Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2014, Blaðsíða 76
Áramótablað 30. desember 2014
101. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 895 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Ekki var
þetta mikill
appafengur!
Fyrirliðinn fór
á skeljarnar
n Aron Einar Gunnarsson,
fyrir liði íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, sýndi á sér róman-
tíska hlið um jólin þegar hann
fór niður á skeljarnar og bað
kærstu sinnar, fitnessdrottn-
ingarinnar Kristbjargar Jóns-
dóttur. Hún deilir gleðifréttun-
um með fylgjendum sínum á
samfélagsmiðlum þar sem hún
birtir mynd af sér með forláta
demantshring. Segir Kristbjörg
þetta hafa verið bestu jól henn-
ar hingað til en þau eyddu þeim
ein saman. Þegar þau höfðu
lokið við að snæða
og opna pakka
kom Aron henni
á óvart með
spurningunni
og hringnum.
Parið á von á
barni á nýju ári.
Kvöldstund á
bráðamóttöku
n „Það er allt í góðu núna, bara
smá hjartsláttartruflanir,“ segir
söngkonan Una Stef á Face-
book-síðu sinni en hún eyddi
kvöldstund á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogsdal fyr-
ir stuttu. Fyrr um kvöldið hafði
hún haldið aukatónleika á Café
Rosenberg með Eglu og 1860,
við góðar undirtektir. Söngkon-
an hefur gert það gott undan-
farið en hún frumflutti nýtt lag á
tónleikunum. Hún
tók sérstaklega
fram að það
væri á íslensku
því hingað til
hefur hún að-
allega sung-
ið lög sín á
ensku.
Stefán Jón í
sjálfboðavinnu
n „Svo er miklu meira, en ég get
bara ekki verið í sjálfboðavinnu
við þessi hjálparstörf miklu leng-
ur.“ Svona lýkur Stefán Jón Haf-
stein löngu innleggi sínu á Face-
book-síðu Fjölmiðlanörda. Þar
greinir hann í níu tölusettum og
ítarlegum liðum frá því hversu
slæmt nýtt smáforrit frá Ríkisút-
varpinu er að hans mati. Ómögu-
legt sé að finna efni í smáforritinu
því leitarmöguleikar séu ekki
fyrir hendi. „Besta og óvæntasta
jólögjöf ársins hefði getað orðið
appið frá Rúv sem tengir mann við
efnisveituna. Því miður er þetta
mjög misheppnað
app og ég segi því
miður með mikl-
um trega því Rík-
isútvarpið þurfti
svo sannarlega
á andlitslyft-
ingu að
halda.“
FRAMÚRSKARANDI UM JÓLIN
Hamborgarhryggur og hangikjöt í 1. sæti!
Síðastliðin ár hafa hamborgarhryggir og hangikjöt frá
Norðlenska skarað fram úr í bragðkönnunum DV. Ár eftir ár
hafa neytendur sett traust sitt á Norðlenska þegar kemur að
jólamatnum. Fyrir það erum við þakklát og ætlum að halda
áfram að uppfylla kröfur um indæla jólasteik.
BRAGÐKÖNNUN MATGÆÐINGA DV
2014 – KEA-hamborgarhryggur í 1. sæti
2014 – KEA-hangikjöt í 1. sæti
2013 – Nóatúns-hamborgarhryggur í 1. sæti
2013 – KEA-hamborgarhryggur í 2. sæti
2012 – KEA-hamborgarhryggur í 1. sæti
2011 – KEA-hamborgarhryggur í 1. sæti
2011 – Sambandshangikjöt í 1. sæti
2011 – Húsavíkur- og KEA-hangikjöt í 3.-5. sæti
2010 – Húsavíkurhangikjöt í 1. sæti
2009 – Húsavíkurhangikjöt í 1. sæti
ÍSLENSKT
GRÍSAKJÖT
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
6
3
4
7
„Með þessu fá allir að njóta sín“
V
eitingamaðurinn Grímur Vil-
helmsson bauð yfir hundrað
skjólstæðingum Fjölskyldu-
hjálpar Íslands í jólahlaðborð
á veitingastað sínum Grallaranum
í Reykjanesbæ daginn fyrir Þor-
láksmessu. Þetta gerði hann í sam-
starfi við matreiðslumeistarann Ás-
björn Pálsson hjá veisluþjónustunni
Menu-veitingum.
„Já, þetta var eiginlega jólagjöf frá
okkur til okkar sem að þessu stóðu.
Það var alveg frábært að geta boð-
ið þessu fólki, sem ekki á mikið á
milli handanna og fer eflaust ekki
á jólahlaðborð, að koma til okkar
og borða sig satt,“ segir Grímur sem
bauð meðal annars upp á lambakjöt,
kalkún og svínarif.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Grímur tekur upp á því að bjóða fólki
í mat en hann bauð eldri borgur-
um í mat um hvítasunnuna. Hópur-
inn sem mætti þá var einnig í skjól-
stæðingahópi Fjölskylduhjálpar
Íslands. Eftir það boð hét Grímur því
að endurtaka leikinn og það gerði
hann svo sannarlega
„Ég ætla að halda þessu áfram og
vona að við verðum fleiri sem gerum
þetta saman næst. Það eru ekki allir
sem geta notið jólanna almennilega
en með þessu fá allir að njóta sín,“
segir Grímur sem fékk fallega viður-
kenningu úr hendi forseta Íslands á
dögunum. Viðurkenningin var fyrir
að vera Fyrirtæki mannúðar 2014 og
má með sanni segja að hann standi
undir þeirri viðurkenningu.
„Ég var mjög stoltur að vera heiðr-
aður af forseta Íslands og það virkar
að sjálfsögðu sem frábær hvatning til
að gera enn betur,“ segir Grímur sem
stefnir á að bjóða þeim sem minna
mega sín í mat aftur um páskana.
„Já, ég vil endilega gera eitthvað
um páskana aftur. Bjóða þá fólki í
alvöru páskamat með öllu tilheyr-
andi.“ n
atli@dv.is
Grímur Vilhelmsson bauð skjólstæðingum fjölskylduhjálpar á jólahlaðborð
Fyrirtæki mannúðar 2014 Fyrirtæki
Gríms var valið Fyrirtæki mannúðar á árinu.