Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Landssamtök sauðfjárbænda:
Aðalfundur og fagráðstefna
Aðalfundur og fagráðstefna
Landssamtaka sauðfjárbænda
verða haldin á Hótel Sögu dagana
26. og 27. mars.
Á aðalfundinum verður skýrsla
LS kynnt, auk skýrslu um framvindu
mála frá aðalfundi 2012, skýrsla
fulltrúa LS í stjórn Ístet, skýrsla
framkvæmdastjóra Markaðsráðs
kindakjöts og reikningar LS kynntir.
Fagráðstefna LS hefst klukkan
14.30 föstudaginn 27. mars og
er efni hennar að þessu sinni
beitarstjórnun og sníkjudýravarnir.
Þrír fyrirlestrar verða í boði. Nýting
beitarstjórnunar og fóðrunar til að
lágmarka ormasmit í sauðfé sem
Rhidian Jones, sérfræðingur hjá
SAC Consulting í Skotlandi heldur.
Jóhannes Sveinbjörnsson hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands mun
fjalla un nýtingu ræktaðs lands og
beitarstjórnunar til að bæta afurðir
sauðfjár við íslenskar aðstæður og
Hákon Hansson dýralæknir segir frá
smitleiðum og vörnum gegn hnísla-
og ormasýkingum.
Árshátíð Landssamtaka
sauðfjárbænda verður í Súlnasal,
Hótels Sögu um kvöldið.
Laugardaginn 28. mars
klukkan 14.00 til 15.30 verður
rúningskeppnin „Gullnu klippurnar“
haldin í samvinnu KEX hostel og
LS. Keppnin fer fram í portinu á bak
við KEX hostel á Skúlagötu 28. /VH
Fréttir
Handverkshátíð á Hrafnagili:
Íbúar hvattir til að útbúa
fuglahræður
Aðstandendur Handverkshátíðar
hvetja íbúa sveitarinnar til að
útbúa fuglahræður og velja
þeim stað í sveitinni sem sést frá
veginum. Fuglahræðurnar mega
vera óhefðbundnar og efnisval er
frjálst.
Í byrjun sumars þurfa þær að
fara á stjá og hápunkturinn verður
á Handverkshátíðinni þar sem
einhverjum þeirra verður boðið
inn á svæðið og í lok hátíðar verða
verðlaun veitt. Þetta uppátæki mun
án efa kæta gesti sveitarinnar líkt
og póstkassarnir, traktorinn og
kýrnar á Hvassafelli gerðu um
árið „og tryggir okkur vonandi enn
fleiri gesti í ár en síðustu ár,“ segir
í tilkynningu frá forsvarsmönnum
Handverkshátíðar.
Undirbúningur vegna 23. Hand-
verkshátíðar sem fram fer 6.–9. ágúst
er hafinn. Hátíðin er löngu orðin
einn stærsti menningarviðburður
á Eyjafjarðarsvæðinu jafnframt
því að vera stærsti vettvangur
handverksfólks og hönnuða á
landinu.
Árlega taka um 100 sýnendur
þátt og hátíðin fær um 15–20
þúsund heimsóknir. Umsóknir vegna
þátttöku á hátíðinni streyma inn
þessa dagana en frestur til að sækja
um er 1. apríl næstkomandi.
Áhrif eldgossins í Holuhrauni á lífríkið rædd á málþingi:
Mörgum spurningum enn ósvarað
Á mánudag var haldið málþing í
Bændahöllinni um áhrif eldgossins
í Holuhrauni á gróður og lífríki.
Mörg áhugaverð erindi voru flutt
á málþinginu sem lýstu þeim
rannsóknum sem framkvæmdar
hafa verið og eru fyrirhugaðar.
Gerður Stefánsdóttir hjá
Veðurstofu Íslands ræddi áhrif
gossins í sínu erindi. Kom fram
að Veðurstofan sinnti viðamikilli
vöktun á gosinu allan gostímann og
hófst sú vöktun reyndar vel fyrir gos.
Var Veðurstofan þar í lykilhlutverki
varðandi viðbragðsáætlun ásamt
Almannavörnum. Byggt var á
margvíslegum rannsóknum, eins
og flugi, rannsóknum á staðnum,
rauntímamælingum á gastegundum,
sýrustigi í úrkomu, ákomu flúors
og brennisteinsdreifingu gosefna
og fleira.
Áhrif súrnunar í ám og vötnum
Halla Margrét Jóhannesdóttir hjá
Veiðimálastofnun ræddi áhrif
súrnunar á lífríki í ám og vötnum.
Í erindi hennar kom fram að
viðkvæmustu vatnavistkerfin eru
yfirleitt á gömlu bergi þar sem lítið
er um jarðveg og gróður. Slíkt berg
er helst að finna á Vestfjörðum og
einnig á Austfjörðum sem liggja
nærri gosstöðvunum. Á ungum
berggrunni, næst gosbeltinu, eru
vatnavistkerfi í minnstri hættu.
Þar er sýrustig náttúrlega hærra og
basavirkni meiri þannig að sýrustig
lækkar síður. Þrátt fyrir að vötn
sem eru næst gossvæðinu ættu að
vera síður viðkvæm gerir loftborna
mengunin illmögulegt að vita hvar
þetta kemur niður.
Súrnun getur haft áhrif á
vatnalífverur í öllum þrepum
fæðukeðjunnar. Sé mikið af
uppleystu lífrænt kolefni til staðar
í vatni virðist það þó geta haft
afeitrunaráhrif fyrir lífverur þegar
kemur að áli og öðrum málmum á
jónaformi.
