Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 37
Helgarblað 5.–8. desember 2014 Skrýtið Sakamál 37
Morð – og eitt til
og Málið er dautt
n Brendu hugnaðist hvorki nöldur móður sinnar né stríðni bróður síns
Á
rið 1992 var Brenda Wiley,
þá 17 ára, sakfelld fyrir að
myrða bróður sinn, Kevin
14 ára, og móður, Bonnie
40 ára. Brenda var 15 ára
þegar hún myrti mæðginin á heim
ili fjölskyldunnar í Delaware Town
ship í Hunterdonsýslu í New Jersey
í Bandaríkjunum. Brenda fékk 30
ára til lífstíðardóm en hefur síðan
nokkrum sinnum gert tilraun til
að fá þeim dómi hnekkt eða hann
mildaðan. Árið 1994 áfrýjaði hún
dómnum en hafði ekki erindi sem
erfiði þar sem Hæstiréttur neitaði
að endurskoða málið.
Árið 2006 leitaði Brenda til ríkis
dómstólsins á þeirri forsendu að
hún hefði á sínum tíma sætt ólög
legri frelsissviptingu en úrskurðað
var henni í óhag tveimur árum síð
ar. Í janúar 2011 fór hún fram á að
dómurinn yrði endurskoðaður en
fór bónleið til búðar því beiðninni
var hafnað 17. febrúar. Brenda áfrýj
aði þeim úrskurði án árangurs.
Bróðirinn myrtur
En hvað sem öllu málavafstri í kjöl
far sakfellingar Brendu líður þá
virðist sem lítill vafi hafi leikið á
sekt hennar. Brenda lýsti, í hljóð
upptöku, hvernig hún hafði banað
bróður sínum. Hún hafði lamið
hann í höfuðið með glerflösku og
síðan stungið hann með eldhúshníf
í hálsinn. Að því loknu tróð hún líki
hans í svefnpoka og setti plastpoka
um höfuð hans.
Morð og sturta
Síðan hafði hún undirbúið sig fyrir
morðið á móður sinni, sem þegar
þar var komið sögu dundaði við eitt
hvað í gróðurhúsi fjölskyldunnar.
Brenda hafði náð sér í járnstöng sem
einhverra hluta vegna var geymd í
einum eldhússkápanna. Þegar móð
ir hennar kom inn um bakdyrnar
lét hún járnstöngina vaða í höfuð
hennar og kláraði verkið með fjölda
hnífstunga. Brenda þreif upp blóðið
með handklæði og fór síðan í sturtu.
Ósætti vegna kærasta
Skömmu fyrir morðin hafði Bonnie
sett dóttur sína í straff vegna sam
bands hennar við 18 ára dreng. Sá
hafði fyrir sið að laumast inn til
Brendu eftir að rökkva tók og dvelja
þar næturlangt. Við réttarhöldin
kom fram að foreldrar Brendu hefðu
ekki verið sáttir við sambandið og
beðið drenginn að slíta því.
Nöldur og stríðni
Enn fremur sagði Brenda að hún
hefði myrt móður sína því hún hefði
„sýknt og heilagt nöldrað í mér“ og
„aldrei leyft mér að gera nokkurn
skapaðan hlut“. Brenda myrti bróð
ur sinn vegna þess að hann „hafði
strítt mér, enn og aftur, eins og vana
lega“. Reyndar hafði Brenda hugsað
sér að fyrirkoma föður sínum einnig,
en hann slapp fyrir horn því hann
var farinn til vinnu þegar hún lét til
skarar skríða. Brenda Wiley afplán
ar dóm sinn í Edna Mahankvenna
fangelsinu í New Jersey og getur næst
sótt um reynslulausn árið 2022. n
„Reyndar
hafði
Brenda hugsað
sér að fyrirkoma
föður sínum
einnig, en hann
slapp fyrir horn.
Brenda Wiley Faðir
hennar slapp, en móðir
hennar og bróðir voru
ekki jafn heppin.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
sunnudaginn 7. desember kl. 16
og mánudaginn 8. desember kl. 18
í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg
Jón Engilberts
Á uppboðinu verður gott úrval verka
samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka
gömlu meistaranna.
Jólauppboð
í Gallerí Fold
Forsýning alla helgina í Gallerí Fold
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–15,
mánudag kl. 10–17 (einungis þau verk sem boðin eru upp á mánudag)
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Handtóku
níu ára barn
Lögreglan í Indianapolis í
Bandaríkjunum fór í held
ur óvenjulegt útkall á dögun
um. Þannig háttaði til að tvær
systur, sex og níu ára, höfðu
rifist heiftarlega á heimili sínu
– eins og systkinum er tamt.
Þegar sú eldri kýldi þá yngri í
höfuðið sá móðirin þann kost
vænstan að kalla til lögreglu.
Lögreglan mætti á staðinn,
handtók stúlkuna og kærði, eft
ir að hafa horft á myndbands
upptöku sem móðirin náði
af atvikinu. Fox 59 greinir frá
þessu óvenjulega máli.
Talsmaður barna í Indiana
polis segir mikilvægt að koma
í veg fyrir að börn lendi í klóm
réttarkerfisins. „Við vitum að
þau börn sem snemma komast
í kast við lögin eru líklegri til að
halda þeirri iðju áfram,“ er haft
eftir Rick Whitten.
Blekhylki.is
Við seljum
ódýra
tónera og
blekhylki
Fjarðargötu 11 og Smáralind • S: 517-0150