Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Uppgjör á skýrslum fjárræktar- félaganna fyrir árið 2014 lauk fyrir nokkru síðan. Árið 2014 var metár og reiknaðar afurðir eftir hverja fullorðna kind aldrei verið meiri í sögu skýrsluhaldsins. Afurðir árið 2014 voru 27,8 kíló eftir hverja kind (27,0 kg árið 2013). Afurðirnar voru hins vegar mjög breytilegar milli landshluta en mörg met féllu á norðausturhorni landsins og ekki þekkt dæmi um slíkar afurðir áður í mörgum sveitum þar en á vesturhluta landsins voru afurðir víða undir meðaltali síðustu ára. Tíðarfarið var sauðfé afskaplega hagstætt en á eftir góðu vori var sumarið bæði þurrt og hlýtt ásamt því að snjór var víða mikill til fjalla og nýgræðingur mun lengur í boði en undangengin ár. Á vesturhluta landsins var mikið um rigningar og lítill snjór til fjalla svo gróður í úthaga féll mjög snemma. Það sést best á afurðatölum í Borgarfirði og Snæfellsnesi samanborið við afurðir á þeim svæðum síðustu ár. Þátttaka í skýrsluhaldi jókst frá fyrra ári en alls skiluðu 1795 aðilar skýrslum um 346.031 fullorðnar ær (345.146). Alls eru því skráðar í skýrsluhaldið 91% af ásettum ám í landinu m.v. upplýsingar úr forðagæsluskýrslum. Veturgamlar ær í skýrsluhaldinu voru 77.386 (75.441) og veturgamlar+fullorðnar ær á skýrslum því 422.532 (420.587) sem er lítilsháttar aukning milli ára. Á 1. mynd má sjá hvernig þátttaka í skýrsluhaldinu dreifist á milli búa eftir fjölda skýrslufærðra kinda á hverju búi. Rúmlega helmingur þátttakenda í skýrsluhaldi hafa 200 kindur eða færri og rúmlega helmingur kinda í skýrsluhaldinu eru á búum þar sem fjöldi kinda er á bilinu 200 til 500 ær. Afurðir árið 2014 Frjósemi var svipuð á landinu öllu árin 2014 og 2013 eða 1,82 fædd lömb á hverja kind. Hlutfall fleirlembna á landinu öllu var 6,5% og hefur það hlutfall ekki verið hærra í nokkur ár. Frjósemi er mest í Vestur-Húnavatnssýslu en þar fæðast 1,89 lömb eftir hverja kind en þar eru tæplega 10% ánna fleirlembdar. Í fjárræktarfélaginu Geirmundi á Skarðsströnd í Dalasýslu er mesta frjósemi að finna eða 1,95 lömb fædd og næst kemur fjárræktarfélag Vatnsnesinga með 1,94 lömb fædd. Afurðir eftir fullorðnar ær voru 27,8 kíló eftir hverja kind árið 2014 (27,0 kg) og eru umtalsvert meiri en árið 2013 sem og meðalafurðir síðustu fimm ára sem reiknast 27,1 kíló. Á 2. mynd má sjá afurðir síðust tveggja ára (2014 rauð súla, 2013 græn súla) sýndar eftir héruðum ásamt meðaltali áranna 2010-2014 (blá súla) í viðkomandi héraði. Líkt og sjá má á myndinni eru afurðir á norðausturhorni landsins miklar. Mestu afurðir í einu héraði árið 2014 voru í Suður-Þingeyjarsýslu en þær reiknast 31,1 kíló sem er 2,7 kílóum meira en meðaltal áranna 2010-2014. Önnur svæði þar sem afurðir eru meiri en einu kílói meiri en meðaltal síðustu fimm ára eru, Norður-Þingeyjarsýsla, Norður- Múlasýsla, Suður-Múlasýsla og Skagafjörður. Víðast hvar eru þær meiri en í sjö héruðum eru þær minni eða standa í stað. Mesta breytingin er þó í Borgarfjarðarsýslu og á Snæfellsnesi. Þar eru afurðir tæpu kílói minni árið 2014 en meðaltal síðustu fimm ára á undan. Afurðir eftir veturgömlu ærnar hafa líka aukist umtalsvert á síðustu árum. Árið 2014 voru þær 11,3 kíló (10,8 kg) og meðalafurðir síðustu fimm ára hjá veturgömlum ám eru 10,7 kíló. Enn eru þó mikil tækifæri fólgin í bættum afurðum hjá veturgömlum ám þar sem um fjórðungur þeirra er ýmist geldur eða ekki er hleypt til þeirra. Afurðahæstu búin Afurðahæsta bú landsins árið 2014 er bú Valdimars Eiríkssonar í Vallanesi í Skagafirði með 40,1 kíló eftir hverja kind. Sífellt fleiri bú hafa verið að bætast í hóp þeirra búa sem ná góðum árangi á síðustu árum. Það bendir til þess að bændur séu í auknu mæli að setja upp framleiðslukerfi sem skilar þeim hámarks afurðum miðað við þær ytri aðstæður sem þeir búa við. Árið 2013 