Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Síða 64
Áramótablað 30. desember 201464 Fólk „Árið byrjaði með sælu og sorg“ Jónína Leósdóttir „Hjá mér hefur 2014 verið skólabókardæmi um það bland í poka sem lífið er. Árið byrjaði með sælu og sorg. Hinn 9. jan- úar fæddist sjöunda barnabarn okkar Jóhönnu, gleðigjafinn Nína, og viku síðar lést mamma mín, Fríða Björg Loftsdóttir. Það var sérstakt að upplifa jafnólíkar tilfinningar á sama tíma, vera í senn hamingjusöm og syrgjandi. Í maí stóð ég síðan frammi fyrir annars konar tímamótum þegar ég varð sextug. Annars einkenndist árið aðallega af skrifum og þar sem ég hef einstaklega gaman af vinnunni minni þýðir það að 2014 var gott ár. Og þátttaka okkar Jóhönnu í mannréttindaráðstefnunni World Pride Human Rights Conference í Toronto var áhrifamikil reynsla sem seint gleymist. Svona almennt finnst mér árið 2014 hafa verið fremur dapurt hér á Íslandi. Eftir að hafa fylgst með konunni minni leggja nótt við dag í glímunni við afleiðingar hrunsins er erfitt að horfa upp á nýja ríkisstjórn stýra öllu aftur í sama farið. Vonandi reynist ég ekki sannspá … en ég óttast að þetta endi ekki vel.“ „Ég sá villtan nashyrning“ Landsþekktir segja frá því sem stóð upp úr árið 2014 að þeirra mati Berlínarferð ákaflega eftirminnileg „Persónulega fannst mér Berlínarferð Nýdanskrar síðastliðið vor ákaflega eftirminnileg og skilaði af sér stuðplötunni Diskó Berlín sem virðist hafa glatt mann og annan. Almennt finnst mér blómlegt starf Oldboys knattspyrnunnar í Þrótti hafa staðið upp úr.“ E ins og við er að búast gerðist margt gott og slæmt á árinu sem er að líða. Við fengum sex landsþekkta einstaklinga til þess að segja okkur hvað stóð upp úr á árinu hjá þeim persónulega og hvað þeim fannst standa upp úr almennt á árinu. n „Sumarið var eitt það besta sem ég hef upplifað“ „Hjá mér persónulega finnst mér hafa staðið upp úr frábært sumar á Íslandi, þar sem ég náði að gera hluti sem ég hafði lengi ætlað að gera. Sumarið var eitt það besta sem ég hef upplifað. Svo átti ég ferð til Kaliforníu í haust, sem var stórkostleg í alla staði. Þangað hafði ég aldrei komið áður, en mun klárlega koma aftur um leið og færi gefst. Á heildina litið var þetta ár líka mjög gott í samskiptum við fjölskyldu og vini. Ég kynntist mikið af nýju fólki og fékk að halda áfram að fylgjast með litlu frændum mínum vaxa úr grasi og rækta samskipti við foreldra mína. Á árinu almennt finnst mér standa upp úr hve sterk grasrót er að myndast á Íslandi sem er að vinna í jákvæðum og flottum hlutum án þess að mikið beri endilega á því í almennri umræðu. Ekki veitir af!“ Helga Dís Björgúlfsdóttir helgadis@dv.is „Það slagar hátt upp í stuðið sem fylgir hundum, svei mér þá“ Hallgrímur Helgason „Það sem stóð upp úr í einkalífinu var að sjá bróður minn verða afa og sjá konuna mína verða föðursystur. Magnað hvað barnakomur hafa mikil og gleðileg áhrif á heilu stórfjölskyldurnar. Það slagar hátt upp í stuðið sem fylgir hundum, svei mér þá. Almennt séð fannst mér standa upp úr hvað þessi ríkisstjórn er mikil og leiðinleg hægri stjórn. Hvað fjármálaráðherra er mikill og bóklaus búri. Hvað forsætisráðherra er mikill og latur golubelgur. Hvað innanríkisráðherrann laug rosalega mikið og hvað hún sagði alls ekki af sér heldur bara fór í fússi. Hvað menntamálaráðherra er átakanlega duglaus. Hvernig utanríkisráðherra tekst að fljúga svona mikið en vera samt ósigldur. Hvernig landbúnaðarráð- herra fer að því að vera í senn fljótfær og luralegur. Hvað iðnaðarráðherra er hræðilega treystandi til að passa meira upp á vini sína en náttúr- una. Og samt eru enn þrjú og hálft ár eftir af þessum lurki.“ Stórkostlegt að ESA lenti könnunarfari á Philae Yrsa Sigurðardóttir „Það sem mér finnst persónulega hafa staðið upp úr á árinu var að ég sá villtan nashyrning í fyrsta skipti. En almennt finnst mér stórkostlegt að ESA tókst að lenda könnunarfari á halastjörnunni Philae.“ Sölvi Tryggvason Jón Ólafsson „Ár persónulegra sigra og hamingju“ Una Stef „Árið 2014 var stórkostlegt en fyrir mér var það ár persónulegra sigra og hamingju. Það er erfitt að segja að einhver einn hlutur hafi staðið upp úr, það eru frekar margir hlutir úr mismunandi hornum lífs míns; skólalífinu, tónlistarkonulífinu, ástarlífinu, ferðalífinu og svo framvegis. Sem dæmi útskrif- aðist ég úr Tónlistarskóla FÍH, gaf út mína fyrstu plötu „Songbook“, ferðaðist til Afríku, trúlofaði mig og átti yndislega tíma með fjölskyldu og vinum. Almennt á Íslandi þá held ég að skuldaniðurfell- ingin, lækna- og tónlistarkennaraverkföllin standi upp úr. Annars fékk Malala Yousafzai, vinkona mín, friðarverðlaun Nóbels í ár, sem stendur svo sannarlega upp úr. Því miður hugsa ég þó líka til ebólu-faraldursins í Vestur-Afríku, átak- anna í Úkraínu og herferð IS í Sýrlandi, Írak og víðar. Vonandi fáum við betri fréttir þaðan á nýju ári og látum okkar ekki eftir liggja til að stuðla að betri heimi, við erum nefnilega öll saman í þessu.“ Una Stef Söngkonan hefur átt gott ár í bæði tónlist og einkalífinu. MynD SigtryggUr Ari Sölvi tryggvason Hann hefur undanfarið verið að vinna að heim- ildamynd um íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu. Hann ætlar að fylgja þeim eftir í undankeppnina fyrir EM 2016. MynD ÞorMAr Vignir gUnnArSSon Hallgrímur Helgason Leikrit gert eftir skáldsögu hans, Konan við 1000°, var sett upp í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í haust, en hann kom að leikgerðinni með Unu Þorleifsdóttur og Símoni Birgissyni. MynD SigtryggUr Ari Jón Ólafsson Nýjasta plata hljómsveitarinnar Nýdanskrar hefur verið að gera það afar gott síðustu mánuði. MynD gUnnlAUgUr rögnVAlDSSon Jónína leósdóttir Hér situr Jónína með barnabarni sínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.