Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 4

Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Landssamtök sauðfjárbænda: Aðalfundur og fagráðstefna Aðalfundur og fagráðstefna Landssamtaka sauðfjárbænda verða haldin á Hótel Sögu dagana 26. og 27. mars. Á aðalfundinum verður skýrsla LS kynnt, auk skýrslu um framvindu mála frá aðalfundi 2012, skýrsla fulltrúa LS í stjórn Ístet, skýrsla framkvæmdastjóra Markaðsráðs kindakjöts og reikningar LS kynntir. Fagráðstefna LS hefst klukkan 14.30 föstudaginn 27. mars og er efni hennar að þessu sinni beitarstjórnun og sníkjudýravarnir. Þrír fyrirlestrar verða í boði. Nýting beitarstjórnunar og fóðrunar til að lágmarka ormasmit í sauðfé sem Rhidian Jones, sérfræðingur hjá SAC Consulting í Skotlandi heldur. Jóhannes Sveinbjörnsson hjá Landbúnaðarháskóla Íslands mun fjalla un nýtingu ræktaðs lands og beitarstjórnunar til að bæta afurðir sauðfjár við íslenskar aðstæður og Hákon Hansson dýralæknir segir frá smitleiðum og vörnum gegn hnísla- og ormasýkingum. Árshátíð Landssamtaka sauðfjárbænda verður í Súlnasal, Hótels Sögu um kvöldið. Laugardaginn 28. mars klukkan 14.00 til 15.30 verður rúningskeppnin „Gullnu klippurnar“ haldin í samvinnu KEX hostel og LS. Keppnin fer fram í portinu á bak við KEX hostel á Skúlagötu 28. /VH Fréttir Handverkshátíð á Hrafnagili: Íbúar hvattir til að útbúa fuglahræður Aðstandendur Handverkshátíðar hvetja íbúa sveitarinnar til að útbúa fuglahræður og velja þeim stað í sveitinni sem sést frá veginum. Fuglahræðurnar mega vera óhefðbundnar og efnisval er frjálst. Í byrjun sumars þurfa þær að fara á stjá og hápunkturinn verður á Handverkshátíðinni þar sem einhverjum þeirra verður boðið inn á svæðið og í lok hátíðar verða verðlaun veitt. Þetta uppátæki mun án efa kæta gesti sveitarinnar líkt og póstkassarnir, traktorinn og kýrnar á Hvassafelli gerðu um árið „og tryggir okkur vonandi enn fleiri gesti í ár en síðustu ár,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Handverkshátíðar. Undirbúningur vegna 23. Hand- verkshátíðar sem fram fer 6.–9. ágúst er hafinn. Hátíðin er löngu orðin einn stærsti menningarviðburður á Eyjafjarðarsvæðinu jafnframt því að vera stærsti vettvangur handverksfólks og hönnuða á landinu. Árlega taka um 100 sýnendur þátt og hátíðin fær um 15–20 þúsund heimsóknir. Umsóknir vegna þátttöku á hátíðinni streyma inn þessa dagana en frestur til að sækja um er 1. apríl næstkomandi. Áhrif eldgossins í Holuhrauni á lífríkið rædd á málþingi: Mörgum spurningum enn ósvarað Á mánudag var haldið málþing í Bændahöllinni um áhrif eldgossins í Holuhrauni á gróður og lífríki. Mörg áhugaverð erindi voru flutt á málþinginu sem lýstu þeim rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið og eru fyrirhugaðar. Gerður Stefánsdóttir hjá Veðurstofu Íslands ræddi áhrif gossins í sínu erindi. Kom fram að Veðurstofan sinnti viðamikilli vöktun á gosinu allan gostímann og hófst sú vöktun reyndar vel fyrir gos. Var Veðurstofan þar í lykilhlutverki varðandi viðbragðsáætlun ásamt Almannavörnum. Byggt var á margvíslegum rannsóknum, eins og flugi, rannsóknum á staðnum, rauntímamælingum á gastegundum, sýrustigi í úrkomu, ákomu flúors og brennisteinsdreifingu gosefna og fleira. Áhrif súrnunar í ám og vötnum Halla Margrét Jóhannesdóttir hjá Veiðimálastofnun ræddi áhrif súrnunar á lífríki í ám og vötnum. Í erindi hennar kom fram að viðkvæmustu vatnavistkerfin eru yfirleitt á gömlu bergi þar sem lítið er um jarðveg og gróður. Slíkt berg er helst að finna á Vestfjörðum og einnig á Austfjörðum sem liggja nærri gosstöðvunum. Á ungum berggrunni, næst gosbeltinu, eru vatnavistkerfi í minnstri hættu. Þar er sýrustig náttúrlega hærra og basavirkni meiri þannig að sýrustig lækkar síður. Þrátt fyrir að vötn sem eru næst gossvæðinu ættu að vera síður viðkvæm gerir loftborna mengunin illmögulegt að vita hvar þetta kemur niður. Súrnun getur haft áhrif á vatnalífverur í öllum þrepum fæðukeðjunnar. Sé mikið af uppleystu lífrænt kolefni til staðar í vatni virðist það þó geta haft afeitrunaráhrif fyrir lífverur þegar kemur að áli og öðrum málmum á jónaformi. Þar