Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Í 20 ára afmælistímariti Bændablaðsins sem kom út sama dag og Búnaðarþing 2015 var sett í Hörpu var viðtal við Guðmund Hallgrímsson. Þetta viðtal ætti að vera skyldulesning. Í viðtalinu er farið víða og rætt um heilsu, slys og forvarnir í víðu samhengi. Guðmundur hefur verið að heimsækja bændur og veita faglega ráðgjöf til úrbóta þar sem þess er þörf. Með þessum heimsóknum er ekkert verið að finna upp hjólið því fyrir u.þ.b. 20–25 árum heimsótti Eiríkur Helgason, fyrrverandi starfsmaður Bændablaðsins, bændur og veitti ráðgjöf til úrbóta í öryggismálum. Árangur af heimsóknum Eiríks var mjög góður og fækkaði slysum töluvert í kjölfarið. Haustið 2013 var gerð óformleg könnun af Bændasamtökunum á 30 býlum þar sem búinn var til áhættumatslisti. Farið var í tvær heimsóknir með stuttu millibili á þessi 30 býli, alls voru á þessum bæjum um 70 störf. Aðstoðað var við að fara yfir áhættumatið, 10 mánuðum seinna var síðan hringt í viðkomandi býli og skráð niður slys. Aðeins var í tveim tilfellum slys af þessum 70 starfsmönnum sem unnu á þessum býlum sem tóku þátt í þessari óformlegu könnun. Fjármunir sem settir eru í forvarnir margfalda sig. Miðað við að aðeins tveir af 70 hafi meitt sig er nálægt 3% slysatíðni. Könnun sem gerð var 2005 og birt var í Læknablaðinu var slysatíðni þeirra sem svöruðu yfir 18%. Séu skoðaðar tölur frá bændasamfélögum erlendis er ekki óalgengt að slysatíðni sé á bilinu 7 til 11% sem slasast árlega við landbúnaðarstörf. Á Írlandi hefur markvisst verið unnið að forvörnum til að fækka slysum við landbúnaðarstörf frá því fyrir 1990 undir leiðsögn frá írskum heilbrigðisyfirvöldum. Ein af aðaláherslum í þessu írska forvarnarferli hefur verið heimsóknir til bænda sem skilað hefur góðum árangri. Líkt og á Íslandi varð fjárhagskreppa á Írlandi og eftir þá kreppu var dregið úr heimsóknum og minna fjármagn sett í forvarnir. Við samdráttinn jukust slys til muna og vill forstjóri H.S.A. ( Health and Safety Authority www.hsa.ie) kenna samdrætti að stærstum þætti um fjölgun slysa í írskum landbúnaði. Glöggt er gests augað Sumum finnst eflaust engin þörf á að fá heimsókn þar sem þeir telja allt í lagi hjá sér, sem eflaust er víða, en að fenginni reynslu hefur mér alltaf fundist gott að fá ráðleggingar og ábendingar um það sem betur mætti fara hjá mér persónulega. Sem dæmi, þegar ég les yfir þessa litlu pistla mína, sé ég ekki vitleysurnar í samsetningu orða og prentvillur, en aðrir eru fljótir að sjá mín mistök. Sjálfur hef ég trú á að þessir litlu forvarnarpistlar skili árangri og ég veit að heimsóknir Guðmundar eru að skila árangri rétt eins og þegar Eiríkur Helgason heimsótti bændur á sínum tíma með góðum árangri. Hugurinn ber þig hálfa leið liklegur@internet.is ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI Hjörtur L. Jónsson KROSSGÁTA Bændablaðsins − lausnina er að finna á næstöftustu síðu ORG VERÐUR VEITA EFTIRFÖR PASSA BLEYTU- KRAP LITAST LYKT STYGGLEGA SÓT FUGL ÁFORM GYLTU DVELJA LAND SVELG MJÓLKUR- VARA SKERGÁLA DÝRA- HLJÓÐ SAMTÖK RÍKI Í ARABÍU BAUL Í RÖÐ TELJUM GRÍMU- KLÆÐA KLIFUN SLANGA ERGJA AFTURENDI AFSPURN ÞÁTT- TAKANDI HVOFTUR KLUKKAKOMUMST STÆKKA ÖRÐU RÉTTUR FRÚ BRODDUR VAFI UMGERÐ LITUR PÁPI NÁTTA OP FRÁLAG KVÍSL MÍGA SÝKJAÍSKUR LETUR- TÁKN FLAGG SPENDÝR TVEIR EINS DRYKKUR FARMRÚM FÆRNI KLAKA ANGAN AF SNÍKILL VIÐLAG TAUMUR EKKI TVEIR EINS TÓNLISTAR- STÍLL ÞJÁNINGA JAFNINGUR KLEFI AFGANGUR ELSKA KK NAFN 10 Eiríkur Helgason mátar sig á gamalt mótorhjól. Sennilega hefur hann haft eitthvað við öryggisbúnað hjólsins að athuga. Mynd / HKr. Auðlind-Náttúrusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2015 Auglýst er eftir umsóknum um styrki til endurheimtar votlendis. Hámarksfjárhæð styrkja fyrir hvert verkefni er kr. 500.000. Upphæð styrks getur numið allt að 50% hluta kostnaðar. Rannsóknarverkefni eru almennt ekki styrkt. Umsóknareyðublöð eru á www.audlind.org. Upplýsingar má fá hjá raga@nett.is. