Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 26. mars 2015 gömul kyn. Þar eru nautgripirnir, hrossin og sauðféð góð dæmi. Þar er árangurinn glæsilegur. Það er erfiðara með geitastofninn sem er mjög lítill og sömuleiðis landnámshænsnastofninn.“ Útlendingar átta sig á kostum okkar „Vorið 2009 var haldinn hér fundur innan ERFP Evrópusamstarfs sem ég hef tekið þátt í frá upphafi, um 20 ára skeið. Það vakti athygli og aðdáun ráðstefnugesta hvað við erum að gera góða hluti hér, svo sem við verndun og ræktun gamalla búfjárkynja. Eins hvernig við framleiðum hér hollar og góðar afurðir með tiltölulega sjálfbærum hætti. Ég hef verið að hitta þetta sama fólk á fundum og ráðstefnum síðan og alltaf minnist það með aðdáun heimsóknar sinnar til Íslands vorið 2009. Það er eins og útlendingarnir átti sig betur á því en við hvað við erum með marga góða kosti í höndunum.“ Óheftur innflutningur gerir út af við okkar landbúnað „Það er útilokað að við getum haldið þessari stöðu ef hér ætti að vera frjáls innflutningur á hráu kjöti og búfé. Þá væri íslenskur landbúnaður búinn að vera. Sumir virðast ekki átta sig á þessu og að þetta snertir líka fæðuöryggi þjóðarinnar. Fyrir svo utan það að landbúnaðurinn skapar mikla atvinnu í landinu og nýtir ýmis landsgæði svo sem úthagabeit. Það er mjög bagalegt að það skuli ekki vera vitrænni umræða hér á landi um sjálfbæra þróun og hvernig íslenskur landbúnaður kemur þar við sögu.“ Varnaðarorð frá prófessor Dennis L. Meadows „Hingað kom síðla árs 2013 prófessor Dennis L. Meadows frá Bandaríkjunum og hélt fyrirlestur í hátíðasal Háskóla Íslands fyrir troðfullu húsi. Hann er einn af þeim sem sömdu skýrsluna frægu sem Rómarklúbburinn gaf frá sér snemma á áttunda áratugnum þar sem voru spár um breytingar sem yrðu vegna orkunotkunar, mengunar og fleira. Þá var lítið farið að tala um gróðurhúsaáhrif. Þessi maður lítur á umhverfismálin í víðu samhengi og alls ekki út frá þröngu sjónarhorni landbúnaðar.“ Gætið að fæðuörygginu „Meadows var spurður að því við lok erindis síns hvað hann vildi segja um Ísland. Hann var heiðarlegur og sagðist ekki hafa ferðast mikið um Ísland og þekkti því ekki vel til en sagði þó: „Gætið þess að eyðileggja ekki fæðuöryggið.“ Sagði hann að það sem hver þjóð þyrfti að gera væri að tryggja framleiðslu á matvöru, það væri aðalmálið fyrir afkomu þjóðar. Þjóðir yrðu að nýta þá möguleika sem þær hafa til að framleiða eigin matvæli og sem næst markaðnum. Benti hann á að miklir flutningar um langa vegu eru gríðarleg uppspretta gróðurhúsalofttegunda. Aðspurður um hvað hann gerði þegar hann væri að ljúka starfsferli sínum sagðist hann vera að leiðbeina fólki í heimabæ sínum hvernig það gæti ræktað grænmeti í görðunum heima.“ Neyðarfundur haustið 2008 Ólafur segir ljóst að það friðsamlega ástand sem ríkt hefur í okkar heimshluta um skeið væri fallvalt. Ekki þyrfti einu sinni stríð eða náttúruhamfarir til að fæðuöryggið yrði aðalmálið. Efnahagsleg áföll geti hæglega valdið okkur vandræðum. „Þetta gerðist hér haustið 2008, þegar lokaðist fyrir gjaldeyrisviðskipti. Þá stefndi hér í kornskort. Það voru ekki til birgðir í landinu nema í mesta lagi til eins mánaðar. Þar með var allur svína- og alifuglastofninn í hættu auk þess sem stefndi í skort á matvælum almennt fyrir íbúa landsins. Þetta gerðist eingöngu vegna þess að það var lokað fyrir bankastarfsemi. Hér