sem súrnun getur breytt tegundasamsetningu, þéttleika og næringargildi í vatnagróðri, hryggleysingjum og fiskum getur það haft áhrif á viðkomu vatnafugla sem treysta á þessa fæðu. Reikna má með staðbundnum breytingum á gróðri Í erindi Sigurðar H. Magnússonar, Erlings Ólafssonar og Kristins Hauks Skarphéðinssonar hjá Náttúrufræðistofnun, kom m.a. fram að eldgosið hafi að mörgu leyti verið mjög sérstakt. Það framkallaði ekkert öskufall, en einkenndist af miklu hraunrennsli og mikilli loftmengun. Það eru einkum gastegundir sem upp komu í gosinu sem menn hafa áhyggjur af að geti valdið skaða í lífríkinu. Þar er um að ræða mengun af völdum brennisteinsdíoxíns, brennisteinsvetnis, koldíoxíðs og kolmónoxíðs. Staðsetning gossins reyndist þó vera afar heppileg á margan hátt, langt frá byggð og á mjög gróðurlitlu svæði. Þá var gosið líka á heppilegum árstíma ef svo má að orði komast, því það hófst 31. ágúst í lok vaxtartímaplantna og lauk 27. febrúar en vaxtartími plantna hefst yfirleitt ekki fyrr en um 15. maí. Áhyggjur vísindamanna beinist nú helst að mögulegri uppsöfnun eiturefna í snjó í kringum gossvæðið sem gæti haft áhrif á gróður og lífríki vatna þegar snjóa leysir. Í nágrenni Holuhrauns er ekki mikið beitarland nema þá helst fyrir hreindýr. Reikna má þó með einhverjum staðbundnum breytingum á gróðri vegna eldgossins. Hinsvegar er spurning sett við áhrif á önnur spendýr eins og ref, mink og mýs. Í erindinu kom fram að fréttir hafa borist af músadauða við Holuhraun og eins við Fornustekka nærri Höfn í Hornafirði og við Hlíð í Lónsvík. Afar litlar rannsóknir eru fyrirliggjandi um áhrif gosmengunar á fugla. Lungu fugla gera þeim kleift að taka upp tvisvar sinnum meira af lofti en flest spendýr og því eru þeir viðkvæmari fyrir loftmengun. Þess vegna hafa kanarífuglar oft verið notaðir í kolanámum í gegnum tíðina til að vara menn við gasmengun. Óljósar fregnir eru þó um fugladauða við Holuhraun. Auðnutittlingar fundust dauðir á Hrafnkelsdal eftir mikinn mengunardag – að öðru leyti eru engar vísbendingar um fugladauða. Fuglalíf er nánast ekkert í umhverfi Holuhrauns en væntanleg umferð farfugla er á tímabilinu júlí til október og í apríl og maí. Þá kom fram í erindinu að Ísland hefur tekið þátt í alþjóðlegu vöktunarverkefni frá 1990 um áhrif loftmengunar á mosa. Byggist það á mælingum á styrk þungmálma í mosa. Það verkefni gerir þó aðeins ráð fyrir sýnatöku á fimm ára fresti. Eftir Eyjafjallajökulsgosið 2010 mældust skemmdir á mosa á allstóru svæði á sunnanverðu landinu. Margþætt áhrif á trjágróður bæði til góðs og ills Edda Sigurdís Oddsdóttir, Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá, flutti einnig erindi á málþinginu um áhrif eldgoss á skógrækt. Kom fram að hægt er að bera saman skógvaxtarmælingar fyrir og eftir gos til að meta áhrifin. Þess má geta að aukinn styrkur sumra mengandi lofttegunda eins og koltvísýrings hefur vaxtahvetjandi áhrif á tré. Hins vegar dregur brennisteinsvetni úr trjávexti svo samspilið getur verið flókið. /HKr. Mynd / Veðurstofa Íslands. Myndir / HKr. Úrvalsmjólk á Hvannabrekku fjórða árið í röð Fjórða árið í röð voru þau Steinþór Björnsson og Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir á Hvannabrekku í Berufirði, verðlaunuð fyrir úrvalsmjólk. Verðlaun fyrir úrvalsmjólk fá þau kúabú sem leggja inn mjólk í 1. flokki A í öllum mánuðum ársins. Hvannabrekka var í ár, líkt og í fyrra, eina kúabúið á Austurlandi sem hlaut þessa viðurkenningu að því er fram kemur á vef Austurfréttar. Það er Auðhumla, samvinnufélag mjólkurframleiðenda, sem veitir verðlaunin. Auðhumla er í eigu um 700 mjólkurframleiðenda um land allt. Hún hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf. Með bestu kúabúum á landinu Það eru gerðar mjög strangar gæðakröfur til allrar mjólkur sem mjólkurframleiðendur leggja inn. Það eru tekin sýni úr allri mjólk sem sótt er. Það hlýtur því að teljast góður árangur og ekki sjálfgefið að hljóta þessi verðlaun fjögur ár í röð, og er óhætt að segja að kúabúið á Hvannabrekku sé með þeim bestu á landinu. /MÞÞ

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.