var í fyrsta skipti birtur listi yfir „úrvalsbú“ í sauðfjárrækt, þau eiga það sameiginlegt að ná góðum árangri fyrir marga þætti og eru mörkin sett með tilliti til ræktunarmarkmiða sauðfjár. Árið 2014 náðu 104 bú þessum árangri á móti 70 árið 2013. Hjá RML er boðið upp á ráðgjafarpakkann „Auknar afurðir“ þar sem bændur eru heimsóttir og markmið sett um hvernig ná megi bættum árangri og þar með auka tekjur á þeirra búi. Gæðamatið Í skýrsluhaldinu eru upplýsingar um rúmlega 500.000 sláturlömb haustið 2014. Meðalfallþungi þeirra var 16,4 kíló árið 2014 (16,0 - 2013) og meðaltal síðustu fimm ára er 16,1 kíló, meðaltal fyrir holdfyllingu 8,72 árið 2014 (8,56 - 2013), fimm ára meðaltal 8,62 og meðaltal fyrir fitumat 6,53 árið 2014 (6,41 - 2013), fimm ára meðaltal 6,50. Líkt og sjá má af tölunum hefur heldur hægt á aukningu í holdfyllingar- og fitumati síðustu ár en minnt á að aukningin hefur verið gríðarlega mikil á síðustu 15 árum. Oft er þetta skoðað sem hlutfallstala holdfyllingar og fitu, sú tala var 1,34 haustið 2014. Hagstæðasta hlutfallið má finna í Vestur Húnavatnssýslu (1,41) og í Mýrasýslu og á Snæfellnesi (1,40). Eftir fjárræktarfélögum er hæsta gerðarmatið árið 2014 í félögum með fleiri en 1000 sláturlömb í fjárræktarfélagi Reykjahrepps, Suður-Þingeyjarsýslu eða 10,0. Erfiðara er að bera saman árangur í fitumati vegna þess sambands sem er á milli fallþunga og fitumats. Í sambærilegri grein fyrir nokkrum árum var þessi samanburður gerður milli fallþunga og fitumats, það hlutfall er 2,51 árið 2014 og hefur sú tala hækkað á undanförnum árum. Eftir sýslum er þetta hlutfall hagstæðast í Norður- Múlasýslu eða 2,64. Af búum sem höfðu holdfyllingarmat yfir 9,5 árið 2014 er hlutfallið hagstæðast á búi Eiríks Jónssonar í Gýgjarhólskoti eða 2,87. Tekjumunur upp á þrjár milljónir á 400 kinda búi Á síðasta ári voru niðurstöður skýrsluhaldsgagnanna í fyrsta skipti skoðaðar m.t.t. króna eftir hverja kind. Þar er til grundvallar miðað við verðskrár sláturleyfishafa í viku 40 og flokkun lamba í gæðaflokka í skýrsluhaldinu. Niðurstöður þessara útreikninga sýna skýrt að mikil tækifæri eru til að bæta afkomu sauðfjárbúa. Hver ær í skýrsluhaldinu skilar því 19.200 krónum að jafnaði. Mikill breytileiki er til staðar, þegar búunum er skipt upp í fimm ámóta stóra hópa eftir árangri er hver ær á búum í efsta flokk að skila 23.500 krónum meðan að meðalær á þeim búum sem sýna lakasta niðurstöðu skilar 14.700 krónum. Þarna munar 8.800 krónum á kind. Meðalstórt sauðfjárbú með 400 kindur í efsta flokki hefur því þremur og hálfri milljón meira í tekjur en bú af sömu stærð í neðsta flokki. Að lokum Listar með öllu helstu niðurstöðum skýrsluhaldsins árið 2014 er hægt að finna á heimasíðu RML. Þar má einnig finna niðurstöður skýrsluhaldsins undanfarin ár. Árangurinn árið 2014 sýnir enn og aftur ræktunarstarfið í sauðfjárrækt er að skila sér í auknum framförum. Grunnforsendan allrar upplýsingaöflunar er þó vel fært skýrsluhald. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins 24,0 25,0 26,0 27,0 28,0 29,0 30,0 31,0 32,0 Kjós. Borg. Mýr. Snæf. Dal. Barð. Ísafj. Strand. V-Hún. A-Hún. Skag. Eyjafj. S-Þing. N-Þing. N-Múl. S-Múl. A-Skaft. V-Skaft. Rang. Árn. Reiknaðar afuðir (kg) eftir fullorðar ær eftir sýslum síðustu ár Árið 2014 Árið 2013 Meðaltal 2010-2014 Eyjólfur Ingvi Bjarnason Ráðunautur í sauðfjárrækt eyjolfur@rml.isHelstu niðurstöðutölur sauðfjárskýrsluhaldsins árið 2014: Í mörgum sveitum norðaustanlands féllu met árið 2014 Til sölu viðhaldsfrí útiborð, (einnig hægt að nota innandyra), með 12 mm. hertri svartri glerplötu og ryð- fríum meðhöndluðum fótum. Má vera úti allt árið um kring. Ýmsar stærðir og gerðir. Hagstætt verð. Uppl. hjá Smiðsverk ehf. í síma 663-4455. Til sölu viðhaldsfrí útiborð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.