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl 2015. Umsóknir skal senda á: Auðlind Náttúrusjóð, pósthólf 1358, 121 Reykjavík Sauðamjólk 2015! Landssamtök sauðfjárbænda auglýsa hér með að nýju verkefnið "Sauðamjólk!" í samvinnu við RML og Matís. Tilgangur þess er að hvetja til aukinnar sauða mjólk- urframleiðslu og stuðla að auknu framboði afurða úr henni.. Með þessari auglýsingu er leitað eftir áhugasömum bændum til samstarfs. Gert er ráð fyrir að þeir sem valdir verða til þáttöku fái aðgang að ráðgjöf frá samstarfsaðilum LS um framleiðsluhætti og/eða vöruþróun. Ef þú ert sauðfjárbóndi sem hefur áhuga á að taka þátt í þessu þá ertu beðinn að senda umsókn þess efnis til Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík, ekki síðar en 20. apríl næstkomandi. Í umsókn þarf að koma fram hvað þú áætlar að geta mjólkað margar ær, hvenær þú áætlar að mjaltir geti hafist og hvort þú hefur áhuga á að leggja mjólkina inn eða vinna úr henni sjálf/ur. Einnig þarf að koma fram hvort að þú hefur nú þegar aðstöðu til mjalta eða hvort að fjárfestinga er þörf til að koma henni upp. Hvert er áburðargildið í þínum búfjáráburði? Óþarfi er að fjölyrða við bændur um mikilvægi þess að nýta búfjáráburðinn sem best en lykillinn að því er að þekkja vel efnainnihald hans. Í áburðaráætlanagerð styðjumst við yfirleitt við meðaltalstölur byggðar á rannsóknum, en staðreyndin er sú að mikill munur getur verið á efnainnihaldi búfjáráburðar á milli búa og getur meðaltalið því gefið villandi niðurstöðu. Þá geta niðurstöðurnar gefið til kynna að ástæða sé til að kanna betur næringarefnabúskap jarðarinnar. Ráðgjafarmiðstöð land- búnaðarins hefur nú samið um efnagreiningar á búfjáráburði fyrir bændur. RML mun koma sýnunum í efnagreiningu, túlka niðurstöðurnar ásamt því að skrá þær í Jörð.is. Þurr búfjáráburður er mjög erfiður til sýnatöku vegna misleitni og þess vegna mælum við frekar með að sýnatakan verði tekin úr upphrærðum skít. Sýnatakan sjálf verður í höndum bænda, enda mikilvægt að sýnatakan eigi sér stað um leið og mykjunni er dælt á völl. Eðli málsins samkvæmt verða niðurstöður greininganna ekki klárar fyrr en eftir að búið er að dreifa mykjunni og nýtist því ekki nema að takmörkuðu leyti í vor. Það má þó endurmeta notkun tilbúins áburðar í ljósi niðurstaðnanna. Það verður ekki fyrr en við áburðaráætlun næsta árs og ára, sem niðurstöðurnar nýtast að fullu en líklegt er að ef samsetning bústofns og afurðir breytast lítið, þá breytist efnainnihald búfjáráburðarins ekki heldur mikið. Mikilvægt er að sýnið sé sem bestur þverskurður af mykjunni. Þekkt er að þrátt fyrir að búið sé að hræra vel í mykjunni, er tilhneigingin sú að seinasta mykjan verði þéttari en sú sem fyrst kemur. Þess vegna mælum við með að sýnatakan verði með eftirfarandi hætti: Taka skal sýni 5 sinnum meðan á útdælingu stendur, 5 lítra hverju sinni. Þó ekki úr því allra fyrsta því brunnur getur verið fullur af vatni. Taka þarf sýnin með sem jöfnustu bili og seinasta sýnið tekið úr seinustu tankfylli. Þessum sýnum er síðan hellt saman í kerald og þegar allt er komið er hrært vel og endanlegt sýni tekið í litla fötu eða brúsa, lokað vel og sýnið merkt. Passlegt er að sýnið sé 2 lítrar. Verð fyrir þessa þjónustu eru krónur 18.000 + vsk fyrir hvert sýni. Ráðunautar RML munu taka við sýnunum á öllum starfsstöðvum en einnig má senda sýnið beint á Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes. Sýnin þurfa að vera komin til ráðunauta RML eigi síðar en 20. apríl. /Borgar Páll Bragason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.