Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Tjón af völdum eldsvoða sem varð í garðyrkjustöðinni Brúnalaug í Eyjafjarðarsveit í liðinni viku hleypur á tugum milljóna. Hreinsunarstarf hefur staðið yfir síðustu daga. Hjónin Anna Sigríður Pétursdóttir og Gísli Hallgrímsson hafa rekið garðyrkjustöðina frá árinu 1986 eða í tæp 30 ár. Þau segja áfallið vissulega gríðarlegt, mikið starf sé fram undan við hreinsun, tekjutap sé fyrirsjáanlegt, en þau ætli á næstu mánuðum að einbeita sér að uppbyggingu stöðvarinnar. Eldsupptök eru enn ókunn, en Rannsóknarlögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins. Grunur beinist að því að bilun hafi orðið í rafmagnsbúnaði. Sá eldsúlurnar standa upp í loft Anna vaknaði aðfaranótt föstudagsins 20. mars, gekk að vesturglugga íbúðarhúss síns og sá þá eldsúlur stíga til himins upp frá gróðurhúsunum og greinilegt að þau stóðu í ljósum logum. Slökkviliðið á Akureyri var þegar kallað á staðinn, en tæplega 20 kílómetra leið er þaðan og að Brúnalaug. Aðstoð fékkst frá Slökkviliði Akureyrarflugvallar og eins tóku félagar í björgunarsveitinni Dalbjörgu þátt í verðmætabjörgun á vettvangi að slökkvistarfi loknu. Um er að ræða tvö samliggjandi gróðurhús, hið stærra er tæplega 600 fermetrar að stærð en það minna um 300 fermetrar. Á milli þeirra var bygging þar sem allur stjórnbúnaður var hýstur m.a. sá sem stjórnar vökvunarbúnaði, búnaði vegna kolsýru sem notuð er við ræktunina, stjórnbúnaður fyrir ljós, vigtar, pökkunarvél og heilmikið af umbúðum. Allt varð þetta eldinum að bráð. Sem og einnig varahlutir, tæki og tól af ýmsu tagi sem nýtt voru vegna starfseminnar. „Við höfðum undanfarin ár komið okkur upp góðum og öflugum búnaði í garðykjunni en það má segja að við höfum hrapað allt aftur til ársins 2006 hvað varðar tækjabúnað vegna ræktunarinnar,“ segir Anna Sigríður. Gleðidagur breyttist í martröð Áhersla hefur verið lögð á paprikuræktun, um 1700 plöntur voru í stærra húsinu og til stóð að hefja uppskerustörf á föstudag í liðinni viku. „Við ætluðum að fylgjast með sólmyrkvanum og hefjast síðan handa og koma fyrstu sendingunni okkar á markað þann daginn. Þetta átti svo sannarlega að vera gleðidagur, en hlutirnir fóru heldur betur á hvolf og dagurinn varð líkastur martröð. Fyrir utan eignatjón og fyrirsjáanlegt tekjutap er þetta líka mikið tilfinningatjón, það er afskaplega erfitt að horfa upp á þessa eyðileggingu og allt það starf sem hér hafði verið unnið fara í súginn,“ segir Anna Sigríður. Gerðu ráð fyrir að senda 6 tonn á markað á næstu mánuðum Áætlanir gerðu ráð fyrir að uppskera næmi um 6 tonnum næstu þrjá mánuði, þ.e. á tímabilinu frá lokum mars og fram í júní. „En það er alveg ljóst að uppskera þessa mánuði verður lítil sem engin,“ segir Anna Sigríður. Þegar er búið að sá fyrir nýrri uppskeru og hennar má vænta á markað í júlí. Ársframleiðsla á Brúnalaug hefur á liðnum árum numið um 23 tonnum. Tjón hefur ekki að fullu verið metið, en Anna Sigríður segir að það nemi tugum milljóna, slík sé eyðileggingin. Stöðin er tryggð, en á þessari stundu er ekki ljóst að hve miklu leyti tjónið fæst bætt. „Það eru alls konar óvissuþættir vomandi yfir okkur og við vitum ekki strax hvernig þetta fer allt saman. Það þýðir hins vegar ekki að gefast upp og við munum einbeita okkur að hreinsunarstarfi og uppbyggingu næstu mánuði,“ segir hún. Mikil samkennd Anna Sigríður segir ómetanlegt að finna þann stuðning sem sveitungar, vinir og vandamenn hafi sýnt frá því eldurinn kom upp. Nágrannar hafi margir hverjir komið og aðstoðað við hreinsunarstarfið og kvenfélagskonur komu færandi hendi með mat og kaffi handa hjálparmönnum daginn eftir brunann þegar ekki var rafmagn heima við. Síðan hafi menn og konur, nágrannar og vinir komið færandi hendi. „Það er dásamlegt að finna fyrir þessari samkennd meðal nágranna sinna og sveitunga, það hleypir í mann auknum krafti á erfiðum tímum og fyrir það viljum við þakka kærlega.“ /MÞÞ Fréttir www.VBL.is REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 GOTT ÚRVAL - HAGSTÆTT VERÐ BEISLISHLUTIR - REKSTRARVÖRUR Sjá nánar í vefverslun okkar á VBL.is undir beislishlutir Eldsvoði í Garðyrkjustöðinni Brúnalaug í Eyjafjarðarsveit: Mikið tjón en uppbygging hafin á ný og uppbyggingu næstu mánuði,“ segir Anna Sigríður Pétursdóttir í Brúnalaug, sem hér skoðar paprikuplöntu sem virðist ætla að koma til eftir eldsvoðann. Til stóð að senda fyrstu uppskeru frá garðyrkjustöðinni á Brúnalaug á markað síðastliðinn föstudag. Eldur kom upp nóttina á undan og gerði þær áætlanir að engu. Hér er unnið að björgunarstörfum. Myndir / MÞÞ Tvö samliggjandi gróðurhús eru að Brúnalaug og á milli þeirra hús ræktunarstarfsins þarf voru í millibyggingunni og eru þau ónýt. Anna Sigríður við pökkunarvélina sem eyðilagðist, en í haugnum er líka búnaður af ýmsu tagi sem er gerónýtur eftir eldsvoðann. mikið tjón af völdum elds í liðinni viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.