Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2014, Síða 48
Helgarblað 5.–8. desember 201448 Fólk  James Woods Greindarvísitala: 180 Háskóli: MIT Fæddur: 1947 Fæðingarstaður: Vernal, Utah, Bandaríkin Atvinna: Sjónvarpsþáttaframleiðandi, kvikmyndaframleiðandi, leikari, raddleikari Hæð: 177 sm James Woods fór í MIT og lærði stjórnmálafræði, þó að upphaf- lega hafi hann ætlað sér að verða augnskurðlæknir. Hann tók virk- an þátt í leiklistarlífi skólans og hætti fyrir útskrift til að einbeita sér að leiklistinni. Hann hefur þakkað Tim Affleck, pabba Bens Affleck, fyrir að hjálpa sér að taka ákvörðun. Tim var leikhússtjóri Theatre Company of Boston.. Fræga og gáfaða fólkið n Skólaganga kom ekki í veg fyrir að fólk elti drauma sína G reindarvísitölupróf er eitt af nokkrum prófum sem hægt er að taka til að mæla greind fólks. Prófið segir þó ekki allt um gáfur fólks. Þetta er ein leið til þess að áætla færni þess til að leysa úr ákveðnum vanda- málum. Prófin geta einblínt á raun- greinar, rúmfræði, málfræði, lesskilning og svo framvegis. En meðalgreindarvísi- tala er 100, á meðan allt yfir 130 er talið veru- lega gott. Fræga fólkið getur verið með háa greindarvísitölu líkt og annað fólk, þó að ímyndin segi oft annað. Jayne Mans- field var til að mynda með nokkuð háa greindarvísitölu og fannst mjög leiðinlegt að hún var aldrei tek- in alvarlega því það horfði enginn framhjá útliti hennar. n Helga Dís Björgúlfsdóttir helgadis@dv.is Masi Oka  Greindarvísitala: 189 Háskóli: Brown University Fæddur: 1974 Fæðingarstaður: Shibuya, Tókýó, Japan Atvinna: Leikari, tölvutækni- brellugerðarmaður Aðalnámsgrein: Tölvunarfræði og stærðfræði Hæð: 165 sm Leikarinn er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Hiro í sjónvarpsþáttunum Heroes. Hann lærði tölvunarfræði og stærðfræði í Brown University. Hann talar þrjú tungumál; ensku, spænsku og japönsku.  Dexter Holland Greindarvísitala: 170 Háskóli: University of Southern California Fæddur: 1965 Fæðingarstaður: Garden Grove, Kalifornía, Bandaríkin Atvinna: Ljóðskáld, gítarleikari, lagahöfundur, tónlistarmaður og söngvari Aðalnámsgrein: Sameindalíffræði Dexter er söngvari hljóm- sveitarinnar The Offspring og er með mastersgráðu í sameindalíffræði. Hann var byrjaður á doktorsnámi sínu í því fagi þegar hljómsveitin sló í gegn og ákvað í kjölfarið að hætta náminu og einbeita sér að söngferlinum.  Jayne Mansfield Greindarvísitala: 163 Háskóli: UCLA, Southern Methodist University, UT Austin Fædd: 1933 Fæðingarstaður: Bryn Mawr, Pennsylvania, Bandaríkin Atvinna: Píanóleikari, leikkona, söngkona, módel Hæð: 165 sm Leikkonan var þekktust fyrir sínar ávölu línur og kynbombustimpil. Hún gekk í þrjá háskóla, lærði leiklist í tveimur af þeim og talaði fimm tungumál; frönsku, spænsku, þýsku, ítölsku og ensku. Hún hafði orð á því að henni fyndist leiðinlegt að enginn gæfi gáfum hennar gaum. Hún dó í hræðilegu bílslysi árið 1967, með börnin sín þrjú í aftursætinu.  Matt Damon Greindarvísitala: 160 Háskóli: Harvard University Fæddur: 1970 Fæðingarstaður: Cambridge, Massachu- setts, Bandaríkin Atvinna: Talsmaður, sjónvarpsþáttafram- leiðandi, kvikmyndaframleiðandi, handrits- höfundur, leikari Hæð: 177 sm Matt stundaði nám í ensku í Harvard, en hætti í skólanum þegar hann átti aðeins 12 einingar eftir til að leika í kvikmyndinni Geronimo: An American Legend.  Dolph Lundgren Greindarvísitala: 160 Háskóli: Washington State University, Clemson Uni- versity, Royal Institute of Technology (í Stokkhólmi) Fæddur: 1957 Fæðingarstaður: Spånga, Stokkhólmur, Svíþjóð Atvinna: Kvikmyndaframleiðandi, handritshöfund- ur, leikari, bardagalistamaður, leikstjóri Aðalnámsgrein: Efnaverkfræði Hæð: 195 sm Hasarleikarinn er með gráðu í verkfræði og masters- gráðu í efnaverkfræði. Eins var hann tvö ár í sænska hernum og er með 3. dan svarta beltið í karate.  Alicia Keys Greindarvísitala: 154 Háskóli: Columbia University Fædd: 1981 Fæðingarstaður: Hell's Kitchen, New York-borg, New York, Bandaríkin Atvinna: Plötufram- leiðandi, píanóleikari, tónlistarkona, söngkona, lagahöfundur, leikkona Hæð: 167 sm Háskólaferill Aliciu var ekki langur en hún fékk plötusamning á sama tíma og hún komst inn í Columbia-háskóla. Hún reyndi að sinna hvoru tveggja á sama tíma en það gekk illa og ákvað hún að einbeita sér að söngferlinum. Asia Carrera  Greindarvísitala: 156 Háskóli: Rutgers University Fædd: 1973 Fæðingarstaður: New York-borg, New York, Bandaríkin Atvinna: Klámmyndaleikkona, handrits-höf- undur, leikkona, raddleikkona, leikstjóri Hæð: 172 sm Klámstjarnan fyrrverandi fékk skólastyrk til þess að nema japönsku og viðskiptafræði, hún lauk ekki námi og fór að vinna í klámmyndabransanum í staðinn. Hún er meðlimur í Mensa, samfélagi sem aðeins er ætlað þeim sem eru með greindarvísitölu yfir 132.  Cindy Crawford Greindarvísitala: 154 Háskóli: Northwestern University Fædd: 1966 Fæðingarstaður: DeKalb, Illinois, Bandaríkin Atvinna: Módel, tískumódel, ofurmódel, leikkona Aðalnámsgrein: Efnaverkfræði Hæð: 175 sm Cindy fékk skólastyrk til þess að læra efnaverkfræði í Northwestern University en kláraði aðeins fjórðung námsins því hún ákvað að elta módeldrauma sína. Eftir að hún tók þátt í þættingum Who Do You Think You Are? árið 2013 komst hún að því að hún væri af konung- legum enskum ættum.  Meryl Streep Greindarvísitala: 143 Háskóli: Vassar College, Dartmouth College, Yale School of Drama Fædd: 1949 Fæðingarstaður: Summit, New Jersey, Bandaríkin Atvinna: Talsmaður, leikkona, raddleikkona Aðalnámsgrein: Leiklist Hæð: 167 sm Meryl hefur verið tilnefnd átján sinnum til Ósk- arsverðlauna, oftar en nokkur leikkona, og af þeim átján tilnefningum vann hún þrisvar. Hún er með mastersgráðu í leiklist frá Yale.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.