var haldinn neyðarfundur í Bændahöllinni sem ég stýrði fyrir hönd Bændasamtakanna. Þar kölluðum við saman fulltrúa frá ráðuneytunum, Almannavörnum, fóðurvörufyrirtækjunum og bændum þar sem rætt var hvað þyrfti að gera. Þá fór fjármálaráðherra í það að finna sérstaka undanþáguleið til að tryggja gjaldeyri fyrir einum skipsfarmi af korni. Það tók nærri viku að finna út leið en á meðan höfðu menn miklar áhyggjur. Þótt við séum háð innflutningi ýmissa aðfanga svo sem korns, áburðar og olíu skiptir samt innlend matvælaframleiðsla mjög miklu máli og stuðlar vissulega að auknu fæðuöryggi. Staða neytenda yrði allt önnur og ótryggari ef nær öll matvæli væru háð innflutningi. Þetta er í raun þjóðaröryggismál,mjög vanmetið því miður.“ Getum auðveldlega glatað sjálfsbjargarmöguleikum okkar „Það þarf því ekki náttúruhamfarir, hryðjuverk eða stríð til að við getum lent í miklum vandræðum á stuttum tíma. Því þarf að ræða fæðuöryggismálin af miklu meiri alvöru en nú er gert. Það er líf heillar þjóðar í húfi. Þetta snertir Evrópusambandið og mögulega aðild okkar að því. Með frjálsu vöruflæði milli landa stenst íslenskur landbúnaður ekki samkeppni við niðurgreidda stórframleiðslu annarra landa. Því myndi íslenskur landbúnaður leggjast af að mestu og Íslendingar hefðu þá litla möguleika á að bjarga sér sjálfir með landbúnaðarafurðir ef landið lokaðist fyrir innflutningi. Um leið og við sköðuðum fæðuöryggið gerist annað varðandi innflutning. Um leið og innlend samkeppni er úr sögunni lendum við mjög fljótt í fákeppni á markaði. Reynslan sýnir að þá mun verð á innflutningi hækka. Þá verður vandinn sá að þegar búið er að leggja af einhverjar greinar í landbúnaði, þá endurreisa menn þær ekki svo auðveldlega. Landbúnaður er langtímaferli og mjög auðvelt að eyðileggja hann með innflutningi. Ég hef séð sjálfur hvernig slíkt gerist, m.a. á Nýfundalandi, í Alaska og víðar. Öll slík jaðarsvæði eiga alltaf í vök að verjast, líkt og Ísland yrði sem jaðarríki í Evrópusambandinu. Innan núverandi stefnu Evrópusambandsins og þeirra samninga sem þeir miða við í landbúnaðarmálum, þá eru engar líkur á að við nytum þar einhverra sérkjara. Við yrðum því jaðarsvæði og háð öðrum að mestu leyti um innflutning á landbúnaðarvörum. Þótt talað sé um að hægt sé að lækka verð á landbúnaðarvörum með óheftum innflutningi, þá áttar fólk sig ekki á að svokölluð frjáls samkeppni hefur aldrei virkað vel á Íslandi. Það getur þó verið að verðið lækki tímabundið meðan innflutningsaðilar eru að ná tökum á markaðinum. Það gerðist t.d. í Finnlandi, en þegar búið er að drepa samkeppnina frá innlendu framleiðslunni með tilheyrandi fækkun starfa, þá hækkar vöruverðið. Við yrðum því verr stödd innan fimm til tíu ára hvað verðlag á landbúnaðarvörum varðar.“ Skammtímahugsunarháttur varðandi lífrænan búskap „Þarna er á ferðinni allt of mikill skammtímahugsunarháttur. Það sama á við í umhverfismálum og í lífrænum landbúnaði. Það er neytendadrifinn og vaxandi markaður fyrir lífrænar landbúnaðarvörur. Þar gætir aftur á móti mjög mikillar tregðu hjá stjórnvöldum, samtökum bænda og Landbúnaðarháskóla Íslands að átta sig á þeirri þróun. Þótt markaðurinn sé mjög góður þá er verið að gera mun minna hér á landi til að efla þróun á lífrænum landbúnaði en gerist hér í nágrannalöndunum. Þarna ber allt að sama brunni, vandinn er vegna þess að menn eru hér að horfa