Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Fóður er ekki aðeins það sem dýraeigendur kaupa í pokum með mynd af dýrum sínum utan á. Allt hráefni sem nýtt er til fóðurgerðar er fóður og um það gilda tilheyrandi lög og reglur. Í síðasta tölublaði Bændablaðsins var farið yfir þær reglur sem gilda um merkingar fóðurs. Hér verður gerð grein fyrir nokkrum hugtökum er varða fóður og notkun þess. Fóður er efni eða vörur, hvort sem þau eru fullunnin, unnin að hluta eða óunnin, sem ætluð eru til fóðrunar dýra. Til fóðurs teljast einnig öll efni sem eru blönduð í fóður t.d. aukefni. Með fóðrun er átt við það að koma fóðri í meltingarveg dýrs um munn þess í þeim tilgangi að uppfylla næringarþarfir dýrsins og/eða viðhalda framleiðni dýra sem eru við eðlilega heilsu. Dýrin geta bæði tekið fóður sjálfviljug eða með inngjöf. Lyf eru ekki fóður og eru það einu efnin sem fara í gegn um munn og í meltingarveg dýra sem ekki eru fóður. Fóðurfyrirtæki er fyrirtæki sem starfar við framleiðslu, vinnslu, geymslu, flutning eða dreifingu fóðurs. Það á einnig við um framleiðslu, vinnslu eða geymslu framleiðanda á fóðri handa dýrum á eigin bújörð, hvert sem rekstrarform fyrirtækisins er. Stjórnandi fóðurfyrirtækis er einstaklingur eða lögaðili sem er ábyrgur fyrir því að farið sé að kröfum samkvæmt lögum um matvæli í fóðurfyrirtækjum undir þeirra stjórn. Fóðurfyrirtæki þurfa því að vera með ákveðinn forsvarsmann sem er ábyrgur fyrir framleiðslu fyrirtækisins. Fóðurefni geta verið úr jurta- eða dýraríkinu og eru ætluð til að uppfylla næringarþarfir dýra, eins og þau koma fyrir í náttúrunni, fersk eða rotvarin. Þau geta verið afurðir úr iðnaðarvinnslu og þau geta verið lífræn eða ólífræn efni. Fóðurefni geta verið með eða án fóðuraukefna. Þau eru ætluð til fóðrunar dýra, annaðhvort óbreytt eða eftir vinnslu, eða notuð til framleiðslu á fóðurblöndum. Fóðurblanda er blanda tveggja eða fleiri fóðurefna, með eða án fóðuraukefna og eru gefnar dýrum sem heilfóður eða fóðurbætir. Heilfóður er fóðurblanda sem vegna samsetningar sinnar telst fullnægjandi dagskammtur fyrir viðkomandi dýrategund. Í heilfóðri verða næringarefnin því að vera í réttum hlutföllum fyrir þau dýr sem fóðrið er ætlað. Í þessu fóðri eru ákveðin næringarefni sem dýr þurfa í litlu magni t.d. snefilefni og vítamín, en þau geta valdið eitrunum séu þau í of miklu magni. Dýr sem alin eru á heilfóðri þurfa yfirleitt ekki annað fóður. Heilfóður er t.d. gefið alifuglum, svínum, eldisfiski og gæludýrum. Fóðurbætir er fóðurblanda sem inniheldur tiltekin efni í ríkum mæli en sem vegna samsetningar sinnar telst því aðeins fullnægjandi dagskammtur að hún sé notuð með öðru fóðri. Fóðurbætir getur því verið margskonar t.d. telst steinefnafóður vera fóðurbætir. Einnig forðastautar sem skotið er í meltingarveg dýra. Fóðurbætir má innihalda allt að hundraðfaldan styrk ákveðinna efna t.d. snefilefna og vítamína miðað við það sem leyft er í heilfóðri. Fóðurbætir er því gefinn með öðru fóðri til að bæta upp og tryggja að viðkomandi dýr fá fullnægjandi skammt af ákveðnum næringarefnum. Staðgöngumjólk er fóðurblanda sem gefin er í duftformi eða eftir þynningu í ákveðnu magni af vökva til að fóðra ung dýr til viðbótar við eða í staðinn fyrir móðurmjólk eftir brodd t.d. kálfa, lömb eða kiðlinga. Staðgöngumjólk getur því bæði flokkast sem heilfóður eða fóðurbætir allt eftir því hvernig hún er notuð, ein sér eða til viðbótar öðru fóðri. Sérstakar greinar verða birtar síðar um fóðurflokkana sérfóður, aukefni og forblöndur, enda gilda um þá ákveðnar reglur, sem þurfa nánari kynningu. Valgeir Bjarnason, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun ...frá heilbrigði til hollustu Hvað er fóður? verið saman niðurfelling áburðar með fræinu við að bera áburðinn á akurinn með hefðbundnum dreifara. Niðurstaðan hefur öll verið á einn veg, verulegur uppskeruauki er við að fella niður fræ og áburð í sömu rás. Reikna má með að ávinningurinn sé á bilinu 15-25% aukning uppskeru. Því