Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 21
Fréttir Erlent 21Helgarblað 5.–8. desember 2014
Enn snýst allt um
Svíþjóðardemókrata
n Felldu fjárlög ríkisstjórnarinnar n Söguleg staða í sænskum stjórnmálum
É
g hef ekki í hyggju að sætta mig
við að Svíþjóðardemókratarnir
geti haft úrslitaáhrif og geti
ákvarðað forsendurnar í
sænskum stjórnmálum. Það
er útilokað,“ segir Stefan Löfven, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, í sænska
blaðinu Dagens Nyheter í kjölfar-
ið á því að meirihluti þingmanna
á sænska þinginu greiddi atkvæði
með fjárlagafrumvarpi fyrrverandi
ríkisstjórnarflokkanna fjögurra en
ekki frumvarpi ríkisstjórnar hans. Sú
staðreynd hefur leitt til þess að boð-
að verður til nýrra kosninga í Sví-
þjóð þann 22. mars næstkomandi en
það er í fyrsta skipti síðan árið 1958
sem slíkt gerist en þar áður hafði það
einungis gerst 1914 og 1887. Staðan
sem upp er komin í sænskum stjórn-
málum er því söguleg.
Þjóðernishyggjuflokkur Sví-
þjóðardemókrata hafði úrslitaáhrif á
atkvæðagreiðsluna um fjárlagafrum-
varpið sem fram fór á miðvikudaginn
þar sem sitjandi formaður flokks-
ins, Matthias Karlsson, hafði gefið
út að hugsanlega myndi flokkurinn
greiða atkvæði með fjárlagafrum-
varpi flokkanna sem mynduðu síð-
ustu ríkisstjórn Svíþjóðar - Moder-
atarna, Miðjuflokksins, Kristilegra
demókrata og Flokks fólksins. Sví-
þjóðardemókratar létu verða af
þessari hótun sinni og þannig varð
fjárlagafrumvarp fyrri ríkisstjórn-
ar ofan á í þinginu. Ríkisstjórn Stef-
ans Löfven getur eðlilega ekki stýrt
landinu með öðru fjárlagafrumvarpi
en sínu eigin.
Tveir kostir – báðir slæmir
Stefan Löfven hafði í raun bara tvo
kosti þegar þessi niðurstaða um af-
drif fjárlagafrumvarps hans lá fyrir.
Hann og stjórn hans hefðu getað vikið
strax og hefði þá þurft að mynda ríkis-
stjórn á grundvelli kosningaúrslit-
anna í september síðastliðnum. Löf-
ven gerði þetta hins vegar ekki heldur
tilkynnti að ríkisstjórnin ætlaði að
sitja út mánuðinn og að boðað yrði til
nýrra kosninga í mars. Báðir kostirnir
fela í sér í að Löfven þarf að gefa eftir
valdataumana.
Ef horft er á niðurstöður kosning-
anna í haust þá er þessi kostur kannski
skárri en hinn þar sem meirihluti
næst hvorki á sænska þinginu með
samvinnu borgaralegu flokkanna
fjögurra sem mynduðu síðustu ríkis-
stjórn né með samvinnu vinstriflokk-
anna þriggja, Sósíaldemókrata, Um-
verfisflokksins eða Vinstri flokksins.
Ástæðan fyrir þessu er sterk staða Sví-
þjóðardemókrata sem voru einu eig-
inlegu sigurvegarar síðustu kosninga
í Svíþjóð þegar flokkurinn fékk 12,9
prósent atkvæðanna.
Svíþjóðardemókratarnir eru því í
þeirri stöðu að geta haft úrslitaáhrif á
sænsk stjórnmál, líkt og Löfven benti
á, og hefði flokkurinnn getað gert
slíkt hið sama ef borgaralegu flokk-
arnir fjórir hefðu myndað minni-
hlutastjórn eftir kosningarnar í haust.
Veltur allt á
Svíþjóðardemókrötum
Löfven kom inn á þennan veruleika
í sænska blaðinu Dagens Nyheter á
fimmtudaginn þar sem hann sagði
að kjósendur í Svíþjóð þyrftu að átta
sig á því að Svíþjóðardemókratarnir
hóta að fella allar ríkisstjórnir, óháð
því hvaða flokkar sitja í þeim, sem
ekki ætla að minnka straum innflytj-
enda til Svíþjóðar. „Þetta er gert svo
kjósendur geti tekið afstöðu í þessu
nýja pólitíska landslagi. Þetta er ný
staða og þá þurfa kjósendur að taka
afstöðu.“
Áhrif Svíþjóðardemókrata í
sænskum stjórnvöldum eru því um-
talsvert meiri en sem nemur at-
kvæðamagni flokksins í kosning-
um í haust. Þeir eru í lykilstöðu í
ljósi kosningaúrslitanna í vor. Þeir
höfðu ekki bara lykiláhrif á að koma
á þeirri stöðu sem nú er komin upp í
sænskum stjórnmálum þar sem þeir
studdu fjárlagafrumvarp fyrrverandi
ríkisstjórnarflokka heldur hafa þeir
líka lykiláhrif á það hvernig Stefan
Löfven bregst við þessari stöðu.
