Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 42
Áramótablað 30. desember 201442 Fréttir
Stórbruni í Skeifunni
Stórbruni varð í Skeifunni, meðal annars
Skeifunni 11 og húsum í næsta nágrenni, þar
á meðal eru fyrirtækin Fönn, Griffill og fleiri
sem brunnu til kaldra kola. Mynd Sigtryggur Ari
Fangelsisdómur
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi að-
stoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
fyrrverandi innanríkisráðherra, var í nóvem-
ber dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa lekið trúnaðarupp-
lýsingum um hælisleitandan Tony Omos úr
innanríkisráðuneytinu. Mynd Sigtryggur Ari
Leit í
Bleiksárgljúfri
Í júní fannst Pino
Becerra Bolaños látin í
Bleiksárgljúfri í Fljótshlíð.
Eftir langa og þrotlausa
leit fannst sambýliskona
hennar, Ásta Stefánsdóttir,
einnig látin, á svipuðum
slóðum. Mynd LAndSbjörg / guð-
brAndur örn
Málefni hælisleitenda Málefni hælisleitenda urðu í brennidepli í
innanríkisráðuneytinu. Hér ræðir Hanna Birna Kristjánsdóttir, þáverandi ráðherra, við hóp
fólks vegna mótmælasveltis Ghasems Mohamadi. Mynd Sigtryggur Ari
Skölluð í andlitið Anna var að klappa hundi nágranna síns í grennd við
heimili sitt við Njálsgötu þegar granninn kom, sagði henni að láta hundinn vera og skallaði
hana í andlitið. Mynd Sigtryggur Ari
Eldur í Rimaskóla Eldur kom upp í kennslustofu, svokölluðum skúr, við
Rimaskóla í Grafarvogi. Nemendum var safnað saman í íþróttahúsi á meðan slökkvilið vann
sitt starf. Enginn meiddist, en skúrinn brann til kaldra kola. Mynd Sigtryggur Ari
Náttúruhamfarir og pólitísk átök
fréttamyndir frá árinu 2014