Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.8. 2015 Þriðju tónleikar Tónlistahátíðarinnar Englar og menn í Strandarkirkju verða í dag, sunnu- daginn 2. ágúst, klukkan 14:00. Á tónleikunum koma fram þrjár klassískar söngkonur, þær Ísabella Leifsdóttir sópran, Margrét Einarsdóttir sópran og Þóra Pas- sauer kontra-alt ásamt organistanum Magn- úsi Ragnarssyni. Yfirskrift tónleikanna er „Þér ég þakka“ en söngkonurnar munu tileinka tónleikana Mar- íu Guðsmóður og móðurhlutverkinu. Þær munu flytja íslensk og erlend ljóð, bænir og aríur sem fjalla um Maríu mey, móðurhlut- verkið og vernd eftir innlend og erlend tón- skáld. TÓNLEIKAR STRANDARKIRKJA Strandarkirkja er lítil en falleg kirkja sem margir hafa heitið á í gegnum tíðna. KK og Magnús Eiríksson hafa oft leitt saman hesta sína í tónlistinni. Morgunblaðið/Eyþór Tónlistamennirnir KK og Magnús Eiríksson koma fram á Café Rosenberg á laugardag, 1. ágúst. Á tónleikunum spila þeir lög úr laga- safni hvor annars auk sameiginlegra laga- smíða, en þeir hafa gefið út þrjár plötur með eigin efni. Á árunum 2003 til 2007 gáfu þeir út þrjár plötur með þekktum rútubílasöngvum og kölluðu þær 22 ferðalög (2003), Fleiri ferða- lög (2005) og Langferðalög sem var tekin upp í Sjanghæ 2007 og gefin út þar og á Ís- landi sama ár. GOÐSAGNIR KK OG MAGGI Hið skapandi ferli er heiti listasýningar í Fljótstungu en þar er rekið listamannaset- ur vor og haust ár hvert. Listamönnum alls staðar að úr heiminum er boðið að dvelja og vinna í tvær vikur í senn án end- urgjalds. Nú hafa um 50 listamenn komið í Fljótstungu á þessu ári. Listasýningin er samsafn brota úr hinu skapandi ferli á mismunandi stigum verka. Fleiri þróuð verk eru sífellt að bætast við og mun sýn- ingin að lokum innihalda verk eftir 49 listamenn frá 22 löndum og 4 heimsálfum. Sýningin inniheldur einnig skýrslur frá listafólkinu þar sem það útskýrir verkin og hvernig þau tengjast dvöl þess í Fljóts- tungu. Sýningarstjóri er Lilian Pineda danshöfundur. Listasýningin er haldin í Fljótstungu dag- ana 15. júlí til 1. september 2015. Sýningin er opin frá kl. 9:00 til 19:00 alla daga. LISTASETUR FLJÓTSTUNGA Menning Þ au lýsa honum sem glæsimenni. Manni sem hélt ungur út í heim, uppfullur af lífi, sköpunargleði og draumum. Hann nam myndlist í San Francisco og fann fjölina sína, fjarri öllum fordómum og hatri. Gat verið hann sjálfur og blómstraði í lífi og list. Á augabragði varð draumurinn að martröð, þegar hann varð fyrir fólskulegri árás á götu úti í New York. Hatursglæpur af verstu gerð. Eftir að hafa vart verið hugað líf sneri hann heim til Íslands, rétt skugginn af sjálf- um sér. Upp frá því hallaði hratt undan fæti. Hann náði sér aldrei, hvorki andlega né lík- amlega og tólf árum síðar var hann allur. Langt fyrir aldur fram. Hann var aðeins 41 árs en eigi að síður var lífsneistinn löngu slokknaður. Gamall maður í ungum líkama. Margir muna eftir Þormóði Karlssyni list- málara. Á síðasta áratug liðinnar aldar var hann svokölluð barfluga á veitingastaðnum 22 á Laugaveginum, þar sem margir lista- menn leituðu