á skammtímasjónarmið og líta ekki til lengri tíma. Þetta er okkar stóra vandamál við lífrænan landbúnað í dag og ég held að það eigi við fleiri greinar. Það sem er enn verra er að það er engin stefna í þessum málum. Síðasta ríkisstjórn var þó með drög að stefnu sem birtist í skýrslu sem hét Græna hagkerfið, en nú hefur það verið tekið úr sambandi og fjárveitingarnar notaðar í annað. Þau stefnumið sem voru í Græna hagkerfinu varðandi lífrænan landbúnað eru ekki í gildi lengur. Þetta sýnir að menn eru ekki tilbúnir að fara út í langtímastefnumörkun þótt það sé jákvætt fyrir markaðinn, neytendur og sé atvinnuskapandi. Okkur bráðvantar lífrænt vottað grænmeti og mjólk og nú er talað um að flytja hana inn frá Danmörku sem mér finnst fráleitt. Svo er hér markaður fyrir lífrænt vottaðar kjúklinga- og svínaafurðir. Þarna er vettvangur fyrir nýsköpun sem þarf að sinna. Lífrænn landbúnaður er jákvæður að öllu leyti hvað varðar umhverfisvernd og mengunarmál og vinnur gegn útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Það er því allt jákvætt við að byggja upp þá grein. Lífrænn landbúnaður mun fyrst og fremst sinna nærumhverfinu og verður seint stórframleiðsla og til útflutnings nema hugsanlega í einstökum greinum. Við erum þó með dæmi um slíkt en það eru þörungaafurðir, sem eru vottaðar lífrænar afurðir til útflutnings.“ Verksmiðjubúskapur sækir á í Evrópu Ólafur segir að ef litið sé til baka þá séu viðhorf bænda til umhverfismála mun jákvæðari í dag en þau voru áður. Margir bændur hafi verið að sinna þeim málum mjög vel. Þá séu flestir bændur sammála um að þeir vilji ekki verksmiðjubúskap, enda verði slíkur búskapur sjaldnast flokkaður undir að vera fjölskyldubúskapur. Í Evrópu sé hins vegar mikil þróun í átt til verksmiðjubúskapar enda fari stór hluti styrkja ESB til landbúnaðar til fyrirtækja í stórræktun og verksmiðjubúskap. Þar sé aðal uppgangurinn í dag, en um leið sé verið að spilla landi með ofnýtingu og eiturefnanotkun. „Það er gríðarlega mikil jarðvegseyðing í gangi og eiturefnamengun auk þess sem líftæknifyrirtæki sækja mjög á að dreifa einkaleyfisvörðum, erfðabreyttum lífverum, einkum fræi. Það hefur sýnt sig að vera stórhættulegt mál þar sem fyrirtæki með einkaleyfi á ákveðnum tegundum geta fljótt náð einokunarstöðu. Sem betur fer er mjög mikil andstaða í Evrópu við slíkt, en stóru fyrirtækin sækja þar mjög á. Mun meira frelsi ríkir í þeim málum í Bandaríkjunum og í Kanada. Þessi þróun heldur áfram þar sem kapítalisminn er mjög sterkur og það er alveg ljóst að Evrópusambandið er útvörður kapítalismans í Evrópu.“ Stórfyrirtækin sölsa undir sig landbúnaðinn „Þróunin hefur víða verið sú að stórfyrirtækin eru að sölsa undir sig mikið land og byggja stórbú sem ætlað er að skila hagnaði á skömmum tíma. Það er vísir að þessu hér á landi í alifuglarækt og svínarækt og nautgriparæktin gæti orðið næsta búgrein sem fjárfestar herja á. Ef þetta verður ofan á þá mun bæði landbúnaður og byggðamynstur hér á landi breytast mjög mikið þar sem stórbúin verða fremur staðsett nær þéttbýlinu og helstu mörkuðunum. Um leið minnka möguleikarnir á að nýta graslendið víða um land og halda í hinar dreifðu byggðir.