miður eru margar sáðvélar í notkun hér á landi sem einungis eru með eitt sáðhólf og gefa því ekki kost á því að fella áburð niður með fræinu. Það er ljóst að bændur sem sá í byggakra sína með þannig vélum eru að draga úr mögulegri uppskeru. Einnig hafa verið gerðar tilraunir með sáðdýpt. Besta raun gaf að sá eins grunnt og mögulegt er en samt að hylja fræið eða 1-2 cm. Undantekning frá þessu er þegar verið er að sá í sand en þá gaf besta raun að sá í 4,5cm dýpt. Lokaorð Ef einungis er horft á þann sparnað sem hlýst af léttari jarðvinnslu eða sleppa jarðvinnslunni alveg er ljóst að sá sparnaður hverfur strax í minni uppskeru að því gefnu að sáðtíminn sé sá sami. Bændur og verktakar verða að vega og meta hverju sinni hversu mikið má græða á plægingu og móti plógherfingu eða núll jarðvinnslu ef það er vegið saman við seinkaðan sáðtíma. Seinkun sáðtíma um 60 daggráður (u.þ.b. 10 daga) getur dregur úr uppskeru um 30% sem er sami munur og á hefðbundinni plægingu og plógherfingu í móajarðvegi. Hefðbundin plæging grefur um 95% af öllu nýju illgresisfræi en færir um leið lítillega af eldra fræi upp á yfirboðið. Plógherfing eða herfing með diskaherfi grefur lítillega ný illgresisfræ og færir jafnframt eitthvað af eldra fræi upp á yfirborðið þannig að illgresissmit jarðvegsins verður alltaf meira en við góða plægingu. Vilji bændur nota herfi við jarðvinnslu en komast hjá því að þurfa að úða með illgresiseyði er best að nota saman herfingu og plægingu og plægja t.d. annað hvert ár. Þannig má plægja upp tún og setja í það korn og nota svo herfingu annað árið og svo koll af kolli. Trúlega má að einhverju leyti leiðrétta uppskerumun hefðbundinnar plægingar og léttari jarðvinnslu með því að úða illgresiseyði og sveppalyfi á akrana en það þarf að skoða betur. Ef á annað borð er verið að úða illgresislyfi er rétt að nota einnig sveppalyf til að halda blaðsjúkdómum niðri en þessum efnum má blanda saman og úða einungis einu sinni. Við beina sáningu (0-jarðvinnslu) er allt illgresisfræ við yfirborð með bestu hugsanlegu aðstæður til spírunar. Þeir sem kjósa að nota beina sáningu þurfa að sætta sig við árlega úðun fyrir illgresi og hugsanlega einnig blaðsjúkdómum en það þarf að kanna betur við hérlendar aðstæður. Höfundur: Þórarinn Leifsson bóndi í Keldudal og MSc nemandi við Lbhí Heimildir: HGCA Barley disease management guide. http://www.hgca.com/ media/176243/g64-barley-disease- management-guide.pdf Jarðræktarrannsóknir 1993. Fjölrit Rala nr. 175. Bls. 54-66. Jarðræktarrannsóknir 1995. Fjölrit Rala nr. 185. Bls. 54-63. Jarðræktarrannsóknir 1996. Fjölrit Rala nr. 189. Bls. 48-59. Jarðræktarrannsóknir 1997. Fjölrit Rala nr. 193. Bls. 51-58. Jarðræktarrannsóknir 1998. Fjölrit Rala nr. 198. Bls. 61-68. Jarðræktarrannsóknir 1999. Fjölrit Rala nr. 205. Bls. 51-60. Jarðræktarrannsóknir 2000. Fjölrit Rala nr. 208. Bls.41-58. Jarðræktarrannsóknir 2001. Fjölrit Rala nr. 210. Bls. 33-47. Jarðræktarrannsóknir 2002. Fjölrit Rala nr. 213. Bls.29-38. Jarðræktarrannsóknir 2003. Fjölrit Rala nr. 215. Bls. 25-32. Jarðræktarrannsóknir 2004. Rit LBHÍ nr. 6. Bls. 33-43. Jarðræktarrannsóknir 2005. Rit Lbhí nr.11. Bls.23-33. Jarðræktarrannsóknir 2007. Rit Lbhí nr.18. Bls.23-29. Jónatan Hermannsson og Halldór Sverrisson, 2003. Augnblettur í byggi á Íslandi. Ráðunautafundur 2003. Bls. 180-182. Jónatan Hermannsson, 2004. Sjúkdómar í byggi. Fræðaþing landbúnaðarins 2004. Bls 178-184. Jónatan Hermannsson, 2006. Bygg í sáðskiptum. Fræðaþing landbúnaðarins 2006. Bls. 372-374. Managing weeds in arable rotations – a guide. http://www.hgca.com/ media/433546/g61-managing-weeds- in-arable-rotations-a-guide.pdf Margrét Guðrún Ásbjarnardóttir og Jónatan Hermannsson, 2004. Illgresi og bygg. Fræðaþing landbúnaðarins 2004. Bls 334-336 og nokkrir Skagfirskir jarðvinnslu verktakar – munnlegar heimildir 2015. Uppskera mæld. Jónatan Hermannsson, Þórdís Anna Kristjánsdóttir og Þórarinn Leifsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.