skjóls fyrir skarkala heimsins og háðu sína orrustu við Bakkus og aðra djöfla. Árásin í New York hafði ekki bara svipt Þormóð sköpunargáfunni heldur líka sjálfsvirðingunni og það var þyngra en tárum taki fyrir ættingja hans og vini að horfa upp á hann veslast upp fyrir framan nefið á þeim. Maður sem allir tóku eftir „Þetta var ekkert líkt þeim Þormóði sem við þekktum í æsku,“ segir Hildur Ómarsdóttir, sem ásamt bræðrum sínum, Karli og Rúnari, og fleirum stendur að sýningu á verkum móðurbróður síns í Listasafni ASÍ. „Hann var glæsimenni. Hávaxinn með mikið dökkt hár og gekkst upp í klæðaburði. Maður sem allir tóku eftir. Þormóður var hjúpaður æv- intýraljóma og við systkinin litum mikið upp til hans. Hann var svo mikill persónuleiki og hæfileikamaður. Hann hafði alla burði til að eiga langt, litríkt og spennandi líf hefði hann ekki orðið fyrir þessari fólskulegu árás.“ Hildur og Karl segja gamla vini og félaga Þormóðs muna hann í sama ljósi. Þeir lýsi honum sem lífsglöðum og kátum manni. Hildur segir Þormóð hafa haldið góðu sambandi við vini og fjölskyldu á Íslandi meðan hann bjó ytra og Karl bætir við að hann hafi verið ónískur á að miðla af reynslu sinni þegar hann kom í heimsóknir. Þormóður fæddist árið 1958. Hann ólst upp í Reykjavík en fluttist rúmlega tvítugur til Kaupmannahafnar. Hildur og Karl segja listrænan metnað hafa ráðið nokkru þar um en helsta ástæðan hafi eigi að síður verið kynhneigð frænda þeirra. Þormóður var hommi og eins hryggilega og það hljómar var þeim varla vært hér á landi á þeim tíma. Fáfræðin og fordómarnir voru svo miklir. „Hann tilheyrði kynslóð sem hrökklaðist úr landi. Hér var ekki framtíðin,“ segir Hildur. Frá Kaupmannahöfn lá leið Þormóðs til San Francisco, þar sem hann lagði stund á myndlistarnám við San Francisco Art Insti- tute (SFAI). Hann fann sig strax í náminu og segir Karl hann hafa verið afkastamikinn í listsköpun sinni næstu árin. Þormóður útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá SFAI vorið 1988 og hafði þá þegar náð þeim árangri að selja myndir og var kominn með umboðsmann. Strax eftir út- skriftina fór hann til New York, til að af- henda verkin sem hann hafði selt á útskrift- arsýningunni. Þormóður var ásamt kærasta sínum að fagna þessum góða árangri í New York 1. júní 1988 þegar ráðist var á hann. Hells Angels voru með þing í borginni og einn meðlima samtakanna hafði lýst því yfir að hann ætlaði að bana næsta manni sem Lífskúnstner sem hlaut grimm örlög SÝNING Á MÁLVERKUM ÞORMÓÐS KARLSSONAR VERÐUR OPNUÐ Í LISTASAFNI ASÍ Á FREYJUGÖTU Á FÖSTU- DAGINN KEMUR. ÞORMÓÐUR STUNDAÐI LIST SÍNA Í KAUPMANNAHÖFN OG SAN FRANCISCO EN SNERI HEIM EFTIR AÐ HANN VARÐ FYRIR FÓLSKULEGRI HATURSÁRÁS Í NEW YORK ÁRIÐ 1988 EN ÞORMÓÐUR VAR SAMKYNHNEIGÐUR. HANN NÁÐI SÉR ALDREI EFTIR ÁRÁSINA OG DÓ SADDUR LÍFDAGA ÁRIÐ 2000, AÐEINS 41 ÁRS. ÞAÐ ERU FRÆNDSYSTKINI HANS, HILDUR OG KARL ÓMARSBÖRN, SEM STANDA AÐ SÝNINGUNNI OG VILJA ÞANNIG HEIÐRA MINNINGU HANS. TÍMABÆRT SÉ AÐ LIST ÞORMÓÐS KOMI FYRIR AUGU ALMENNINGS. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.