“ Ólafur bendir á þróunina í Bretlandi sem dæmi. „Mikil fjölgun stórbúa mun að mínu mati hafa neikvæð áhrif og ég tel að Bændasamtökin −framhald Mörg áhyggjuefni innan ESB Ekki verður séð að fjögurra áratuga aðild að ESB hafi verið breskum landbúnaði til góðs; vaðandi uppgangur stórbúskapar og verksmiðjuvæðingar og markaðssetning matvælaiðnaðarins á lélegum, „ódýrum“ mat. Um þetta má m.a. lesa á vef Food Research Collaboration (www.foodresearch.org.uk/square- meal) undir fyrirsögninni Einföld máltíð: „Hvers vegna þurfum við nýja uppskrift að landbúnaði, mat af villtum dýrum og almennri heilsu?“ − Þar er vísað í skýrslu um þetta efni og bent á að nú hafi komið fram í dagsljósið yfirgnæfandi upplýsingar um meiri háttar stefnubreytingar í fæðuöflun og landbúnaði á heimsvísu. Skýrslan er afrakstur af samvinnu 10 samtaka um náttúruvernd, dýravernd, matvælaöryggi og heilbrigðismál. Þetta eru; RSPB, Friends of the Earth, the National Trust, the Food Ethics Council, Sustain, the Wildlife Trusts, the Soil Association, Eating Better and Compassion in World Farming working with the Food Research Collaboration. Skýrslan tekur sérstaklega á nokkrum málum. Það varðar bætta heilsu. Gæði fyrir alla, þ.e. fæðuskort og hvernig eigi að tryggja sanngjarna fæðuöryggiskeðju. Sjálfbærni í landbúnaði og hvernig eigi að endurheimta land sem hefur tapast á landsbyggðinni og vinna að náttúruvernd. Í skýrslunni er bent á nokkrar staðreyndir: • 33% af ungmennum undir 18 ára aldri í Bretlandi eru of þung. • 913.138 manns eiga í miklum erfiðleikum víða um Bretlandseyjar og var aðeins úthlutað þriggja daga neyðarmáltíð allt árið 2014 af hjálparstofnuninni Russel Tust. • 75% af próteini sem fer til dýraeldis í Evrópusambandslöndum er innflutt. • 25% af öllum bændum í Bretlandi lifa í sárri fátækt. • Á innan við 50 árum hafa tapast 44 milljónir para af eldisfuglum. Neikvæð áhrif ESB í Norður-Svíþjóð: Hundruð bænda gefast upp fyrir erlendri samkeppni Um 200 bændur í Austurbotnum hafa gefist upp á undanförnum misserum vegna harðrar samkeppni frá öðrum Evrópusambandslöndum og lélegrar afkomu. Fjallað var um málið í vefsíðuritinu yl.fi fyrir skömmu, en þessar fregnir af veruleikanum í Svíþjóð og Finnlandi eru þvert á fullyrðingar sem m.a. voru birtar í heilsíðuauglýsingu frá Viðreisn fyrir skömmu sem styður inngöngu í ESB, en þar var sagt: „Svíar og Finnar fengu samþykkt að styrkja landbúnað norðan 62. breiddargráðu meira en almennt gerist innan sambandsins. Sama myndi gilda um Ísland. Reynsla nágrannalandanna er að inngangan hefur jákvæð áhrif, bæði fyrir bændur og neytendur.“ Samkvæmt fréttum frá Svíþjóð standast fullyrðingar Viðreisnar engan veginn. Á vefsíðu yl.fi var m.a. rætt við Fredrik Grannas, trúnaðarmann hjá Österbottens svenska producentförbund (ÖSP) sem eru samtök framleiðenda í Austurbotnum. Hann sagði að þarna væri um efnahagslegt vandamál að ræða. Í fyrra hafi starfsemi verið hætt á 200 jörðum en á hundrað til viðbótar hafi orðið kynslóðaskipti. Um 5.000 bændur búa í Austurbotnum, en þeim fækkar stöðugt. Grannas segir að margar orsakir kunni að vera fyrir því að bændur gefist upp. Í sumum tilfellum hafi eldri bændum ekki tekist að fá yngra fók til að taka við. Þá geti það líka haft sín áhrif að gera á breytingar á stuðningskerfi ESB á þessu ári þar sem styrkir eru fremur tengdir landi en afurðum. Stór þáttur er síðan minnkandi tekjur í harðri samkeppni við innfluttar landbúnaðarvörur. Þar muni miklu frá því sem áður var. /HKr. Dennis L. Meadows.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.