Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 18

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 Gunnbjarnarholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi: Framkvæmdir við 240 kúa fjósbyggingu að hefjast – Fjósið allt mun vera um 4.500 fermetrar að grunnfleti „Þetta er í raun viðbygging við það fjós sem fyrir er – þó hún verði auðvitað talsvert stærri en gamla fjósið. Ég sótti um að fá að reisa fjósið í fyrra, en þurfti að fara með framkvæmdina í deiliskipulag og því frestaðist hún um ár, má segja,“ segir Arnar Bjarni Eiríksson, bóndi og húsasmíðameistari í Gunnbjarnarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þegar blaðamaður náði tali af honum var hann á leið í fimm daga ferð til Hollands – með íslenskum kúabændum – á námskeið um fjósbyggingar, en að sögn Arnars má margt læra af Hollendingum um fjósbyggingar, en Arnar á og rekur Landstólpa sem sérhæfir sig meðal annars í fjósbyggingum fyrir bændur. „Það var bara svo mikið að gera hjá mér síðasta sumar að ég komst ekki til þess að byrja þá og þar fyrir utan var hönnunin kannski ekki alveg tilbúin. Ég reikna hins vegar með að byrja að moka fyrir fjósinu þegar ég kem heim úr ferðinni til Hollands. Þessi framkvæmd á sér nokkuð langan aðdraganda – en þar sem maður vill vera sjálfur að mestu með puttana í þessu þá hefur þetta tekið þennan tíma. Það kannski tafði ferlið líka aðeins að ég fór í heilmikla könnun á því hvort það væri hagkvæmt að nýta metangasið frá fjósinu. Það kemur svo í ljós að það myndi ekki vera afgerandi ávinningur af því þannig að ég læt það liggja milli hluta í bili. Hönnunin á fjósinu er hins vegar þannig að ég held þessum möguleika opnum, ef það lítur þannig út að þetta verður vænlegt í framtíðinni. Okkar niðurstaða var sú að stærðin á fjósunum þarf að vera svo gríðarleg til að eitthvað væri upp úr því að hafa.“ Mikil áhersla á rýmisþarfir „Ég legg gríðarlega mikla áherslu á allar rýmisþarfir í hönnuninni á byggingunni. Það verður því mjög rúmt á öllum gripum. Heildarstærð á grunnfleti verður um 4.500 fermetrar og að hámarki verða þar 240 mjólkandi kýr og fjórir mjaltarþjónar til að þjóna þeim. Það er ekkert leyndarmál að fyrirmyndin er fengin frá Hollendingum. Við hugsum þetta fjós sem ársstarf fyrir konu og karl í koti sínu. Við höfum lagt mjög mikið upp úr því í hönnuninni að sem allra flestir þættir í fjósinu séu á færi einnar manneskju. Við verðum með svokallaðan velferðargang sem er þannig að kýrnar ganga alveg sér fyrst eftir burð. Þær eiga miklu meiri möguleika á að komast klakklaust gegnum burð ef þær eru hafðar á stóru hálmsvæði, geta farið í mjaltir og svo aftur inn á hálmsvæðið. Við spáðum svo talsvert í fóðurkerfin, en enduðum á að fara í sjálfvirkt heilfóðurkerfi.“ Farsæll kúabúskapur Kúabúskapurinn gengur vel í Gunnbjarnarholti hjá þeim Arnari og Berglindi Bjarnadóttur, konu hans, og er búið jafnan ofarlega á árslistum um afurðahæstu búin í niðurstöðum skýrsluhalds nautgriparæktarinnar. „Já, það hefur gengið sérstaklega vel þessi síðustu 6–7 ár en það eru um 25 ár síðan við byrjuðum í þessu,“ segir Arnar Bjarni, sem reiknar með að byrja að moka fyrir nýja fjósinu í vikunni – ef eitthvað frystir. /smh Myndir / smh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.