Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 51

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Lesendabás Afturköllun umsóknar um aðild að ESB Miklu moldviðri hefur undanfarið verið þyrlað upp í kjölfar þess að utanríkisráðherra tilkynnti ESB bréflega að ríkisstjórn Íslands hygðist ekki taka að nýju upp viðræður um aðild landsins að ESB. Hvað sem líður túlkun annarra en bréfritara á efni þess þá er sannleikurinn sá að aðlögunarviðræður Íslands við ESB hafa legið niðri í 4 ár að meira eða minna leyti. Þetta kann að koma einhverjum spánskt fyrir sjónir. En þetta er engu að síður staðreynd þegar örfá lykilatriði í ferli þessa máls eru skoðuð. Hinn 16. júní 2009 var samþykkt á Alþingi Íslendinga svohljóðandi þingsályktunartillaga: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Þann sama dag var ritað bréf til ESB þar sem sótt var um aðild á grundvelli 49. greinar Lissabon- sáttmálans. Enga tilvitnun er þar að finna til síðari hluta fyrrnefndrar þingsályktunar. Þau sjónarmið sem gerð er grein fyrir í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar eru annars vegar forsenda samþykktar um að sótt skyldi um aðild en hins vegar sýna þau þann grundvallar misskilning sem útbreiddur er um eðli ESB og viðræðna um aðild að því. Kjarni þess er ágætlega skýrður í Viðauka I við skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands „Úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið og þróun sambandsins“ Á bls. 6 segir þar: Að því er varðar efnisleg atriði er almennt viðurkennt að umsóknarríkin gangast undir ákveðin grundvallarskilyrði fyrir stækkun (principles of enlargement) sem eru í meginatriðum að þau samþykki sáttmála ESB, markmið þeirra og stefnu og ákvarðanir sem hafa verið teknar síðan þeir öðluðust gildi. Grundvallarskilyrðin eru fjögur: í fyrsta lagi snýst stækkun um aðild að stofnun sem er fyrir hendi en ekki að til verði ný stofnun, í annan stað þarf umsóknarríki að samþykkja réttarreglur bandalagsins, acquis communautaire í einu og öllu, í þriðja lagi skulu umbreytingafrestir (e. transitional periods) vera takmarkaðir og ekki fela í sér undanþágur frá grunnsáttmálunum og þeim meginreglum sem bandalagið byggir á. Í fjórða lagi er um að ræða skilyrðasetningu, sem á ensku hefur verið nefnt conditionality. Hið síðastnefnda varð hluti af aðildarferlinu vegna stækkunar sambandsins 2004 og 2007. Fyrstu þrjú skilyrðin voru þegar hluti af stækkun sambandsins árið 1973. Þessi grundvallarskilyrði eru almennt viðurkennd þótt þau séu ekki talin í áðurnefndri 49. gr. ESB. Í ljósi þessa er það rökrétt ályktun að í raun var það ESB sem sleit aðlögunarviðræðunum við Ísland þegar sambandið skilaði ekki rýniskýrslu um sjávarútvegskaflann eftir seinni rýnifundinn í mars 2011. ESB vissi sem var að Ísland myndi ekki fallast á opnunarskilyrði ESB um að setja fram tímasetta áætlun um hvernig Ísland myndi taka upp Evrópulöggjöfina í sjávarútvegi. Vert er að minna á að slíkt opnunarskilyrði var einmitt sett fram fyrir landbúnaðarkaflann. Þeir sem vilja að viðræðum verði haldið áfram til að þjóðin geti fengið að kjósa um samning verða því fyrst að skýra hvernig aðlögunarviðræðurnar geta hafist að nýju. Svarið er augljóst: Að fallið verði frá þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem koma fram í áliti meirihluta utanríkismálanefndar í júlí 2009. Það verður fróðlegt að sjá þá sem greiddu þeirri þingsályktun atkvæði sitt, samþykkja slíka stefnubreytingu 6 árum síðar. Erna Bjarnadóttir Ekki er óeðlilegt að blað sem gefið er út af Bændasamtökum Íslands reyni af bestu getu að gæta hagsmuna bænda en Bændablaðið hefur að undanförnu farið mikinn í að verja þá tollastefnu sem beitt er að sögn til að vernda hagsmuni innlends landbúnaðar. Undirritaður sér sig þó knúinn til að leiðrétta ákveðinn misskilning sem einkennir einhliða málflutning Bændablaðsins þar sem ákveðnar