Ólík San
Pirringur Stefans Löfven í garð borg-
aralegu flokkanna fjögurra gengur
meðal annars út á að hann segir nú
að þeir vinni nú með stuðningi Sví-
þjóðardemókratanna þar sem sá
flokkur greiddi atkvæði með fjárlaga-
frumvarpi þeirra. „Greiði maður at-
kvæði með sömu fjárlögum hefur
maður tekið afstöðu með sama hlut.
Annað gengur ekki upp.“
Leiðtogi Moderaterna, Anna Kin-
berg Mantra, segir hins vegar að
borgaralegu flokkarnir fjórir vinni
ekki með Svíþjóðardemókrötum –
flokkurinn hafi eingöngu greitt at-
kvæði með þeirra fjárlögum. „Við
höfum aldrei gert samkomulag við
Svíþjóðardemókratana.“
Formaður Flokks fólksins, Jan
Björklund, segir sömuleiðis: „Þetta
er okkar pólitík. Það vorum við sem
lögðum þetta fram.“
Mikil áhætta
Stjórnmálaskýrandi sænska dag-
blaðsins Dagens Nyheter, Ewa Sten-
berg, segir að núverandi ríkisstjórnar-
flokkar, Sósíaldemókratarnir og
Umhverfisflokkurinn, taki verulega
áhættu með því að boða til nýrra
kosninga. Sú staðreynd að ríkis-
stjórnin kom fjárlagafrumvarpi sínu
ekki í gegnum þingið mun örugglega
hafa áhrif á almenningsálitið í næstu
kosningum. Ólíklegt verður að telj-
ast að flokkarnir tveir bæti við sig í
komandi kosningum og ef þeir tapa
mörgum atkvæðum er líklegt að for-
menn þeirra segi af sér – þannig er
stjórnmálakúltúrinn í Svíþjóð. Þátt-
taka þessara tveggja í næstu ríkis-
stjórn, eftir næstu kosningar gæti því
talist ólíkleg.
Stöðugleiki eða ringulreið
Stenberg segir að borgaralegu flokk-
arnir fjórir komi til með að hamra á
því á næstu mánuðum að valið standi
á milli þeirra og pólitískrar ringul-
reiðar. Stjórn Stefans Löfven verður
sú skammlífasta í sögu Svíþjóðar og
er auðvitað afar slæmt fyrir Sósíalde-
mókrataflokkinn og Umhverfisflokk-
inn að ganga til kosninga með þann
dóm á bakinu. Ríkisstjórnir eiga að
skapa stöðugleika og vera traustar;
ríkisstjórn Löfvens leiddi hins vegar
til sögulegrar pólitískrar upplausnar.
Afar ólíklegt er annað en að honum
verði refsað fyrir það – sama hversu
sanngjarnt það kann að vera í ljósi
oddastöðu Svíþjóðardemókrata.
Á hinn bóginn segir Stenberg að
ríkisstjórnarflokkarnir muni halda
því á lofti að borgaralegu flokkarn-
ir fjórir hafi náð fjárlagafrumvarpi
sínu í gegnum þingið með stuðningi
Svíþjóðardemókratanna. Segja má
fullum fetum að meirihluti Svía sé
andsnúinn Svíþjóðardemókrötum
vegna stefnu þeirra í innflytjenda-
málum og sökum þess að þeir ala á
kynþáttahyggju. Spurningin er hins
vegar hvort það útspil ríkisstjórnar-
flokkanna nægi til.
Ljóst er hins vegar að næstu
kosningar í Svíþjóð munu aftur
snúast að miklu leyti um Svíþjóðar-
demókratana, líkt og þær síðustu.
Þeir voru í oddastöðu, eru í odda-
stöðu og verða líklega ennþá í
oddastöðu eftir næstu kosningar líka.
Þannig er veruleiki sænskra stjórn-
mála í dag. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Lykilstaða Sænsk stjórn-
mál snúast nú að stóru leyti
um Svíþjóðardemókrata,
flokk Jimmies Åkeson.
Åkeson er frá vinnu, hann
segist vera útbrunninn, og
er hugsanlegt að hann snúi
ekki til baka í stjórnmálin.
Mynd ReuTeRS
„Þetta er gert svo
kjósendur geti tek-
ið afstöðu í þessu nýja
pólitíska landslagi.
erfið staða Stefan
Löfven, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, fer
inn í næstu kosningar í
mjög erfiðri stöðu eftir
að hafa mistekist að
koma fjárlagafrum-
varpi sínu í gegnum
sænska þingið.
Þú velur
náttúrulega
Án Parabena og SLS