Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Qupperneq 12
Helgarblað 5.–8. desember 201412 Fréttir
A
uðvitað er maður aldrei
sáttur við kjaraskerðingu.
En það verður áfram borgað
fyrir yfirvinnu,“ segir Sig-
urður Skarphéðinsson,
varaslökkviliðsstjóri Brunavarna
Suðurnesja, í samtali við DV. Stjórn
slökkviliðsins samþykkti einróma á
mánudag nokkuð róttækar tillögur
um hagræðingu í rekstri. Ráðningar-
samningum við alla þrjá yfirmenn
stofnunarinnar verður sagt upp og
við þá verður endursamið. Þeir verða
sviptir núverandi bifreiðastyrkjum og
fastri yfirvinnu. Slökkviliðsstjóri miss-
ir jeppann sem hann hefur haft til
umráða og Brunarvarnir Suðurnesja,
BS, hætta að greiða fyrir maka slökvi-
liðsmanna í líkamsrækt. Fólksbifreið-
um stofnunarinnar verður fækkað
um tvær og óskað verður eftir við-
ræðum við stjórn Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins um að kanna grund-
völl fyrir sameiningu stofnananna.
Á pari við aðgerðir í Reykjanesbæ
Kristján Jóhannsson er fulltrúi
Reykjanesbæjar í stjórn Bruna-
varna Suðurnesja, þar sem hann
gegnir formennsku. Stofnunin er
að átta tíundu hluta í eigu bæjarins
en Vogar og Garður eiga tvo tíundu.
Kristján segir í samtali við DV að fyrri
stjórn slökkviliðsins hafi óskað eftir
því að KPMG gerði úttekt á fjárreið-
um BS. Þegar slæm fjárhagsstaða
Reykjanesbæjar lá ljós fyrir á dögn-
um segir Kristján að stjórnin hafi
viljað fá gleggri mynd af stöðu mála
fyrr. Skýrsla KPMG sé enn í vinnslu
en Kristján hafi með ráðgjafa frá
Carpe Diem unnið greinargerð um
stöðu mála. Hún hafi verið tekin fyrir
á fundinum á mánudaginn.
Bitnar á þremur mönnum
Eins og fram kemur stendur til að
segja upp ákvæðum um fasta yfir-
vinnu þriggja yfirmanna BS. Þeir
eru Jón Guðlaugsson slökkviliðs-
stjóri, Sigurður Skarphéðinsson að-
stoðarslökkviliðsstjóri og Ómar Ingi-
marsson aðalvarðstjóri. Kjör annarra
starfsmanna verða ekki skert. Þá
verður bifreiðastyrkjum og -hlunn-
indum sagt upp og greitt verður fyrir
akstur samkvæmt akstursdagbók.
Jón hefur sem slökkviliðsstjóri haft
Land Cruiser-bifreið til umráða, ár-
gerð 2005. Hann missir hana. Krist-
ján segir að þau hlunnindi séu sam-
kvæmt samningi við Jón frá árinu
2008. Sigurður hefur lagt fram eigin
bifreið, gegn greiðslu, en þau hlunn-
indi verða endurskoðuð. „Þessar að-
gerðir eru sumpart á pari við það sem
Reykjanesbær hefur verið að gera,
það er, uppsagnir á fastri yfirvinnu og
bifreiðastyrkjum. Við erum að endur-
skoða þessa hluti og leita allra leiða til
að spara,“ segir Kristján.
Öllum steinum velt við
Fleiri þættir í rekstri BS verða endur-
skoðaðir samkvæmt tillögum stjórn-
arinnar. Endurskoða á fjárhagsáætlun
fyrir árið 2015 ásamt því að skoða
alla samninga við birgja og seljend-
ur þjónustu sem BS kaupir. Þar er
einkennisfatnaður, hreinlætisvörur,
olía og bensín, líkamsrækt og fæði
starfsmanna atriði sem nefnd eru til
sögunnar. Fækka á fólksbílum sem
BS rekur um tvo, úr fimm í þrjá. Krist-
ján segir að þessar tillögur eigi að geta
sparað sjö milljónir árlega í rekstri
stofnunarinnar.
