Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Innflutningur á holdanautasæði verður heimill:
Nautakjötsframleiðendur hafa lengi
beðið eftir endurnýjun í stofninum
– segir Unnsteinn Hermannsson, bóndi í Langholtskoti í Hrunamannahreppi
Í ræðu Sigurðar Inga
Jóhannssonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, á aðalfundi
Landssambands kúabænda á
dögunum, kom fram að stefnt sé að
því að lagt verði fram frumvarp til
breytinga á lögum um innflutning
á holdanautasæði nú fyrir páska.
Með þeim breytingum verði heimilt
að flytja inn ferskt erfðaefni til
kynbóta hér á landi – frá og með
næsta sumri.
Unnsteinn Hermannsson og
hans fjölskylda í Langholtskoti
í Hrunamannahreppi, eru í hópi
íslenskra nautakjötsframleiðenda sem
hafa beðið með nokkurri óþreyju eftir
endurnýjun í þeim bústofni sem fyrir
er í landinu. Hann segir að það hafi
ekki orðið framfarir í stofnunum á
Íslandi í tugi ára. Það sé bæði vegna
smæðar stofnsins og eins vegna þess
skyldleika sem er meðal gripa innan
hans.
Einungis „gamalt sæði“ nú í boði
Að sögn Unnsteins er nýjasta hreina
holdasæðið sem til er í landinu til
kynbóta frá árinu 1995 og svo er til
sæði úr enn eldri Gallowaygripum
sem komu í Hrísey 1985 – en
naut var einmitt sótt þangað fyrir
Langholtskot árið 2010. „Vegna
skyldleikans sem er í landinu
hefur engin ræktun átt sér stað af
viti til að þróa betri gripi,“ segir
Unnsteinn.
„Með innflutningi á sæði, sem
mér skilst að verði Aberdeen
Angus-kyn frá Noregi, mun
skyldleikaræktun minnka, auk þess
sem nýjum gripum fylgir aukinn
vaxtarhraði og meiri vöðvamyndun
í hverjum grip. Við myndum njóta
þess ræktunarstarfs sem hefur
verið stundað með þetta kyn og
værum í raun að kaupa okkur það
í þessu formi. Við framleiðendur
höfum lítillega komið að þessari
vinnu við nýja löggjöf og það er
ekkert leyndarmál að þetta kyn
var kannski ekki það sem við helst
vildum. Það kemur hins vegar til af
því að sjúkdómahættan er kannski
minnst með því að flytja inn frá
Noregi. Við vildum líka að leyft
yrði að flytja inn fósturvísa, því
það mun verða okkur erfitt – í það
minnsta til að byrja með – að sæða
kýrnar þar sem þær eru útigangskýr.
Við þurfum væntanlega að byrja á
því að reyna að velja úr þægar og
viðráðanlegar kýr sem þarf þá að
notast við.“
Meiri samvinna verður meðal
holdanautaræktenda
Unnsteinn segir að þegar
ræktunarstarf verði komið eitthvað
af stað, með nýju erfðaefni, sé
líklegt að meiri samvinna verði
meðal framleiðenda í landinu.
Þó sé tæpast ástæða til að stofna
sérstakt samband utan um þessa
grein nautgriparæktarinnar.
„Landssamband kúabænda
(LK) er auðvitað fagsamband
nautgriparæktar í landinu – og
kjötframleiðsla er nautgriparækt
líka þó hún hafi orðið dálítið
hornreka í kerfinu. Á síðustu árum
hefur LK þó verið að sinna þessum
málum og ýta þessu máli áfram.
Það verður líka að fara varlega
í svona málum og þau taka sinn
tíma.“
Þrátt fyrir gríðarlega eftirspurn
á síðustu árum hér á landi eftir
nautakjöti þá hefur ekki verið
mikið svigrúm í Langholtskoti
til að auka við framleiðsluna að
ráði. Unnsteinn segir að til þess
að það hefði verið mögulegt hefði
hreinlega þurft að kaupa land og
fleiri gripi. Núverandi bústofn
og rekstur hafi ekki boðið upp á
möguleika á mikilli fjölgun; það
sé ekki bæði hægt að setja kálfa á
og í búðarborðið.
Breyttu yfir í kjötframleiðslu í
stað þess að endurnýja fjós
Í Langholtskoti er rekin farsæl
nautakjötframleiðsla og vinnsla.
Árið 1980 tók þau Unnsteinn
Hermannsson og kona hans, Valdís
Magnúsdóttir, við búi í Langholtskoti
af foreldrum Unnsteins.
Í byrjun voru þau aðallega í
mjólkurframleiðslu, en einnig
með fjárbúskap um tíma.
Unnsteinn segir að árið 2006
hafi þau staðið frammi fyrir því
að taka ákvörðun um hvort þau
myndu byggja nýtt fjós eða hætta
mjólkurframleiðslu þar sem gamla
fjósið var orðið yfirfullt, auk þess
sem þar var slæm vinnuaðstaða.
Þau tóku ákvörðun að breyta yfir
í kjötframleiðslu til að nýta áfram
gömlu byggingarnar, ræktun og
vélakost. Haustið 2006 seldu þau
kýrnar og framleiðsluréttinn í
mjólk og keyptu holdanautahjörð.
/smh
Unnsteinn Hermannsson og fjölskylda hafa í nokkur ár rekið eigin kjötvinnslu í Langholtskoti. Mynd / smh