Þar sem súrnun getur breytt
tegundasamsetningu, þéttleika
og næringargildi í vatnagróðri,
hryggleysingjum og fiskum getur
það haft áhrif á viðkomu vatnafugla
sem treysta á þessa fæðu.
Reikna má með staðbundnum
breytingum á gróðri
Í erindi Sigurðar H. Magnússonar,
Erlings Ólafssonar og Kristins
Hauks Skarphéðinssonar hjá
Náttúrufræðistofnun, kom m.a. fram
að eldgosið hafi að mörgu leyti verið
mjög sérstakt. Það framkallaði ekkert
öskufall, en einkenndist af miklu
hraunrennsli og mikilli loftmengun.
Það eru einkum gastegundir sem
upp komu í gosinu sem menn hafa
áhyggjur af að geti valdið skaða í
lífríkinu. Þar er um að ræða mengun
af völdum brennisteinsdíoxíns,
brennisteinsvetnis, koldíoxíðs og
kolmónoxíðs. Staðsetning gossins
reyndist þó vera afar heppileg á
margan hátt, langt frá byggð og á
mjög gróðurlitlu svæði. Þá var gosið
líka á heppilegum árstíma ef svo má
að orði komast, því það hófst 31.
ágúst í lok vaxtartímaplantna og lauk
27. febrúar en vaxtartími plantna
hefst yfirleitt ekki fyrr en um 15.
maí. Áhyggjur vísindamanna beinist
nú helst að mögulegri uppsöfnun
eiturefna í snjó í kringum gossvæðið
sem gæti haft áhrif á gróður og lífríki
vatna þegar snjóa leysir.
Í nágrenni Holuhrauns er ekki
mikið beitarland nema þá helst
fyrir hreindýr. Reikna má þó
með einhverjum staðbundnum
breytingum á gróðri vegna
eldgossins. Hinsvegar er spurning
sett við áhrif á önnur spendýr eins
og ref, mink og mýs. Í erindinu
kom fram að fréttir hafa borist
af músadauða við Holuhraun
og eins við Fornustekka nærri
Höfn í Hornafirði og við Hlíð í
Lónsvík. Afar litlar rannsóknir eru
fyrirliggjandi um áhrif gosmengunar
á fugla. Lungu fugla gera þeim kleift
að taka upp tvisvar sinnum meira af
lofti en flest spendýr og því eru þeir
viðkvæmari fyrir loftmengun. Þess
vegna hafa kanarífuglar oft verið
notaðir í kolanámum í gegnum tíðina
til að vara menn við gasmengun.
Óljósar fregnir eru þó um fugladauða
við Holuhraun. Auðnutittlingar
fundust dauðir á Hrafnkelsdal eftir
mikinn mengunardag – að öðru
leyti eru engar vísbendingar um
fugladauða. Fuglalíf er nánast ekkert
í umhverfi Holuhrauns en væntanleg
umferð farfugla er á tímabilinu júlí
til október og í apríl og maí.
Þá kom fram í erindinu að
Ísland hefur tekið þátt í alþjóðlegu
vöktunarverkefni frá 1990 um áhrif
loftmengunar á mosa. Byggist það
á mælingum á styrk þungmálma í
mosa. Það verkefni gerir þó aðeins
ráð fyrir sýnatöku á fimm ára fresti.
Eftir Eyjafjallajökulsgosið 2010
mældust skemmdir á mosa á allstóru
svæði á sunnanverðu landinu.
Margþætt áhrif á trjágróður
bæði til góðs og ills
Edda Sigurdís Oddsdóttir,
Rannsóknastöð skógræktar á
Mógilsá, flutti einnig erindi á
málþinginu um áhrif eldgoss á
skógrækt. Kom fram að hægt er að
bera saman skógvaxtarmælingar
fyrir og eftir gos til að meta áhrifin.
Þess má geta að aukinn styrkur
sumra mengandi lofttegunda eins og
koltvísýrings hefur vaxtahvetjandi
áhrif á tré. Hins vegar dregur
brennisteinsvetni úr trjávexti svo
samspilið getur verið flókið. /HKr.
Mynd / Veðurstofa Íslands.
Myndir / HKr.
Úrvalsmjólk á Hvannabrekku
fjórða árið í röð
Fjórða árið í röð voru þau
Steinþór Björnsson og
Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir
á Hvannabrekku í Berufirði,
verðlaunuð fyrir úrvalsmjólk.
Verðlaun fyrir úrvalsmjólk fá
þau kúabú sem leggja inn mjólk í 1.
flokki A í öllum mánuðum ársins.
Hvannabrekka var í ár, líkt og í
fyrra, eina kúabúið á Austurlandi
sem hlaut þessa viðurkenningu
að því er fram kemur á vef
Austurfréttar.
Það er Auðhumla, samvinnufélag
mjólkurframleiðenda, sem veitir
verðlaunin. Auðhumla er í eigu um
700 mjólkurframleiðenda um land
allt. Hún hefur það hlutverk að taka
við mjólk frá félagsmönnum sínum
og umbreyta í mjólkurafurðir sem
eru seldar á markaði á Íslandi og
erlendis. Auðhumla er móðurfélag
Mjólkursamsölunnar ehf.
Með bestu kúabúum á landinu
Það eru gerðar mjög strangar
gæðakröfur til allrar mjólkur sem
mjólkurframleiðendur leggja inn.
Það eru tekin sýni úr allri mjólk
sem sótt er. Það hlýtur því að teljast
góður árangur og ekki sjálfgefið að
hljóta þessi verðlaun fjögur ár í röð,
og er óhætt að segja að kúabúið á
Hvannabrekku sé með þeim bestu
á landinu. /MÞÞ