Til viðbótar á að óska eftir við-
ræðum við stjórn Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins um sameiningu. Í
þessu ljósi má nefna að BS hefur verið
rekið sem sameignarfyrirtæki en lög
kveða á um að um áramót verði stofn-
að byggðasamlag um brunavarnir á
svæðinu og slökkviliðið í Sandgerði
sameinast Brunavörnum Suðurnesja.
130 milljóna skuldasöfnun
Frá því um aldamót hefur halli á
rekstri slökkviliðsins verið viðvarandi.
Framlög bæjarfélaganna hafa ekki
dugað fyrir útgjöldum og auknum
umsvifum, til dæmis í sjúkraflutning-
um. Upphæðin hefur hækkað hratt á
undanförnum árum og stendur í um
130 milljónum króna. Sú upphæð
nemur um það bil ársframlagi sveitar-
félaganna þriggja til BS. Eftir því sem
DV kemst næst ætla sveitarfélögin
Vogar og Garður að borga sinn hluta
skuldarinnar út en Reykjanesbær ætl-
ar að freista þess að taka lán fyrir sín-
um hlut, sem hleypur þá væntanlega
á rúmlega 100 milljónum króna.
En hefði ekki þurft að grípa í
taumana fyrr? Sigurður varaslökkvi-
liðsstjóri segir að skuldasöfnunin
hafi hafist upp úr aldamótum. Þeir
Jón slökkviliðsstjóri tóku við keflinu
2008. Sigurður segist aðspurður ekki
geta dæmt um það hvort framlögin
frá bæjarfélögunum hafi einfaldlega
verið of lág eða hvort betur hefði mátt
halda á spöðunum. Hann bendir á að
sjúkraflutningar hafi aukist jafnt og
þétt á undanförnum árum. Í ár hafi
met þegar verið slegið, en slökkvi-
liðið hefur flutt 2.200 manns það
sem af er ári. Hann segir að laun séu
langstærsti útgjaldaliður BS, um 80
prósent. Ekki hafi verið gert ráð fyrir
því í framlögum að greitt hafi verið
af þessari skuld og því hafi hún hratt
safnað vöxtum og hækkað.
Kristján segir, aðspurður hvort
skuldin sé til marks um að fjárreiður
BS hafi verið í ólestri, að spurningar
vakni. „Auðvitað spyr maður sig að því,
fyrst við komum auga á þessi tækifæri
til sparnaðar, hvort menn hafi verið að
reka slökkviliðið of dýrt. Hvort hægt
hefði verið hægt að gera það öðruvísi.
Ég get ekki dæmt um það.“ Hans um-
boð felist í því að leiða vinnuna við að
endurskoða reksturinn.
Ekki þjónustuskerðing
En nýtur slökkviliðsstjórinn, sá sem
farið hefur með fjármál stofnunarinn-
ar, trausts stjórnarinnar? „Já, hann nýt-
ur trausts stjórnar á meðan hann situr
í starfi.“ Hann segir að ekki hafi komið
til álita að víkja mönnum úr starfi – og
að enginn þeirra hafi sagt upp störf-
um. „En auðvitað bregður mönnum
við það að fá breytingar á ráðningar-
samningi. Við höfum staðið í þessu í
Reykjanesbæ á undanförnum vikum
og þetta er bara hunderfitt.“ Hann seg-
ir þó að eigendur séu einhuga um að
leita allra leiða til sparnaðar.
Kristján tekur þó skýrt fram að á
engan hátt komi til greina að skerða
þjónustu eða draga úr verkefnum BS.
Þvert á móti sé vilji til að auka hana,
ef eitthvað er. Hann bendir á að yfir-
vinna verði áfram unnin, enda þurfi
þessir menn til skiptis að vera á bak-
vakt allan sólarhringinn – og vera til
taks. „Þarna er unnin gríðarlega mik-
il vinna. Brunvarnir Suðurnesja er
eitt af fjórum atvinnuslökkviliðum á
landinu. Það verður áfram svo.“ Hann
bendir á að slökkviliðið sinni 20 þús-
und manna bæjarkjarna en hafi auk
þess á sínu svæði eina alþjóðaflug-
völlinn á Íslandi. Verkefnin séu því
afar umfangsmikil.
