Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Side 2
2 Fréttir Helgarblað 5.–8. desember 2014
Lægri skattar
og hærri styrkur
Fjárhagsáætlun Seltjarnarnes-
bæjar fyrir árið 2015 var sam-
þykkt í vikunni. Þá var einnig
samþykkt þriggja ára áætlun.
Fasteignaskattar lækka um 5%
og verða 0,20%. Tómstunda-
styrkir verða hækkaðir um 65%,
úr 30.000 í 50.000 krónur á hvert
barn. Samkvæmt tilkynningu
bæjarins greiðir sveitarfélagið
nú hæstu styrki allra á landinu í
þessum málum. Þá segir einnig
í henni að á landvísu séu skattar
almennt lægstir þar sem útsvar er
13,70%. Staða sveitarfélagsins er
sögð sterk. Skuldahlutfall er um
54% en alls hafa staðið yfir fram-
kvæmdir síðustu fjögur ár sem
nema um milljarði króna.
Fékk golfkennslu
hjá Tiger Woods
Jón Þór Gylfason hefur hitt alla bestu kylfinga heims í Flórída
H
ann var afskaplega al-
mennilegur og afslappað-
ur,“ segir Jón Þór Gylfason,
nemi við Golf Academy
of America í Flórída, en
hann hitti Tiger Woods í vikunni og
fékk hjá honum svo gott sem golf-
kennslu.
Tiger Woods heldur ár hvert fjár-
öflunarmót þar sem hann safn-
ar fyrir samtökin sín Tiger Woods
Foundation. Sjóðurinn hefur frá ár-
inu 1996 hjálpað þúsundum barna
með menntun, bæði vestanhafs og
úti um allan heim.
Fjáröflunarmótið heitir Hero
World Challenge og stendur yfir
í viku. Mótið byrjar með þátttöku
þeirra sem greitt hafa sérstaklega
til þess að fá að taka þátt, svipað og
firmakeppni virkar hér á landi.
Með bestu kylfingum í heimi
Fjáröflunin endar síðan með keppni
18 bestu kylfinga í heiminum en
þar mun Tiger Woods berja bolt-
ann á ný eftir töluvert langt hlé frá
íþróttinni. Á meðal þeirra sem taka
þátt eru Justin Rose, Henrik Sten-
son, Rickie Fowler, Bubba Watson
og Graeme McDowell.
„Við sem vorum að vinna að
mótinu fengum að hitta Tiger
Woods á æfingasvæðinu. Þar sýndi
hann okkur nýju „gömlu“ sveifluna
sína og hvernig hann framkvæmdi
mismunandi högg,“ segir Jón Þór
sem hefur að undanförnu hitt hvern
stjörnukylfinginn á fætur öðrum.
„Já, það eru algjör forréttindi að fá
að eyða tíma í kringum þessa bestu
kylfinga heims en skólinn minn er í
nánu samstarfi við öll stærstu golf-
mótin sem eru haldin í Flórída-fylki.
Þannig gefst okkur nemendunum
oft tækifæri á að vinna við mótin og
hitta þessa kylfinga,“ segir Jón Þór
sem nú leggur lokahönd á nám sitt
í Golf Academy of America.
Kominn með vinnutilboð
„Ég var að læra viðskiptahliðina á
golfíþróttinni ef svo mætti að orði
komast. En með náminu þá stund-
um við mikið golf og erum nánast á
vellinum á hverjum degi.“
En hvað tekur við að svona námi
loknu? „Skólinn hefur ótrúlega mik-
il sambönd inn í þennan golfheim
og þeir nemendur sem standa sig
vel fá nánast alltaf viðskiptatilboð
að námi loknu og það er eflaust það
sem tekur við.“
Ertu kominn með tilboð? „Já,
ég er kominn með tilboð frá ein-
um stærsta golfboltaframleiðanda í
heiminum. Núna er bara spurning
hversu langan tíma það tekur að fá
atvinnuleyfi, það getur alveg tekið
sinn tíma þannig að það er svo sem
ekkert öruggt í því fyrr en það er frá-
gengið.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Á Bay Hill með
Rickie Jón Þór
hitti stjörnu-
kylfinginn Rickie
Fowler á Arnold
Palmer Bay Hill In-
vitational-mótinu
sem hann starfaði
á síðasta sumar.
