Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.08.2015, Blaðsíða 14
Heilsa og
hreyfing
Meinhollir fíflar í matinn
Morgunblaðið/Golli
*Margir hamast við að rífa fífla upp úr görðumsínum og eitra jafnvel fyrir þeim líka. Þeir eruþó ekki einungis til ama, því þeir eru mein-hollir! Rétt er að tína þá þar sem umferð erlítil og þvo þá. Nýta má trefjarík laufblöðin,ræturnar sem innihalda steinefni og blóm-hausana, en þeir eru ríkir af A-, B-, C- og D-
vítamínum. Fíflar eru tilvaldir í salöt, sjeika
og út í grjónarétti, t.d. hrísgrjón og kínóa.
H
úðvörur úr Bioeffect-vörulínu ís-
lenska fyrirtækisins Sif Cosmetics,
dótturfyrirtækis Orf líftækni, hafa
vakið talsverða athygli síðan þær
komu á markað fyrir fáeinum árum, ekki síst
svokallaðir EGF-húðdropar, en vörurnar þykja
einstakar á heimsvísu. Liggur galdurinn m.a. í
vinnslu EGF-frumuvakans (e. epidermal growth
factor), vaka sem er að finna í húðinni og örvar
þar fjölgun, vöxt og sérhæfingu frumna en
frumuvakinn sem notaður er í Bioeffect-
vörurnar er framleiddur í fræi byggplöntu.
Fyrr í sumar kom hingað til lands þekktur
bandarískur húðlæknir, dr. Ronald Moy, en
hann hefur síðustu ár gert rannsóknir á virkni
EGF-frumuvakans frá Orf líftækni. Dr. Moy er
fyrrverandi formaður samtaka bandaríska húð-
lækna.
Ekki sambærilegt við neitt annað
„Ein af rannsóknum mínum á EGF-frumuvak-
anum hefur þegar verið birt en hinar tvær
verða birtar fljótlega,“ segir dr. Moy. „Ein
rannsóknin var um poka undir augum, önnur
var um marbletti á eldra fólki (e. senile purp-
ura) og sú þriðja um ör eftir bólur. Öll þessi
húðsvæði eiga það sameiginlegt að vera mjög
þunn. Til dæmis batnar útlit poka undir augum
ef hægt er að þykkja húðina, því þá strekkist á
henni. Þetta gildir líka um hin þunnu húð-
svæðin.“
Dr. Moy sýndi fram á það að átta vikna notk-
un EGF-frumuvaka á marbletti eldra fólks
hafði þau áhrif að húðin á marða svæðinu
þykknaði en húðþykktin var mæld með óm-
mælingum.
„Alls staðar í heiminum – nema hér – er
þessi frumuvaki framleiddur með líftæknilegum
aðferðum úr E. coli bakteríum. Vísindamenn-
irnir hér hugsa allt öðruvísi og vinna frumuvak-
ann úr byggi í stað baktería, sem gerir það að
verkum að íslenski EGF-frumuvakinn er stöð-
ugri og án endotoxína, sem geta leitt til óstöð-
ugleika. Ég hef komið víða við og starfað sem
húðlæknir í þrjátíu ár en íslenski EGF-frumu-
vakinn og áhrif hans eru það magnaðasta sem
ég hef séð hingað til. Það er í raun ekki hægt
að bera hann saman við neitt, þessar niður-
stöður eru t.d. mun betri en það sem sést eftir
meðferð með retinoic-sýru,“ segir dr. Moy.
Lítil vísindi á bak við flestar húðvörur
En nú þegar nýjar húðvörur koma á markað
svo til daglega og lofa allar kraftaverki, er þá
ekki eðlilegt að neytendur séu tortryggnir í
garð húðvara á borð við EGF-vörurnar?
„Jú, það er það,“ segir dr. Moy. „En sann-
leikurinn er sá að 99% húðvara hafa engin vís-
indi eða rannsóknir á bak við sig – húðvörur
með andoxunarefnum hafa til dæmis notið vin-
sælda, en þar á bak við eru enn engin raun-
veruleg, traust vísindi heldur mestmegnis kenn-
ingar. Sumar húðvörur eru síðan eingöngu
prófaðar á dýrum en ekki mönnum og það er
einfaldlega ekki sambærilegt,“ segir húðlækn-
irinn og bætir því við að fyrir utan EGF-frumu-
vakann sé retinoic-sýra það efni sem hvað
mestar rannsóknir liggja á bak við. „En þegar
litið er nánar á þær rannsóknir, þá kemur í ljós
að meirihluti fólks upplifir óþægindi í húð við
notkun og eftir tólf vikna notkun er árangurinn
oft lítill. Þetta eru ekki alvöru niðurstöður, eins
og það sem við sjáum með EGF-frumuvak-
anum. Auðvitað er ódýrara og auðveldara fyrir
snyrtivörufyrirtæki að nota efni í húðvörur sem
hafa í raun litla virkni heldur gefa fyrst og
fremst raka. Frumuvakinn er dýr, en hann
virkar. Framtíð snyrtivara liggur í genakrem-
um, að mínu mati, og EGF-frumuvakinn virkar
einmitt á genin.“
Dr. Moy er bjartsýnn á framtíð íslenskra
rannsókna á þessu sviði og býst við því að fleiri
frumuvakar eða vaxtarþættir muni verða upp-
götvaðir á næstunni.
Fyrrverandi formaður banda-
ríska húðlæknasambandsins, dr.
Ronald Moy, hefur rannsakað
íslenska EGF frumuvakann og
segir niðurstöðurnar ótrúlegar.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
ÍSLENSKUR FRUMUVAKI GEFUR FRÁBÆRAR NIÐURSTÖÐUR
„Það magnaðasta sem ég hef séð“
BANDARÍSKI HÚÐLÆKNIRINN DR. RONALD MOY SEGIST ALDREI HAFA SÉÐ NEITT Í LÍKINGU VIÐ ÍSLENSKA EGF-FRUMUVAKANN
OG AÐ VINNSLA HANS SÉ EINSTÖK Á HEIMSVÍSU EN HANN ER UNNINN ÚR BYGGI Í STAÐ BAKTERÍA.
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is
Dr. Moy gefur lesendum tvö góð
ráð til að bæta húðheilsu sína.
– Rannsóknir sýna að flestallir
verða fyrir húðskemmdum vegna
geisla sólar, jafnvel á kvöldin og
nóttunni. Skemmdirnar verða á
erfðaefni húðfrumnanna en þær
er hægt að fyrirbyggja eða minnka
líkur á með því að nota sólarvörn
daglega, líka á kvöldin og inni við.
– Húðvörur með
DNA-viðgerðarensímum segir dr.
Moy að geti lagað DNA-skemmdir
í húðfrumum vegna sólargeisla og
þannig komið í veg fyrir húð-
krabbamein. Kremin koma auk
þess í veg fyrir þynningu húð-
arinnar. Dr. Moy mælir með notk-
un slíkra krema að kvöldi til.
Sólarvörn
og viðgerðar-
ensím