Ekki auðvelt
Stjórnendum slökkviliðsins og trún-
aðarmanni var kynnt niðurstaða
stjórnarinnar á þriðjudag. Kristján
viðurkennir að svolítið hafi hvesst á
fundinum, en að hann hafi verið góð-
ur og gagnlegur. Vilji hafi staðið til
þess að framfylgja tillögunum. „Það er
ekkert auðvelt að bera mönnum frétt-
ir um uppsögn ráðningarsamninga.“
Sigurður segir aðspurður að auðvit-
að sé aldrei gaman að þurfa að taka á sig
kjaraskerðingu. Hann viti ekki betur en
allir þrír muni starfa áfram, enda sé ekki
spennandi að verða atvinnulaus. n
Tillögur
stjórnar
Svona vill stjórnin hagræða
n Endurskoða fjárhagsáætlun BS fyrir
2015 með tilliti til greinargerðar sem lá
fyrir fundinum. Sú vinna hefst strax.
Oddur Jónsson, ráðgjafi hjá KPMG verður
stjórn til aðstoðar í þeirri vinnu.
n Fastri yfirvinnu slökkviliðsstjóra, að-
stoðarslökkviliðsstjóra og aðalvarðstjóra
verði sagt upp frá og með 1.janúar 2015.
n Endurskoða og gera nýja ráðningar-
samninga við yfirmenn BS.
n Bifreiðastyrkjum verði sagt upp og
greitt verði samkvæmt akstursdagbók.
n Bifreiðahlunnindum slökkviliðsstjóra
verði sagt upp.
n Endurskoða þarf alla samninga við
byrgja og seljendur þjónustu sem BS er
að kaupa. M.a. varðandi einkennisfatnað,
hreinlætisvörur, olíu og bensín, líkamsrækt.
matvörur, fæði starfsmanna og fleira.
n BS hætti að greiða fyrir maka slökkvi-
liðsmanna í líkamsrækt.
n Endurskoða fólksbílaeign BS. Í dag
eru fimm fólksbílar í rekstri. Stefnt að
fækkun um tvo.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Skorið niður hjá
Reykjanesbæ
Úr frétt DV frá 26. nóvember
Kraumandi óánægja er á meðal starfs-
manna Reykjanesbæjar vegna harka-
legs niðurskurðar sem nýr meirihluti
hefur gripið til í kjölfar svartrar skýrslu
KPMG um fjárhag bæjarins. Starfsmenn
hafa sumir hverjir þurft að kyngja tuga
prósenta launalækkunum – sem felast
aðallega í niðurskurði á föstum yfir-
vinnustundum og greiðslum fyrir akstur.
„Það loga eldar í ráðhúsinu,“ segir einn
heimildarmaður við DV.
Starfsmennirnir í ráðhúsinu eru á bilinu
70 til 80 talsins og fyrstu hugmyndir fólu í
sér að kjör sumra starfsmanna yrðu lækk-
uð um allt að 40 til 50 prósent. Munar þar
mestu um háar akstursgreiðslur, sem oft
voru ekki í samræmi við ekna kílómetra.
DV hefur heimildir fyrir því að margir
hugsi sér til hreyfings – starfsmenn með
eftirsótta menntun séu fyrstir út.
„Auðvitað spyr
maður sig að því
hvort menn hafi verið að
reka slökkviliðið of dýrt.
Aðstoðarslökkviliðsstjóri Sigurður segist
ætla að halda áfram, þrátt fyrir skerðinguna.
Erfiðir tímar Kristján segir aldrei gaman
að flytja mönnum fréttir um skert kjör.
Róttækur niðurskurður
Brunavarna Suðurnesja
n Bifreiðahlunnindi og föst yfirvinna aflögð n Slökkviliðsstjórinn missir Land Cruiser
Mikil starfsemi Brunavarnir
Suðurnesja hjálpuðu til við að
slökkva eldinn í Skeifunni nú í
haust. Mynd SiGtRyGGuR ARi