Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Side 51
Áramótablað 30. desember 2014 Sport 51
Ár Garðbæinga og strákanna okkar
n Brasilíumenn grétu á heimavelli n Gerrard brást á ögurstundu n Stjörnumenn stálu senunni n Krísuvíkurleið á heimsmeistaramót í handbolta
Eiður til
Englands
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
ekki sungið sitt síðasta. Eftir hlé
frá knattspyrnuiðkun samdi þessi
magnaði knattspyrnumaður
á nýjan leik við enska félagið
Bolton. Þó að Eiður sé 36 ára
verður forvitnilegt að fylgjast með
honum á Englandi á nýjan leik.
Stórmót í Laugardalshöll EM í hópfimleikum var haldið með glæsibrag í
Laugardalshöll í október. Þó að íslensku liðunum hafi ekki tekist að vinna til gullverðlauna var árangurinn góður
og mótið, eitt það stærsta sem haldið hefur verið hér á landi, var hreyfingunni til sóma.
Story stöðvaði Nelson
Gunnar Nelson fikrar sig hægt en örugglega upp
metorðalistann í UFC. Hann sigraði Zak Cummings
örugglega í Dublin í júlí en tapaði naumlega á stig-
um gegn Rick Story í október. Um var að ræða fyrsta
tap Gunnars í UFC en dómarar voru ekki sammála
um það hvor hefði haft betur. Eins og sést leit Story
töluvert verr út eftir bardagann en okkar maður.
Íslendingur á HM Aron Jóhannsson varð þann 16. júní fyrsti
Íslendingurinn til að spila leik á HM, þegar hann kom inn á sem varamaður á 23. mínútu í
leik Bandaríkjanna og Gana í fyrsta leik liðanna á mótinu. Bandaríkjamenn unnu leikinn
með sigurmarki undir lok leiks. Allir höfðu fyrirgefið Íslendingnum fyrir að velja Banda-
ríkin frekar en íslenska landsliðið.
Bakdyramegin á HM
Sirkusinn í kringum HM í handbolta, sem fram fer í Katar, var
áberandi í íþróttafréttum haustsins. Ísland tapaði umspilsein-
vígi við Bosníu í sumar og útlit var fyrir að strákarnir okkar
væru að missa af sínu fyrsta stórmóti í langan tíma. Ísland var
fyrsta varaþjóð en Alþjóða handknattleikssambandið breytti
reglunum þannig að unnt væri að veita lærisveinum Dags
Sigurðssonar, Þjóðverjum, þátttökurétt. Peningafnykur var af
málinu og Ástralir, sem misstu sæti sitt, skildu hvorki upp né
niður. HSÍ fór í hart en áður en það mál varð til lykta leitt duttu
fleiri þjóðir úr skaftinu vegna framkomu Katar við nágranna-
þjóðir sínar. Hefðu nýju reglur alþjóðasambandsins gilt hefði
Ísland heldur ekki fengið annað tveggja þeirra sæta sem losn-
uðu. En rykið var dustað af gömlu reglunum og Handknattleikssamband Evrópu gat úthlutað
Íslandi laust sæti. Svíar og aðrir verðandi mótherjar Íslands í Katar, voru ekkert sérstaklega
hrifnir. Þeir höfðu gert ráð fyrir því að mæta Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Ævintýri
í Garðabæ
Evrópuævintýri Stjörnu-
manna fór ekki fram hjá
nokkrum knattspyrnu-
unnanda í sumar.
Stjörnumenn lögðu
Bangor, Motherwell
og pólska liðið Lech
Pznan að velli áður en
liðið lét í minni pokann
fyrir stórliði Inter Milan.
Viðureignirnar tvær
fóru samtals 9–0 en
Stjörnumenn geta borið
höfuðið hátt.
Í fyrsta skipti á EM Sjaldan hefur tapleik verið fagnað jafn innilega
og í Laugardalshöllinni þann 27. ágúst. Strákarnir okkar í körfuboltalandsliðinu töpuðu þá með
átta stigum fyrir Bosníu. Það kom ekki að sök þar sem liðið endaði ofar en Bretland, og tryggði
sér fyrir vikið þátttökurétt í fyrsta skipti í lokakeppni EM. Spánverjar og Tyrkir verða á meðal
andstæðinga Íslands næsta haust.
Spurs bestir
Miami átti ekkert erindi í San
Antonio Spurs í úrslitaeinvíginu í
NBA. Leikirnir voru óspennandi því
San Antonio hafði yfirburði og vann
einvígið að lokum 4–1.
Lærisveinar Lars í stuði
Fáir áttu kannski von á því að íslenska landsliðið
í knattspyrnu fylgdi eftir góðum árangri sínum í
undankeppni HM. Undankeppni EM hófst á árinu og
strákarnir eru í erfiðum riðli. Þrír fyrstu leikirnir unnust
þar sem ótrúlegan heimasigur á bronsliði Hollendinga
bar hæst. Íslendingar létu í minni pokann fyrir Tékkum í
síðasta leik ársins en eru í vænlegri stöðu í riðlinum.
mynd Axel Finnur GylFAson