Bændablaðið - 26.03.2015, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015
Gunnbjarnarholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi:
Framkvæmdir við 240 kúa
fjósbyggingu að hefjast
– Fjósið allt mun vera um 4.500 fermetrar að grunnfleti
„Þetta er í raun viðbygging við
það fjós sem fyrir er – þó hún
verði auðvitað talsvert stærri en
gamla fjósið. Ég sótti um að fá
að reisa fjósið í fyrra, en þurfti
að fara með framkvæmdina í
deiliskipulag og því frestaðist
hún um ár, má segja,“ segir
Arnar Bjarni Eiríksson,
bóndi og húsasmíðameistari í
Gunnbjarnarholti í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Þegar blaðamaður náði tali af
honum var hann á leið í fimm daga
ferð til Hollands – með íslenskum
kúabændum – á námskeið um
fjósbyggingar, en að sögn Arnars
má margt læra af Hollendingum
um fjósbyggingar, en Arnar á og
rekur Landstólpa sem sérhæfir sig
meðal annars í fjósbyggingum fyrir
bændur. „Það var bara svo mikið
að gera hjá mér síðasta sumar að
ég komst ekki til þess að byrja
þá og þar fyrir utan var hönnunin
kannski ekki alveg tilbúin. Ég
reikna hins vegar með að byrja að
moka fyrir fjósinu þegar ég kem
heim úr ferðinni til Hollands. Þessi
framkvæmd á sér nokkuð langan
aðdraganda – en þar sem maður vill
vera sjálfur að mestu með puttana
í þessu þá hefur þetta tekið þennan
tíma. Það kannski tafði ferlið líka
aðeins að ég fór í heilmikla könnun
á því hvort það væri hagkvæmt að
nýta metangasið frá fjósinu. Það
kemur svo í ljós að það myndi ekki
vera afgerandi ávinningur af því
þannig að ég læt það liggja milli
hluta í bili. Hönnunin á fjósinu er
hins vegar þannig að ég held þessum
möguleika opnum, ef það lítur
þannig út að þetta verður vænlegt
í framtíðinni. Okkar niðurstaða var
sú að stærðin á fjósunum þarf að
vera svo gríðarleg til að eitthvað
væri upp úr því að hafa.“
Mikil áhersla á rýmisþarfir
„Ég legg gríðarlega mikla áherslu
á allar rýmisþarfir í hönnuninni á
byggingunni. Það verður því mjög
rúmt á öllum gripum. Heildarstærð
á grunnfleti verður um 4.500
fermetrar og að hámarki verða
þar 240 mjólkandi kýr og fjórir
mjaltarþjónar til að þjóna þeim. Það
er ekkert leyndarmál að fyrirmyndin
er fengin frá Hollendingum. Við
hugsum þetta fjós sem ársstarf
fyrir konu og karl í koti sínu. Við
höfum lagt mjög mikið upp úr því
í hönnuninni að sem allra flestir
þættir í fjósinu séu á færi einnar
manneskju. Við verðum með
svokallaðan velferðargang sem er
þannig að kýrnar ganga alveg sér
fyrst eftir burð. Þær eiga miklu
meiri möguleika á að komast
klakklaust gegnum burð ef þær
eru hafðar á stóru hálmsvæði, geta
farið í mjaltir og svo aftur inn á
hálmsvæðið. Við spáðum svo talsvert
í fóðurkerfin, en enduðum á að fara
í sjálfvirkt heilfóðurkerfi.“
Farsæll kúabúskapur
Kúabúskapurinn gengur vel í
Gunnbjarnarholti hjá þeim Arnari
og Berglindi Bjarnadóttur, konu
hans, og er búið jafnan ofarlega
á árslistum um afurðahæstu
búin í niðurstöðum skýrsluhalds
nautgriparæktarinnar. „Já, það hefur
gengið sérstaklega vel þessi síðustu
6–7 ár en það eru um 25 ár síðan
við byrjuðum í þessu,“ segir Arnar
Bjarni, sem reiknar með að byrja að
moka fyrir nýja fjósinu í vikunni –
ef eitthvað frystir.
/smh
Myndir / smh