Flottir saman Enski kylfingurinn Ian
Poulter og Jón Þór á golfvellinum.
Tiger Woods Var hress á æfingavellinum
þar sem hann sýndi Jóni Þór og öðrum
starfsmönnum mótsins sveifluna sína.
Mynd ReuTeRs
„Það eru algjör
forréttindi að fá
að eyða tíma í kringum
þessa bestu kylfinga
heims.
Spilltust
á Norður-
löndunum
Ísland er í 12. sæti á lista yfir
minnst spilltu lönd heims
samkvæmt mati samtakanna
Transparency International sem
byggir á svokölluðu Corruption
Perceptions Index, sem er reikn-
að út frá því hve mikil spilling
viðgengst í stjórnkerfinu að mati
sérfræðinga. Meðal annars er
áætlað hversu mikið er um mútu-
þægni og svindl.
Danmörk er efst á listanum
yfir minnst spilltu ríkin, en þar
á eftir koma Nýja-Sjáland, Finn-
land, Svíþjóð og Noregur. Þá er
ljóst að Ísland er talið spilltasta
ríki Norðurlandanna út frá við-
miðum rannsóknaraðila, og álitið
vera á svipuðu reiki og Bretland
og Þýskaland.
Við vinnslu listans fá þjóð-
ir einkunn frá 0 og upp í 100.
Því lægri tala, því spilltara telst
stjórnkerfið. Engin þjóð fékk full-
komna einkunn í ár, en yfir tve-
ir þriðju allra þjóða fá minna en
helmingseinkunn. Ísland fékk 79
en Danmörk 92.
Prómens Var meðal annars selt út af
krónunni og gjaldeyrishöftum samkvæmt
Viðskiptablaðinu.
Bretar kaupa Prómens á 59 milljarða
n eitt stærsta fyrirtæki Íslands selt úr landi n 9 milljarða hagnaður í fyrra
B
reska pökkunarfyrirtækið RPC
Group er við það að ganga frá
kaupum á íslenska fyrirtæknu
Prómens á rúma 59 milljarða
króna. Greint var frá kauptilboði
RPC í síðustu viku í flestum fjölmiðl-
um hér heima en Hermann Már
Þórisson stjórnarformaður Prómens
sagði í samtali við DV að ekki hefði
formlega verið gengið frá sölunni
enn. Verið væri að fara yfir málið en
tilboðið er bindandi og ljóst að salan
er gengin í gegn þótt ekki hafi form-
lega verið tilkynnt um það.
Prómens framleiðir fiskikör og
ýmsar plastvörur auk þess sem
dótturfyrirtæki þess, Tempra, fram-
leiðir frauðkassa undir matvæli. Pró-
mens er eitt stærsta fyrirtæki Íslands
og rekur 40 verksmiðjur og er með
3.800 starfsmenn á heimsvísu. 35 af
þessum verksmiðjum eru í Austur-
Evrópu. Hagnaður fyrirtækisins var
tæpir 9 milljarðar króna árið 2013.
RPC Group kaupir Prómens til að
styrkja markaðsstöðu sína og kom-
ast inn á nýja markaði en fyrirtækið
framleiðir meðal annars pakkningar
fyrir matvælarisann Nestlé og máln-
ingarframleiðandann Dulux.
Prómens er að 49,91% í eigu
Landsbankans og 49,5% í eigu
Framtakssjóðs Íslands en nokkrir
einstaklingar eiga 0,59% hlut. Sam-
kvæmt umfjöllun Viðskiptablaðsins
var helsta orsök sölunnar þrýsting-
ur frá Fjármálaeftirlitinu á Lands-
bankann um að selja hlut sinn. Hinn
þátturinn sem lék stórt hlutverk var
að slakur gjaldmiðill, krónan, og
gjaldeyrishöft heftu vöxt og samn-
ingagerð fyrirtækisins á alþjóðavett-
vangi. n
asgeir@dv.is
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods