia Sorento vera pikkfastur í
kirkjugarðinum.
Lesið: 36.315
4 Árna var hópnauðgað þegar hann var 13 ára
Árna Viljari Skjóldal hefur tvisvar verið
nauðgað, í fyrra skiptið var hann aðeins
þrettán ára gamall. Hann var þá bú-
settur í Noregi og hafði einangrast mikið
vegna eineltis. Árni sagði sögu sína í
jólablaði DV og vill nýta erfiða reynslu
til að hjálpa öðrum. „Þetta gerðist fyrst
þegar ég var þrettán ára og það voru
fleiri en einn gerandi. Þeir voru bara
fimmtán og sextán ára,“ segir Árni sem
lokaði á þessa erfiðu lífsreynslu og sagði
engum frá fyrr en löngu síðar.
Lesið: 36.081
5 Sjáðu myndir úr Íslands-ferð Jay-Z og Beyoncé
Stórstjörnurnar Beyoncé og Jay-Z
heilluðust af Íslandi fyrr í desember. Þau
hafa birt myndir úr ferðalagi sínu hér á
landi á samfélagsmiðlum. Þar má sjá
hjónin skála í kampavíni fyrir framan
þyrlu í snjókomu á Íslandi og taka stuð-
hopp í appelsínugulum snjógöllum eftir
vel heppnaða vélsleðaferð. Einnig eru
myndir úr ferð þeirra hjóna í Bláa lónið
og úr afmælisveislu Jay Z.
Lesið: 35.379
Mest lesið
á DV.is