Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Blaðsíða 34
Helgarblað 5.–8. desember 201434 Sport
Lykilmennirnir
í úrvalsdeildinni
n Andreas Weimann kemur hlutfallslega að flestum mörkum n Okkar maður í fjórða sæti
F
æra má rök fyrir því að
þeir leikmenn sem koma
að flestum mörkum síns
liðs séu mikilvægustu leik-
mennirnir – í það minnsta
í sóknarleiknum. Það þýðir þó
ekki endilega að sá leikmaður sem
kemur að flestum mörkum hlut-
fallslega sé sjálfkrafa besti leik-
maður þeirrar deildar. Liðið sem
hann spilar með skiptir þannig
líka máli, hlutverk leikmannsins
inni á vellinum og taktík liðsins.
Í ensku úrvalsdeildinni eru
það einmitt ekki Sergio Agüero og
Diego Costa sem koma hlutfalls-
lega að flestum mörkum þegar
horft er til úrvalsdeildarinnar í
heild sinni, þó að þeir séu marka-
hæstir. Sá leikmaður sem hefur
verið liði sínu mikilvægastur,
þegar kemur að markaskorun, það
sem af er leiktíðinni er merkilegt
nokk Andreas Weimann, leikmað-
ur Aston Villa. Hann hefur reynd-
ar bara bara skorað þrjú mörk og
lagt upp tvö. Villa-liðið hefur hins
vegar verið afar slakt á leiktíð-
inni og aðeins skorað átta mörk.
Weimann hefur þannig komið að
63% marka liðsins, þrátt fyrir að
stuðningsmenn Aston Villa nýti
hvert tækifæri til að níða af hon-
um skóinn. Hann þykir ekki hafa
spilað vel, frekar en liðið í heild.
Charlie Austin, leikmaður QPR,
er með næsthæsta hlutfallið, en
hann hefur komið að 8 mörkum af
14 hjá liðinu á tímabilinu. Agüero
er þriðji, enda markahæstur, en
sá fjórði í röðinni er okkar maður,
Gylfi Þór Sigurðsson, sem hefur
lagt upp átta mörk og skorað tvö.
Varnarmaður í lykilhlutverki
Þegar horft er á öll liðin í deildinni
má sjá nokkur þekkt nöfn á listan-
um, sem rökstyðja mætti að sé listi
yfir mikilvægustu menn
deildarinnar. Alexis
Sanchez, Cesc Fabreg-
as, Nikica Jelavic, Áng-
el Di María, Gylfi Sig-
urðsson og Steven
Fletcher eru á
meðal þekktra
leikmanna
sem gegna
lykilhlutverkum í
sóknarleik sinna
liða. Á listanum er
líka að minnsta kosti
einn varnarmaður,
merkilegt nokk. Það er
Leighton Baines, bak-
vörður Everton, en
hann hefur komið
að átta af 23 mörk-
um Everton á leiktíðinni.
Margir lykilmenn eru á fyrsta
tímabili með sínu liði og hafa
smollið inn strax í upphafi leik-
tíðar. Alex Sánchez kom frá
Barcelona og hefur byrjað frá-
bærlega. Þessi 25 ára Chilemaður
hefur verið frábær fyrir Arsenal
það sem af er tímabilinu. Raun-
ar gekk tæplega helmingur þeirra
24 leikmanna sem á listanum eru
(hjá þremur liðum eru tveir með
jafnt hlutfall) til liðs við félag sitt
árið 2014 og er því á fyrsta ári með
nýju liði. Þessar upplýsingar má
sjá nánar í töflunni.
Eldri leikmenn hafa sig hæga
Þegar horft er til þess hvaðan þess-
ir 24 leikmenn koma vekur athygli
að aðeins sex eru Englendingar.
Fjórir Senegalar fylgja þeim fast á
hæla en svo þrír Argentínumenn.
Lykilmennirnir eru 26 ára að
meðaltali. Yngstur er Raheem
Sterling hjá Liverpool, en hann
er 19 ára. Elsti lykilmaðurinn í
sóknarleik liðanna í ensku úrvals-
deildinni er Jonathan Walters, 31
árs leikmaður Stoke City. Hann er
sá eini sem er eldri en þrítugur, af
þeim leikmönnum sem hafa kom-
ið við sögu í flestum mörkum sinna
liða, hlutfallslega, það sem af er
leiktíðinni. n
Okkar
maður
Gylfi hefur
verið frábær
á leiktíðinni.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Nýtt sjálfstætt
starfandi apótek
í Glæsibæ
Opnunartími
Virka daga: 8:30 til 18:00
Laugardaga: 10-14
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Nafn Félag Aldur Þjóðerni Kom til félags Mörk Stoðs. Mörk og stoðs. Mörk liðs Hlutfall
Andreas Weimann Aston Villa 23 Þýskaland 2010 3 2 5 8 63%
Charlie Austin QPR 25 England 2013 7 1 8 14 57%
Sergio Agüero Manchester City 26 Argentína 2011 14 3 17 31 55%
Gylfi Þór Sigurðsson Swansea 25 Ísland 2014 2 8 10 19 53%
Danny Ings Burnley 22 England 2011 4 1 5 10 50%
Alexis Sánchez Arsenal 25 Chile 2014 9 2 11 22 50%
Saido Berahino West Brom 21 England 2010 7 0 7 14 50%
Ulloa Leonardo Leicester City 28 Argentína 2014 5 1 6 14 43%
Papiss Demba Cissé Newcastle United 29 Senegal 2012 5 1 6 15 40%
Nacer Chadli Tottenham Hotspur 25 Belgía 2013 6 1 7 18 39%
Steven Fletcher Sunderland 27 Skotland 2012 4 1 5 13 38%
Ángel Di María Manchester United 26 Argentína 2014 3 6 9 24 38%
Raheem Sterling Liverpool 19 England 2012 3 4 7 19 37%
Diego Costa Chelsea 26 Spánn 2014 11 0 11 33 33%
Cesc Fábregas Chelsea 27 Spánn 2014 1 10 11 33 33%
Leighton Baines Everton 29 England 2007 2 6 8 24 33%
Graziano Pellé Southampton 29 Ítalía 2014 6 2 8 24 33%
Mile Jedinak Crystal Palace 30 Ástralía 2011 5 1 6 18 33%
Nikica Jelavic Hull City 29 Króatía 2014 4 1 5 15 33%
Diafra Sakho West Ham United 24 Senegal 2014 6 1 7 23 30%
Stewart Downing West Ham United 30 England 2014 2 5 7 23 30%
Jonathan Walters Stoke City 31 Írland 2010 3 1 4 14 29%
Mame Biram Diouf Stoke City 26 Senegal 2014 3 1 4 14 29%
Þessir leikmenn hafa komið að flestum mörkum liða sinna á leiktíðinni í enska boltanum
Óvinsæll Andreas Weimann hefur þrátt fyrir allt verið í lykilhlutverki í slökum sóknarleik Villa á tímabilinu.
Mikilvægur
Charlie Austin
hefur spilað
vel fyrir QPR.
Marka-
hæstur-
Sergio Agüero
hefur skorað
flest mörk.