staðreyndir koma ekki fram. Þannig leggur blaðið mikla áherslu á að spyrða Neytendasamtökin saman við samtök innan verslunarinnar og má helst skilja á skrifum blaðsins að Neytendasamtökunum sé meira umhugað um hag hennar en neytenda. Svona málflutningur dæmir sig að sjálfsögðu sjálfur, enda er það hlutverk Neytendasamtakanna að gæta hagsmuna neytenda og engra annarra. En þegar kemur að því að gæta þessara hagsmuna greinir okkur oft á við samtök sem gæta hagsmuna annarra. Þá er oftar en ekki vænlegra að aðilar setjist niður og ræði málið í stað þess að vera með upphrópanir. Vissulega hafa Neytenda- samtökin gagnrýnt háa tolla á landbúnaðarvörur og krafist lækkana á þeim og í sumum tilvikum afnáms þegar til lengri tíma er litið. Samtökin hafa jafnframt kallað eftir endurskoðun á landbúnaðarkerfinu og ítrekað bent á að fyrr eða síðar verði tollar lækkaðir með nýjum samningum innan Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Því væri betra að í stað þess að vernda kerfi sem er dæmt til að taka breytingum að búa það undir þær breytingar. Enda vitum við að hér á landi eru framleiddar gæðavörur og flest okkar vilja hafa landbúnaðinn sem öflugastan, en um leið samkeppnishæfan. Því er löngu tímabært að endurskoða landbúnaðarstefnuna í þágu neytenda og einnig bænda. Jafnframt er ástæða til að minna á að íslenskar landbúnaðarvörur njóta vaxandi hylli í mörgum löndum. Með því að loka landið af með tollmúrum erum við um leið að skerða möguleika okkar á auknum útflutningi. Það á því að vera sameiginlegt hagsmunamál íslenskra neytenda og bænda að viðskiptafrelsi landa á milli með landbúnaðarvörur verði aukið sem allra mest. Þegar Bændablaðið úthúðar Neytenda sam tökunum vegna m e i n t r a r stefnu þeirra í l andbúnaða r- málum koma o f t h i n a r f u r ð u l e g u s t u s t a ð h æ f i n g a r fram. Þannig var nýlega fjallað um ofnotkun sýkla lyfja í land - búnaði í mörgum löndum og sagði þar m.a: „Þær áhyggjur sem Neytendasamtökin virðast hafa af kjötinnflutningi eru að ekki sé nógu ötullega unnið að því að fella niður innflutningsgjöld af kjöti. Lýðheilsumál eru ekki mikið rædd í því sambandi. Þar skipta verðlagsmál til skamms tíma greinilega meira máli.“ Það er lágmarkskrafa að þeir sem eru að fjalla um afstöðu Neytendasamtakanna til einstakra mála kynni sér stefnu þeirra í heild sinni en tíni ekki aðeins út það sem hentar. Þannig hafa Neytendasamtökin ítrekað gert kröfu um að innfluttar landbúnaðarvörur séu ekki lakari að gæðum en þær innlendu. Í samþykkt síðasta þings samtakanna segir þannig orðrétt: „Tryggja þarf með eftirliti að innfluttar vörur uppfylli sömu kröfur og gerðar eru til innlendrar framleiðslu.“ Það er því ljóst að um leið og Neytendasamtökin berjast fyrir sem lægstu vöruverði gera þau ýtrustu kröfur um gæði vörunnar og þetta ætti Bændablaðið að hafa í huga næst þegar það fjallar um stefnu Neytendasamtakanna varðandi innflutning á matvælum. Loks skal minnt á að Neytendasamtökin hafa barist ötullega fyrir því að neytendur fái allar nauðsynlegar upplýsingar um vöruna áður en kaup fara fram, enda slíkt nauðsynlegt til að tryggja að neytendur geti valið á upplýstan hátt. Eitt af því sem neytendur vilja vita um er upprunaland matvara. Það var því fagnaðarefni þegar Neytendasamtökin, Bændasamtök Íslands og Samtök atvinnulífsins undirrituðu samstarfssáttmála um að vinna að því í sameiningu að upprunaland komi fram á öllum matvörum. Slíkt samstarf er vænlegra til árangurs heldur en upphrópanir og skítkast. Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna. Vilja Neytendasamtökin innflutning á kjöti mengað af sýklalyfjum? Jóhannes Gunnarsson. Humbaur álkerrur Tveggja öxla, 2500 kg., mál á palli 3x1.5m. Verð kr: 560,000,- m./vsk. og skráningu. www.Topplausnir.is - Smiðjuvegi 40 - gul gata - 200 Kópavogi. Sími 517-7718
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.