Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 13
virtist þetta vera útlendingaeft-
irlitið í von um að finna kannski
ógildar vegabréfsáritanir,“ segir
Helgi.
Hann segir að enginn frekari
eftirmáli hafi verið af málinu en
hann hafi samt verið hálfstressaður
næstu daga á eftir.
Sjarmi landsins mikill
Helgi segist hvetja Íslendinga til
að heimsækja Kína og bendir á að
það sé skylda fyrir ferðamenn að
sjá Kínamúrinn, leirhermennina í
Xi’an og verslunargötuna í
Shanghai en mælir einnig með að
ferðast til minni borga eins og
Ningbo og Dalianog Xiamen, þar
sem fólkið er vingjarnlegra og
lífið rólegra. „Áður en ég kom
hingað fyrst hafði ég margar
ranghugmyndir um þetta land.
Hér er að sjálfsögðu harðstjórn,
en það er bara einn hluti af því.
Trúðu mér, ég myndi ekki kjósa
að búa hérna í svo langan tíma ef
að sjarmi landsins væri ekki
sterkari en stjórnarfarið,“ segir
hann.
Getum lært af Kínverjum
Helgi telur að efla ætti enn frekari
tengsl á milli Íslands og Kína. „Ég
held að samskipti Íslands og Kína
eigi eftir að aukast í framtíðinni á
öllum sviðum. Mikilvægast finnst
mér fyrir okkur Íslendinga að
kynnast þessari þjóð aðeins nánar,
ekki bara vegna þess hve athyglis-
verð hún er, heldur líka mun það
gefa okkur forskot þegar kemur að
samskiptunum sjálfum. Fólk þarf
alls ekkert að elska Kína, en að
líta á 5000 ára gamla siðmenningu
og segja að við getum ekkert lært
af þeim bara vegna þess að okkur
er illa við stjórnina þeirra er frek-
ar kjánalegt,“ segir Helgi að lok-
um. Ljósmyndir/Úr einkasafni
* Við fengumaldrei að vitanákvæmlega hver
það var sem klagaði
eða af hverju
lögreglunni fannst
nauðsynlegt að
mæta og koma fram
við nokkra grínista
eins og þeir væru
í einhverri hryðju-
verkastarfsemi.
Það kom Helga í opna skjöldu þegar lögreglan mætti
og tók hann í yfirheyrslu en þeir grunuðu hann um
að sverta Kommúnistaflokkinn með gríninu.
2.8. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
The NAVSUP Fleet Logistics Center
Norfolk intends to negotiate a Firm Fixed
Price contract for Information Technology
Support Services at the Naval Radio Transmit
Facility in Grindavik, Iceland.
This work includes operations and maintenance
of the site. In order to be eligible for award,
the offeror shall be a qualified Icelandic
enterprise.
For solicitation information, including full details
on the contract scope, contact Caitlin King via
email at caitlin.king@navy.mil.
Helgi Steinar Gunnlaugs-
son hefur búið í fjögur ár
í Kína og nýtur lífsins þar.
Hann segir Íslendinga geti
lært margt af Kínverjum.